Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 465 — 1. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2026.
Frá 3. minni hluta fjárlaganefndar.
Inngangur.
Ábyrg efnahagsstjórn er lykillinn að farsælu samfélagi þar sem agi í ríkisútgjöldum, skýr forgangsröðun í þágu grunnþjónustu, einfalt regluverk og gagnsæi tryggir atvinnulífinu súrefni til vaxtar og þjóðinni betri lífskjör til framtíðar.
Nú hefur ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins starfað í nær heilt ár. Ríkisstjórnin hefur lagt fram og fengið samþykkta sína fyrstu fjármálaáætlun og vonast nú eftir því að fá sín fyrstu fjárlög samþykkt.
Forsætisráðherra lofaði í kosningabaráttunni að hún skyldi negla niður vextina með „sleggju“ en sú sleggja er nú hvergi sjáanleg. Verðbólgan er enn viðvarandi og ekki útlit fyrir að hún nálgist markmið að neinu ráði í bráð, vaxtalækkunarferlið stöðvaðist af þeim sökum í maí. Seðlabankinn tilkynnti þó um vaxtalækkun á síðasta fundi peningastefnunefndar í nóvember en sú kom ekki til af góðu heldur vegna mikillar óvissu á lánamarkaði í kjölfar vaxtadóms Hæstaréttar sem hefur gert fólki enn erfiðara að eignast eigið heimili, sérstaklega ungu fólki.
Leiðin sem ríkisstjórnin virðist ætla að marka sér er leið stóraukinna ríkisútgjalda, hærri skatta, aukins hallareksturs og skuldsetningar. Kosningaloforð um að hækka ekki skatta á almenning og venjulegt fólk hafa verið þverbrotin undir formerkjum leiðréttingar, réttlætis, sanngirni, aðhalds á tekjuhlið og glufulokana.
Ríkisstjórnin tók sannanlega við góðu búi.
Á síðustu tveimur kjörtímabilum reyndi mjög á rekstur ríkisins vegna þeirra umfangsmiklu ytri áfalla sem dundu yfir íslenska þjóð, svo sem COVID-19, jarðhræringa á Reykjanesi og gjaldþrots flugfélagsins WOW. Þegar kemur að slíkum áföllum er eðlilegt að ríkissjóður geri það sem hægt er til að milda höggið á heimilin og fyrirtækin í landinu, um það hefur þingheimur ætíð verið sammála.
Það vekur athygli að í áliti meiri hluta fjárlaganefndar er í engu minnst á áhrif þeirra áfalla sem dunið hafa yfir. Beinn kostnaður ríkissjóðs af heimsfaraldri kórónuveiru var áætlaður 194,4 milljarðar kr. í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Njáls Trausta Friðbertssonar um útgjöld ríkissjóðs vegna efnahagsáfalla og náttúruvár síðastliðinn áratug. Líkt og bent er á í svari ráðuneytisins gefa þær tölur þó ekki skýra mynd af heildarkostnaði þar sem þær ná aðeins til beinna útgjalda og taka ekki til óbeinna áhrifa á ríkisfjármálin, svo sem samdráttar í efnahagsumsvifum eða kostnaðar sem kann að falla á sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Í heildina var beinn kostnaður ríkissjóðs vegna efnahagsáfalla og náttúruvár síðastliðinn áratug tæpir 338 milljarðar kr. og þá fyrst og fremst á árunum 2019–2024. Til samanburðar má nefna að í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar frá 15. desember 2020 vegna fjármálaáætlunar fyrir árin 2021–2025 var gert ráð fyrir að heimsfaraldur kórónuveiru myndi kosta ríkissjóð um 1.000 milljarða kr. á gildistíma fjármálaáætlunar. Það rættist sem betur fer úr stöðunni og ekki fór eins illa og reiknað var með. Meðal annars var áætlað að skuldahlutfall ríkissjóðs færi úr um 30% í 60% á tímabili þeirrar fjármálaáætlunar en raunin var að skuldahlutfallið hækkaði einungis um nokkur prósentustig.
Á bls. 4–5 í meirihlutaáliti fjárlaganefndar er fjallað um framleiðnivöxt á mann sl. áratug. Þar segir m.a: „Ein vísbending um framleiðniþróun er hagvöxtur á mann. Sérstaklega er vert að líta á hagvöxt á mann þar sem undanfarin ár hefur verið mikil fólksfjölgun á Íslandi, en árleg fólksfjölgun hefur sum undanfarin ár verið um og yfir 2%. Það er mun meiri fólksfjölgun en miðað við önnur vestræn ríki á sama tímabili og er það helst vegna fjölda aðfluttra af Evrópska efnahagssvæðinu til Íslands.“
Á umræddu tímabili 2015–2024 var umtalsverður hagvöxtur þrátt fyrir bakslag vegna kórónuveirufaraldurs, eða um 3,1% að meðaltali. Aftur á móti ef litið er til hagvaxtar á mann er meðaltalið mun lægra, um 1,2%, en fólksfjölgun á tímabilinu var talsverð eða að meðaltali um 1,9% á ári. Til samanburðar hefur annars staðar á Norðurlöndunum á sama tímabili einungis í Danmörku verið meiri hagvöxtur á mann. Var hann að meðaltali um 1,9% en hagvöxtur annarra Norðurlanda á mann var lægri eða um og undir 1%.“ Hagvöxtur á mann hefur verið með ágætum síðastliðinn áratug á Íslandi eða um 1,2%. Góður árangur danska lyfjafyrirtækisins Novo Nordisk hefur haft afgerandi áhrif á góðan árangur dansks efnahagslífs á þessu tímabili.
