Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 466  —  1. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2026.

Frá 3. minni hluta fjárlaganefndar (GÞÞ, NTF).


     1.      Við 6. gr. Nýir liðir:
         5.15    Að selja eignarhlut ríkisins í Landsbankanum hf.    
         5.16    Að selja allt að 20% af fasteignum í eigu Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna.
         5.17    Að selja ÁTVR.
         5.18    Að selja allar fasteignir í eigu Íslandspósts ohf.
         5.19    Að selja allt að 10% af jarðnæði í eigu ríkisins. Ráðherra verði falið að gera úttekt á því hvaða eignir er fýsilegt að selja og afla síðan heimildar Alþingis fyrir sölunni.
         5.20    Að selja hlutafé ríkissjóðs í Endurvinnslunni hf.
         5.21    Að selja 49% af hlutafé ríkisins í ISAVIA ohf.
         5.22    Að selja Nýsköpunarsjóðinn Kríu.
     2.      Við 6. gr. Liður 7.8 falli brott.

Greinargerð.

    Í 2. tölul. er lagt til að felld verði brott heimild ráðherra til að afsala, í samráði við utanríkisráðuneyti, flugbrautakerfi, tengdu akbrautakerfi og flughlöðum á Keflavíkurflugvelli til Isavia ohf. Með tilliti til þess hvernig heimsmálin hafa þróast á undanförnum árum telur 3. minni hluti eðlilegt að heimildin falli brott. Hér er um grunninnviði að ræða sem varða varnar- og öryggismál þjóðarinnar.