Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 471  —  327. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um ótímabundið dvalarleyfi.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Hversu margir útlendingar hafa fengið ótímabundið dvalarleyfi á grundvelli 58. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sl. tíu ár?
     2.      Hversu margir útlendingar hafa fengið ótímabundið dvalarleyfi á grundvelli 3. mgr. 58. gr. sömu laga sl. tíu ár, flokkað eftir stafliðum ákvæðisins?
     3.      Hversu oft hefur Útlendingastofnun afturkallað dvalarleyfi eða ótímabundið dvalarleyfi á grundvelli 59. gr. sömu laga sl. tíu ár?


Skriflegt svar óskast.