Það er mikilvægt að hafa í huga í pólitískri umræðu á Íslandi að meðalhagvöxtur á mann á tímabilinu 2015–2024 var 1,2% sem verður að teljast mjög gott miðað við þau áföll sem hafa gengið yfir íslenskt samfélag, sérstaklega á seinni hluta tímabilsins.
Þrátt fyrir öll þau áföll sem síðasta ríkisstjórn glímdi við skilaði hún engu að síður ríkissjóði af sér með litlum halla og með hallalausan ríkisrekstur í sjónmáli þótt slíkar fyrirætlanir krefðust áframhaldandi styrkrar efnahagsstjórnar. Þar að auki tókst að halda skuldasöfnun í skefjum en skuldir ríkissjóðs eru lágar í alþjóðlegum samanburði, gott lánshæfismat ríkissjóðs endurspeglar það meðal annars. Það er ljóst að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við góðu búi, enda virðist meiri hluti fjárlaganefndar taka undir þau sjónarmið í nefndaráliti sínu þrátt fyrir að ýmsir stjórnarliðar haldi öðru fram þegar það hentar þeim.
Auk þessa náði síðasta ríkisstjórn tökum á útgjöldum vegna hælisleitenda með nauðsynlegum og löngu tímabærum breytingum á útlendingalöggjöfinni, rauf kyrrstöðuna í orkumálum og beitti sér fyrir stakkaskiptum nýsköpunarumhverfisins á Íslandi.
Ríkissjóður á miklar eignir sem hægt er að losa um, án þess að ógna þjóðaröryggi og menningararfi, til þess að lækka skuldir og auka verðmætasköpun í landinu. Lífeyrissjóðakerfið er í allra fremstu röð. Miðað við tölur frá Seðlabanka Íslands og Eurostat eru skuldir heimilanna sem hlutfall af ráðstöfunartekjum lægstar á Íslandi af Norðurlöndunum. Fram kom á fundi fjárlaganefndar með fulltrúum Hagstofunnar að vanskil heimilanna hafi aldrei verið minni.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Ríkisstjórnin velur að skila halla af rekstri.
Síðustu ár hefur almenna reglan verið sú að afkoma ríkissjóðs verður betri þegar upp er staðið en fjárlög gerðu ráð fyrir. Það sama er uppi á teningunum þegar kemur að afkomu ársins 2025. Samkvæmt upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu í haust var gert ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs yrði neikvæð um 19 ma.kr. en ekki 63 ma.kr. eins og fjárlög gerðu ráð fyrir. Áætlanir fyrir árið hafa versnað síðan og munar nú 7 milljörðum kr. eftir að tekið er tillit til einskiptiskostnaðar vegna uppgjörs ÍL-sjóðs. Hver sem niðurstaðan verður á endanum er ljóst að halli á rekstri ríkissjóðs í ár er lítill og því hefði hæglega mátt skila hallalausum rekstri á næsta ári. Ríkisstjórnin kaus þess í stað að hækka skatta, auka útgjöld og bæta í hallann sem stefnir nú í rúma 25 milljarða kr., þ.e. ef veikar tekjuforsendur frumvarpsins standast. Áætlanir ríkisstjórnarinnar gera þess utan ekki ráð fyrir neinni niðurgreiðslu skulda og reiðir ríkisstjórnin sig á sveitarfélög og hagvöxt til lækkunar á skuldahlutfallinu. Áætlað er að ríkisútgjöld aukist um 143 milljarða kr. frá fjárlögum ársins 2025 en til samanburðar var gert ráð fyrir að útgjöld myndu aukast um 76 milljarða kr. milli áranna 2024 og 2025, og það á kosningaári. Ef ekki stendur til að skila hallalausum fjárlögum, greiða niður skuldir og draga úr skattbyrði nú, hvenær þá?
Stöðugleikareglan undir þrýstingi.
Í umsögn Samtaka atvinnulífsins um fjárlagafrumvarpið er dregin fram sú staðreynd að í meðförum þingsins taki fjárlögin jafnan breytingum þar sem þrýstingur er til aukinna útgjalda þótt tillögur til skattahækkana séu einnig stundum mildaðar eða jafnvel dregnar til baka. Ríkisstjórnin hafi að þessu sinni hins vegar samhliða innleiðingu stöðugleikareglu fullnýtt allt svigrúm til slíkra breytinga í meðförum þingsins.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Samtök atvinnulífsins vöruðu við því að litið yrði á 2% útgjaldavöxt sem grunnviðmið með þessum hætti þegar stöðugleikareglan var leidd í lög. Samtökin lögðu áherslu á að líta þyrfti á 2% útgjaldavöxt sem algjört hámark enda yrði sjálfbærni opinberra fjármála ekki tryggð ef svigrúmið yrði fullnýtt hverju sinni. Fara þyrfti sparlega með svigrúmið og nýta það þegar aðstæður gefi tilefni til. Stjórnvöld þurfi að hafa aga til þess að skila afgangi af rekstri þegar vel árar, greiða niður skuldir og draga úr skattbyrði. Undir þessi sjónarmið tekur 3. minni hluti.
Stöðugleikareglan er í grunninn ekkert annað en mjög veik útgjaldaregla eða skattahækkunarregla. Reglan býður fyrir það fyrsta upp á það að alltaf megi auka útgjöld svo lengi sem skattar eru hækkaðir á móti. Þá eru of margir útgjaldaliðir undanskildir reglunni, fleiri en gengur og gerist í þeim samanburðarlöndum sem hafa tekið upp útgjaldareglu í opinberum fjármálum. Í ofanálag eru áhyggjur fjármálaráðs að raungerast – að stöðugleikareglan yrði notuð sem gólf en ekki þak. Ríkisstjórnin hefur valið að fullnýta svigrúmið í sínum fyrstu fjárlögum.
Skemmst er að minnast þess að eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar var að brjóta lög um opinber fjármál, nr. 123/2015, og á það bent í nefndaráliti minni hluta fjárlaganefndar um fjármálaáætlun síðastliðið vor. Helstu annmarkar áætlunarinnar voru þeir að hún var lögð fram samhliða fjármálastefnu, ekki lágu fyrir upplýsingar um framvindu opinberra fjármála borið saman við markmið gildandi fjármálaáætlunar, sbr. 12. gr. laganna um birtingu ársfjórðungsskýrslu, byggt var á óraunhæfum sviðsmyndum um þróun efnahagsmála, boðuð veik og óljós „stöðugleikaregla“ með verulegum undanþágum, ekki var fjallað um þegar samþykkt útgjöld, engar upplýsingar lágu fyrir um markmið og mælikvarða í starfsemi málefnasviða, engar upplýsingar lágu fyrir um boðuð hagræðingaráform ríkisstjórnarinnar auk þess sem óljóst var, og er enn, hvernig fer með fjármögnun meiri háttar útgjalda eins og til dæmis varnarmála, sem ríkisstjórnin hefur þó boðað. Þessir annmarkar drógu verulega úr gagnsæi og trúverðugleika áætlunarinnar og setja hagstjórnarmarkmið ríkisstjórnarinnar í uppnám.
Í umsögn fjármálaráðs um fjármálaáætlun og í nefndaráliti minni hluta fjárlaganefndar um sama mál er ítarlega farið yfir það hvernig ríkisstjórnin fór ekki eftir lögum um opinber fjármál. Það er gríðarleg afturför í vinnubrögðum þingsins og framkvæmdarvaldsins.
Til þess að lög um opinber fjármál séu trúverðug þarf framkvæmdin að vera í samræmi við lögin. Við endurmat fjármála- og efnahagsráðuneytisins milli umræðna var bent á að samkvæmt stöðugleikareglunni væri svigrúmið nú aðeins 1,5 ma.kr. Meiri hluti fjárlaganefndar hefur síðan skilað inn sínum breytingartillögum en óljóst er hvort þær rúmist innan þeirra marka stöðugleikareglunnar. Ótækt er að ekki liggi fyrir mat á stöðugleikareglunni samhliða breytingartillögum meiri hlutans inn í 2. umræðu fjárlaga. Spurningunni um það hvort stöðugleikareglan standist þolraun fyrstu fjárlaga ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er ósvarað.
Meint hagræðing ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórnin hefur lýst yfir háleitum markmiðum um hagræðingu í ríkisrekstri og leitaði m.a. til almennings eftir tillögum þess efnis. Uppskeran er þó heldur rýr og niðurstaðan sú að boðaðar hagræðingaraðgerðir nema aðeins 0,9% af útgjöldum ríkissjóðs árið 2026 og er hluti aðgerðanna að fresta verkefnum og tæma varasjóði ráðuneyta sem varla getur talist til raunverulegrar hagræðingar.
Í umsögn Samtaka atvinnulífsins er réttilega bent á að boðað aðhald í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2026 er mun minna á alla mælikvarða en í fjárlögum fyrir árið 2025. Frá því umsögn samtakanna var lögð fram hefur verið bætt í útgjaldaáform umfram væntan tekjuauka og því má draga í efa að aðhald hafi aukist á nokkurn mælikvarða. Ríkisstjórnin áformar fjölmörg ný og aukin útgjöld sem eru talsvert meiri að umfangi en boðuð hagræðing. Ljóst er að allar yfirlýsingarnar um aðhald í ríkisrekstri eru orðin tóm. Ráðast þarf í viðamikla endurskoðun og úttekt á grunnútgjöldum ríkissjóðs til að ná þeirri hagræðingu í rekstri sem þörf er á.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Það hefði verið ákjósanlegt fyrir íslenska þjóð, heimilin og fyrirtækin í landinu að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefði kosið að fara þá leið sem bent er á í nefndaráliti þessu. Það væri hægt að samþykkja hallalaus fjárlög fyrir árið 2026, greiða niður skuldir og lækka skatta en því miður er það ekki stefna ríkisstjórnarinnar sem kýs heldur að bæta í útgjöldin og velta vandanum yfir á komandi kynslóðir.
Lánsfjárþörfin segir flest það sem segja þarf.
Breytingartillögur meiri hluta fjárlaganefndar gera ráð fyrir því að halli á rekstri ríkissjóðs verði 0,5% af vergri landsframleiðslu á næsta ári, eða 27,45 ma.kr. Sögulega er fyrirhugaður halli ekki mikill sem hlutfall af landsframleiðslu en áfram er gert ráð fyrir að aðhaldsstig ríkisfjármála sé hlutlaust. Áhrifin af hallarekstri á hagkerfið kunna þó að vera meiri en heildarafkoman ein og sér gefur til kynna, þar sem ekki er tekið tillit til þess hvenær og hvort greiðslur eru inntar af hendi, lánveitinga til ríkisaðila né liða sem ekki koma fram í rekstrarreikningi. Lánsfjárjöfnuðurinn getur þannig gefið gleggri mynd enda endurspeglar hann þörf ríkissjóðs á lántöku án þess að til komi breytingar á handbæru fé – raunveruleg afkoma ríkissjóðs í reynd.
Lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs stefnir nú í að verða neikvæður um 82 ma.kr. á næsta ári, gengið út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir. Sé horft fram hjá stórum einskiptisliðum, þ.e. uppgjöri á ÍL-sjóði, sölunni á Íslandsbanka og stofnun Þórkötlu, er það bæði lakari niðurstaða en horfur eru á í ár og það sem gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun fyrir árið 2026 sem samþykkt var í sumar. Það er auk þess yfir 20 ma.kr. lakari niðurstaða en árið 2024 þegar ríkissjóður tók á sig talsverðan kostnað vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og stofnunar fasteignafélagsins Þórkötlu. Má því ljóst vera að undirliggjandi afkoma ríkissjóðs er á rangri leið.
Skattar hækkaðir aftur og aftur.
Þrátt fyrir ítrekuð loforð um að skattar verði ekki hækkaðir á almenning leggur ríkisstjórnin nú til verulegar skattahækkanir, ýmist á almenning eða fyrirtæki í landinu. Skattahækkanirnar eru raktar á bls. 121 í fjárlagafrumvarpinu og nema samtals 27,9 ma.kr. Til stendur að hækka skatta á ökutæki og eldsneyti, afnema samsköttun hjóna, leggja kílómetragjald á öll ökutæki, hækka jöfnunargjald raforku og hækka krónutölugjöld um 3,7%. Ef frumvarpið nær fram að ganga verður Ísland fyrsta landið í heiminum til að innleiða kílómetragjald. Það er gert með nær engum fyrirvara og mun skaða samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu verulega. Þannig mun verð á leigu á t.d. Yaris-bifreið hækka um 30–35% að vetri og 10–15% að sumri. Samkeppnislönd okkar fagna því á meðan innlend ferðaþjónustufyrirtæki borga brúsann.
En ríkisstjórnin taldi þessi áform ekki ganga nógu langt og bætti enn í þegar hún kynnti fyrsta húsnæðispakka sinn nú í haust. Þegar rýnt er í pakkann kemur í ljós að tillögurnar fela í sér skattahækkanir á leigu sem nema 2,3 ma.kr. Sú skattahækkun mun skila sér beint til leigjenda í formi hærra leiguverðs. Einnig hefur ríkisstjórnin mælt fyrir frumvarpi sem mun hækka erfðafjárskatt verulega og auka kostnað erfingja við skipti á búi. Þar að auki hefur ríkisstjórnin boðað skatt á streymisveitur og innheimtu náttúru- og innviðagjalds á ferðamannastöðum í eigu ríkisins.
Tafla 4.2. Aðgerðir og helstu skattabreytingar.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Gríðarlegar vörugjaldshækkanir.
Ekki nóg með að boðaðar séu skattahækkanir á vinnandi fólk heldur inniheldur fjárlagafrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra skattahækkun á ökutæki sem efnahags- og viðskiptanefnd var falið að útfæra en hækkunin nemur um 7,5 ma.kr. í formi hækkunar á vörugjöldum á bifreiðar. Það kom engum á óvart nema ríkisstjórninni að almenningur og fyrirtæki byrjuðu að hamstra bíla nú fyrir áramótin í kjölfar fregnanna. Kaupin munu því, eðli máls samkvæmt, ekki eiga sér stað á næsta ári á stórhækkuðu verði í boði ríkisstjórnarinnar. Það þýðir að skattahækkunin sem ríkisstjórnin áformar að taka inn á næsta ári í formi hærri vörugjalda á bifreiðar mun ekki skila sér.
Þriðji minni hluti hefur ítrekað kallað eftir endurmati vegna þeirrar stöðu sem upp er komin og sömuleiðis forsendna ráðuneytisins að baki tekjum ríkissjóðs. Ráðuneytið hefur ekki orðið við þeim beiðnum.
Til glöggvunar er rétt að draga fram hvaða afleiðingar fyrirhuguð hækkun vörugjalda hefur haft í för með sér nú þegar:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tölurnar í framangreindri töflu eru fyrir október- og nóvembermánuð en tölur fyrir desember liggja ekki fyrir fyrr en um áramót en ljóst er að fyrirhuguð skattahækkun hefur þegar haft áhrif á hegðun bæði fyrirtækja og einstaklinga sem kaupa nú eins mikið og hægt er af bifreiðum fyrir áramót. Það mun þýða minni sölu og þar af leiðandi minni tekjur fyrir ríkissjóð á næsta ári.
Gögnin leiða einnig skýrt í ljós að fyrirhuguð breyting ríkisstjórnarinnar á vörugjöldum vinnur þvert á markmið hennar um að flýta orkuskiptum. Bílaleigur hafa keypt 535% fleiri bensín- og dísilbíla í nóvember en á sama tíma í fyrra og 163% fleiri bensín- og dísilbíla í október en í fyrra.
Enn bólar ekkert á útgjöldum til varnarmála.
Ríkisstjórnin hefur tilkynnt að auka eigi framlög til varnarmála upp í 1,5% af vergri landsframleiðslu. Það jafngildir útgjöldum upp á 77 ma.kr. á ári. Töluvert vantar upp á að 1,5% markmiðinu verði náð en framlög til varnarmála námu um 7 ma.kr. árið 2025.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir 3. minni hluta hefur ekki komið fram hvernig ríkisstjórnin hyggst ná fyrrgreindu markmiði. Samkvæmt svörum utanríkisráðuneytisins er nú unnið að nánari greiningu á fyrirliggjandi útgjöldum. „Þau útgjöld mynda þar með grunnramma ríkisútgjalda er falla undir varnartengd útgjöld samanber viðmið sem Atlantshafsbandalagið hefur lagt fram. Áætlað er að rammi þessi sé að minnsta kosti 24 ma.kr.“ Af svörum ráðuneytisins er ljóst að um er að ræða borgarleg verkefni en hvorki er hægt að greina í frumvarpinu né svörum ráðuneytisins hvernig ná eigi settum markmiðum eða hvað það er sem fellur undir varnartengd verkefni.
Í þessu samhengi vekur það ekki síður upp áleitnar spurningar að stjórnarmeirihlutinn hafi samþykkt að undanskilja varnartengd verkefni frá hinni svokölluðu stöðugleikareglu. Reglan er veik fyrir þar sem undanskildir liðir eru fjölmargir en það veikir hana enn frekar að ýmis verkefni, sem hafa ekki verið skilgreind sem varnartengd verkefni hingað til, verði undanskilin seinna meir.
Breytingar á milli umræðna.
Ný þjóðhagsspá leit dagsins ljós 14. nóvember síðastliðinn og byggist endurmat frumvarpsins að mestu á þeim forsendum. Í þeirri spá er hagvöxtur tekinn niður fyrir bæði árin 2025 og 2026 en á móti er spáð meiri verðbólgu en áður. Útflutningsverðmæti aukast ekkert á næsta ári og áföll á borð við gjaldþrot flugfélagsins Play, stöðvun reksturs á PCC á Bakka, bilun hjá Norðuráli og minni afla en áætlað hafði verið hafa neikvæð áhrif. Til viðbótar við þau neikvæðu áföll sem dunið hafa yfir að undanförnu munu fyrirhugaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar skaða samkeppnishæfni útflutningsgreina.
Ríkisútgjöld aukast í meðförum ríkisstjórnarflokkanna á milli umræðna, hallinn eykst og skattar eru hækkaðir enn frekar, svo sem með hærri skatti á leigutekjur og breyttum forsendum að baki álagningu erfðafjárskatts.
Samhliða nýrri þjóðhagsspá gerir ríkisstjórnin ráð fyrir að allar tegundir skatttekna hækki þrátt fyrir lægri hagvöxt, að undanskildum tekjuskatti einstaklinga sem lækkar lítillega. Skýringin er sögð vera sú að hækkunin komi til vegna meiri verðbólgu þrátt fyrir minni hagvöxt. Sérstaka athygli vekur að ríkisstjórnin telur að tekjuskattur lögaðila komi til með að skila meiru en gert var ráð fyrir við framlagningu frumvarpsins í september þrátt fyrir að útlit sé fyrir enga aukningu útflutningsverðmæta, lægri hagvaxtarspá og áföll sem áður hefur verið minnst á.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Umfangsmiklar breytingar á erfðafjárskatti.
Gert er ráð fyrir að tekjur ríkisins af erfðafjárskatti hækki um 2,1 ma.kr. á milli 1. og 2. umræðu um fjárlagafrumvarpið. Þær upplýsingar fengust í nefndinni að hækkunin kæmi til vegna endurmats. Ekki sé gert ráð fyrir auknum tekjum vegna boðaðra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpi um breytingu á lögum um skatta, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.), 257. máli á þskj. 343 á yfirstandandi löggjafarþingi.
Umsagnaraðilar hafa þó bent á að um sé að ræða mikla skattahækkun þrátt fyrir að skattprósentan sjálf standi óbreytt. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að mat á virði lands og jarða verði gert upp á „markaðsvirði“ í stað fasteignamats. Þessi breyting er flókin, ógagnsæ og hækkar skatta á eftirlifendur, einkum og sér í lagi á erfingja íslenskra bænda, án þess að raunveruleg verðmæti eða fjármagn sé til staðar til að standa straum af greiðslu skattsins.
Án nokkurs vafa verður þessi breyting til þess að erfingjar þurfi að selja jarðir og lönd í stað þess að halda áfram búskap og greiða fullan skatt af sölunni (22%) ofan á erfðafjárskatt (10%). Það sér hver maður að hér er um mikla skattahækkun að ræða. Að auki gerir umrætt frumvarp ráð fyrir að túlkun Skattsins í máli sem tapaðist fyrir yfirskattanefnd verði að lögum, þ.e. að hækka eigi verðmæti óskráðra félaga við álagningu erfðafjárskatts með því að færa afskrifaðar fasteignir þeirra til fasteignamats. Umsagnaraðilar hafa bent á hversu gölluð þessi grein frumvarpsins er en t.d. er ekki tekið tillit til tekjuskattsskuldbindinga til frádráttar o.fl.
Fari frumvarpið í gegn óbreytt mun það skapa óvissu í skattframkvæmd og auka kostnað viðkomandi aðila. Það virðist sem ríkisstjórnin hafi í óðagoti reynt að finna allar mögulegar leiðir til að hækka skatta en ekki hugað að framkvæmdinni. Í nefndaráliti þessu er ekki farið yfir óskýrleika og kostnað erfingja við fyrirhugaða breytingu en gerðar alvarlegar athugasemdir við það að fjárlaganefnd, og almenningur í landinu, sé ekki upplýst um þessa miklu skattahækkun og fyrirhuguð áhrif hennar.
Leiðin að hallalausum fjárlögum.
Þriðji minni hluti telur að nú sé rétti tíminn til að taka til í ríkisrekstrinum, loka fjárlagagatinu, greiða niður skuldir, hagræða í rekstri og lækka skatta á almenning og fyrirtæki í landinu. Slíkar aðgerðir styðja við verðmætasköpun og velferð í landinu, auk þess sem með þeim er unnt að styðja við peningastefnu, draga úr verðbólguþrýstingi og skapa forsendur fyrir lægri vöxtum. Því leggur 3. minni hluti til nokkrar breytingar á fjárlagafrumvarpinu sem felast í aukinni hagræðingu, sameiningu stofnana, að dregið verði úr umfangi ýmissa verkefna eða þau lögð af og að stefnt verði að vaxtasparnaði með sölu ríkiseigna. Jafnframt leggur 3. minni hluti til að fallið verði frá þeim umfangsmiklu skattahækkunum sem ríkisstjórnin boðar í frumvarpi til fjárlaga, en gerð er nánari grein fyrir tillögunum hér í framhaldinu.
Almennar hagræðingartillögur.
Þriðji minni hluti er sannfærður um að umtalsverð hagræðing geti náðst í rekstri ríkisins með því að ráðast í að taka betur utan um almennan rekstur ríkisins.
Lykillinn að því er að ná betri yfirsýn yfir reksturinn, t.d. með því að innleiða nýtt greiningartól, Ráðhildi, í stjórnun stofnana og ráðuneyta. Með Ráðhildi er hægt að sameina öll lykilgögn um fjármál ríkisstofnana og ráðuneyta á einum stað. Tólið tengir saman gögn úr bókhaldskerfum, mannauðskerfum og eignaskrám, og skapar þannig heildstæða mynd af rekstri hins opinbera í rauntíma. Með því að sameina þessi gögn skapar Ráðhildur grundvöll fyrir faglega greiningu, samanburð og ákvörðunartöku sem styrkir stjórnvöld til að taka markvissar og gagnadrifnar ákvarðanir. Notkun Ráðhildar varpar ljósi á tækifæri til betri nýtingar fasta- og veltufjármuna, gefur stjórnendum yfirlit yfir kostnað við hvert einasta verkefni og gerir þeim kleift að mæla skilvirkni starfsfólks og koma auga á tækifæri til að fara betur með fé. Greiningartólið varð til þegar unnið var að sameiningu stofnana í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og er reynslan sú að það skili miklum árangri.
Til viðbótar við almennt aðhald á rekstri aðalskrifstofa ráðuneyta og í utanríkisþjónustunni eru tækifæri til bættrar stýringar á lausafé en þörf er á að bregðast við aukinni útgáfu ríkisvíxla með því að breyta um áherslur en aðgerðin mun skila verulegri hagræðingu, sérstaklega til lengri tíma litið.
Loks leggur 3. minni hluti áherslu á að lög um opinbera starfsmenn verði færð að reglum almenna vinnumarkaðarins. Í núverandi mynd stendur lagaramminn um opinbera starfsmenn gegn eðlilegum sveigjanleika í rekstri ríkisins og vinnur gegn því að stjórnendur geti nýtt skattfé með sem árangursríkustum hætti. Færa má rök fyrir því að ramminn dragi úr framleiðni með því að vinna gegn skilvirkri nýtingu á vinnuafli. Gera má ráð fyrir að talsvert hagræði geti skapast í rekstri hins opinbera með breytingum á lögum um opinbera starfsmenn, sem dæmi má nefna að í áformum fjármála- og efnahagsráðherra um afnám áminningarskyldu er m.a. bent á að slíkt dragi úr þeim kostnaði sem fellur á ríkið vegna mála sem upp hafi komið vegna áminninga og uppsagna.
Alls gera þessar tillögur 3. minni hluta ráð fyrir 23,6 ma.kr. sparnaði í rekstri ríkisins.
* 3,5% hagræðingarkrafa á ríkisstofnanir – innleiðing á Ráðhildi.
* 7,5% aðhald á aðalskrifstofum ráðuneyta.
* 25% aðhald í utanríkisþjónustunni.
* Ráðstöfunarfé ráðherra lagt af.
* Lög um opinbera starfsmenn samræmd við almennan vinnumarkað.
* Bætt lausafjárstýring skilar lægri vaxtagjöldum.
Stofnanir ríkisins margar of litlar eða barns síns tíma.
Þriðji minni hluti telur ljóst að umtalsverð hagræðing geti náðst í rekstri ríkisins með því að sameina stofnanir. Mikilvægt er að vandað sé til verka við slíka vinnu og tryggt að þjónusta skerðist ekki á sama tíma og hagræði eykst í rekstri stofnana.
Þriðji minni hluti leggur til að sem fyrsta skref verði ráðist í sameiningu héraðsdómstóla, stofnana á sviði borgaralegra réttinda og ýmissa stofnana á sviði lista. Að auki er ljóst að unnt er að fækka stofnunum ríkisins eða minnka umfang þeirra eftir atvikum. Verkefni ýmissa stofnana eru ekki hluti af nauðsynlegri grunnþjónustu hins opinbera eða hið minnsta þess eðlis að þau megi færa til annarra stofnana til aukins hagræðis og bættrar þjónustu við landsmenn.
Neytendastofa er bæði fámenn og lítil stofnun. Nauðsynleg verkefni hennar má færa til annarra án nokkurra vandkvæða og spara fastan kostnað við rekstur stofnunarinnar í dag. Þriðji minni hluti leggur því til að Neytendastofa verði lögð niður. Þá sinna sífellt fleiri einkaaðilar skógrækt á víð og dreif um landið og því hefur þörfin á aðkomu ríkisins í þeim efnum dregist verulega saman, er því lagt til að framlög til Lands og skógar verði skorin niður um þriðjung. Starfsemi umboðsmanns skuldara, sem komið var á laggirnar í kjölfar fjármálahrunsins, er barn síns tíma og rétt að hlutverk stofnunarinnar sé endurskoðað. Vandséð er að starfsemi hennar falli undir nauðsynlega grunnstarfsemi ríkisins. Því er lagt til að framlög til hennar verði skorin niður um 20% að þessu sinni. Loks leggur 3. minni hluti til að framlög til Samkeppniseftirlitsins verði skorin niður um helming. Ljóst er að tækifæri eru til bættrar nýtingar fjármuna innan eftirlitsins. Skýrasta dæmi þess er fjöldi þeirra mála sem fara í fasa tvö hér á landi í samanburði við nágrannalönd. Fækka þarf þeim málum með skýrari framkvæmd og verklagi á borð við það sem þekkist í samanburðarlöndum. Þá er ljóst að hækka þarf veltumörk tilkynningarskyldra samruna. Tækifærin til skilvirkara eftirlits, til hagsbóta fyrir neytendur og fyrirtæki landsins, þarf að grípa og nýta.
Að síðustu gerir 3. minni hluti það að tillögu sinni að framlög til Ríkisútvarpsins ohf. verði skorin niður um helming á sama tíma og RÚV verði aftur fært á fjárlög. Starfsemi RÚV hefur blásið út síðustu áratugi og tekur til sín allt súrefni á fjölmiðlamarkaði. RÚV ætti að einbeita sér að grunnþjónustu við landsmenn en til þess þarf hvorki fjöldann allan af hlaðvörpum né útvarpsrásum, svo dæmi séu tekin.
Alls gera tillögur 3. minni hluta er varða starfsemi stofnana ráð fyrir 6,1 ma.kr. sparnaði í rekstri ríkisins.
* Neytendastofa lögð niður.
* Framlög til Lands & skógar skorin niður um 33%.
* Umboðsmaður skuldara lagður niður.
* Framlög til Samkeppniseftirlitsins skorin niður um 50%.
* Framlög til Ríkisútvarpsins skorin niður um 50% og það fært á fjárlög á ný.
* Héraðsdómstólar sameinaðir.
* Yfirbygging ýmissa listastofnana sameinuð.
* Stofnanir á sviði borgaralegra réttinda sameinaðar.
Aðhald í rekstri mögulegt víða.
Umtalsverð hagræðing getur náðst í rekstri ríkisins með því að leggja niður verkefni og/eða minnka umfang þeirra þar sem það á við. Tillögur 3. minni hluta þess efnis eru eftirfarandi og gera ráð fyrir 15,5 ma.kr. sparnaði í rekstri ríkisins:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Sala ríkiseigna til niðurgreiðslu skulda skilar umfangsmiklum vaxtasparnaði.
Þriðji minni hluti telur ljóst að mikill ávinningur sé í því fólginn að selja eignir og verja söluandvirðinu til niðurgreiðslu skulda.
Samkvæmt upplýsingum frá Framkvæmdasýslunni telur fasteignasafn ríkisins um 530.000 fermetra í eignum víða um land. Stefnt skal að því að selja allar fasteignir sem ekki eru mikilvægar út frá menningarsögulegu hlutverki eða vegna öryggis- og varnarsjónarmiða í opnu söluferli með stöðluðum fimm til tíu ára leigusamningum. Ef gert er ráð fyrir að þetta séu 104.000 seljanlegir fermetrar er vænt söluverð 53 ma.kr. Sala fasteigna og leiga þeirra af sérhæfðum fasteignafélögum mun bæta viðhald og ásýnd mannvirkja, auka sveigjanleika í rekstri ríkisstofnana sem og hvetja til aðhalds. Varðandi áform um sölu Isavia er rétt að árétt að flugbrautakerfi, akstursbrautir og flughlöð verða skilin frá og verða ekki hluti af söluandlaginu.
Alls gera tillögur 3. minna hluta ráð fyrir sölu eigna fyrir rúma 420 ma.kr. sem skilað gætu ríkissjóði allt að 30 ma.kr. í vaxtasparnaði sé þeim varið til niðurgreiðslu skulda. Telur 3. minni hluti raunhæft að miða við að helmingur þessa geti skilað sér strax á næsta ári. Athygli er vakin á því að hér er ekki miðað við mögulegt markaðsvirði eignanna heldur bókfært virði þeirra.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Skattar og gjöld.
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar byggist á því að auka skatta og álögur verulega. Stóraukin skattheimta á fjölskyldurnar í landinu og fyrirtæki mun ekki leiða til aukins árangurs við efnahagsstjórn landsins, þvert á móti. Þriðji minni hluti telur að einfalt skattkerfi og lágir skattar séu grunnforsenda sterks efnahagsumhverfis. Skattkerfið á ekki að draga úr einkaframtaki fólks og fyrirtækja og mikilvægt að til staðar séu skattalegir hvatar sem ýta undir nýsköpun. Fjölskyldurnar í landinu eiga ekki að þurfa að búa við þá gríðarlegu skattbyrði sem ríkisstjórnin boðar í frumvarpinu. Sama gildir um fyrirtækin í landinu en atvinnulíf á Íslandi má ekki búa við lakari skilyrði en tíðkast í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Þriðji minni hluti telur ekki ráðlagt að ráðist verði í þær skattahækkanir sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar nú þegar hægja tekur á í hagkerfinu og ýmis teikn á lofti um alvarlega stöðu helstu atvinnugreina þjóðarinnar. Þriðji minni hluti leggur því til eftirfarandi:
* Krónutölugjöld standi í stað og verði ekki hækkuð milli ára.
* Hætt verði við hækkun vörugjalda á ökutæki.
* Kílómetragjald verði ekki tekið upp á bensín- og dísilbíla.
* Samnýting hjóna og sambúðaraðila á skattþrepum verði áfram heimil sem og nýting á ónýttum persónuafslætti til greiðslu fjármagnstekjuskatts.
* Skattur á leigutekjur verði ekki hækkaður og skattlagningu við sölu fasteigna verði ekki breytt.
* Séreignarsparnaðarleiðin verði fest í sessi en auk þess þarf að hækka fjárhæðarmörk og lengja heimilaðan nýtingartíma.
Auk þess verði ráðist í viðbótarskattalækkanir enda sé rými til þess samhliða þeim hagræðingartillögum sem lagðar eru til í áliti þessu. Breytingunum er ætlað að styðja við fjölskyldur og fyrirtæki, uppbyggingu húsnæðis og auðvelda fólki að eignast eigið heimili.
* Tekjuskattur 16–18 ára verði lagður af.
* Útvarpsgjald verði lækkað um helming.
* Kolefnisgjald verði lækkað um þriðjung.
* Endurgreiðsla virðisaukaskatts á byggingarstað hækkuð í 60%.
* Afnám stimpilgjalds af kaupum einstaklinga á íbúðarhúsnæði.
Til viðbótar verði veðmálastarfsemi gefin frjáls og skattar innheimtir af starfseminni líkt og annarri starfsemi. Á móti leggur 3. minni hluti til að helmingur þeirra tekna sem renna í ríkissjóð vegna þessa skuli fara í eflingu meðferðarúrræða og forvarna.
Samtals gera tillögur 3. minni hluta ráð fyrir 31.498 m.kr. skattalækkunum til handa heimilum og fyrirtækjum í landinu. Skattalækkanir þessar mynda aðeins fyrsta skrefið í skattalækkunartillögum Sjálfstæðisflokksins sem kynntar verða á næstu misserum.
Vel mögulegt að skila afgangi af rekstri ríkissjóðs.
Af öllu framangreindu er ljóst að við þær aðstæður sem voru til staðar í upphafi þessa kjörtímabils var kjörið tækifæri til að stefna að því að ná fram hallalausum fjárlögum. Engin ástæða er til þess að leggja þá gríðarlega auknu skattbyrði á almenning og fyrirtækin í landinu sem ríkisstjórnarflokkarnir ætla sér að ná fram þvert á gefin loforð. Rétta leiðin nú er að greiða niður skuldir, lækka skatta og hagræða í ríkisrekstri. Samanlagt skila tillögur 3. minni hluta rekstri ríkissjóðs réttu megin við núllið.
Þriðji minni hluti telur mikilvægt að verja fjölskyldurnar í landinu fyrir íþyngjandi skattbyrði en það markmið næst m.a. fram með því að falla frá skattpíningarstefnu ríkisstjórnarflokkanna sem mun birtast í hækkuðu verði bifreiða, hækkun leiguverðs, hækkun kílómetragjalds á bifreiðar og hækkun krónutölugjalda. Þá telur þriðji minni hluti ótækt að vega að fjölskylduforminu með þeim áformum að afnema samsköttun hjóna og sambúðarfólks og telur rétt að festa séreignasparnaðarleiðina, sem Sjálfstæðisflokkurinn innleiddi, í sessi og hækka bæði fjárhæðamörk og lengja í nýtingartímanum. Þessar tillögur munu nýtast nær öllum fjölskyldum landsins. Að auki er sanngirnismál að börn njóti skattfrelsis að 18 ára aldri. Lækkun útvarpsgjalds mun koma bæði einstaklingum og fyrirtækjum til góða sem og tillögur 3. minni hluta um lækkun kolefnisgjalds. Skattalegur frádráttur vegna heimilishjálpar mun hafa þau áhrif að auka skattskil og bæta hag þeirra sem vinna við slík störf. Gríðarlega mikilvægt er að stuðla að lækkun húsnæðisverðs og tryggja að sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið en tillaga um hækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts á byggingarstað mun hafa mikil áhrif þar á.
Alþingi, 2. desember 2025.
| Guðlaugur Þór Þórðarson, frsm. |
Njáll Trausti Friðbertsson. |