Ferill 248. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 472  —  248. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.

     1.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
    
Einn upplýsingafulltrúi og einn verkefnastjóri samskipta eru starfandi í ráðuneytinu.
    Upplýsingafulltrúi sér um miðlun upplýsinga í gegnum fréttir, vef og samfélagsmiðla, hefur umsjón með kynningarefni, fjölmiðlafundum og stærri viðburðum á vegum ráðuneytisins, svo sem Umhverfisþingi, umhverfisverðlaunum ráðuneytisins o.fl., og er tengiliður við félagasamtök sem eru í reglubundnu samstarfi við ráðuneytið. Upplýsingafulltrúi tekur þátt í þróun stafrænna mælaborða og kynningu á árangri í gegnum vefinn, t.d. CO2-vefinn, fylgir eftir innri upplýsingamiðlun og ber ábyrgð á útgefnu efni á vegum ráðuneytisins.
    Verkefnastjóri samskipta sinnir greiningum og samskiptum við hag- og fagaðila, samskiptaáætlunum, stefnu og miðlun mikilvægra eða tímaviðkvæmra upplýsinga sem snerta faglega þróun innan málaflokka og er ráðgefandi gagnvart starfsfólki, ráðherra og yfirstjórn er kemur að skilvirkri framsetningu flókinna viðfangsefna. Auk þess styður verkefnastjóri við krefjandi samstarf og samskipti ólíkra hagsmunaaðila og hópa og tryggir rétta aðkomu hag- og fagaðila að starfi ráðuneytisins í gegnum samráð og verkefni.
    Upplýsingafulltrúi og verkefnastjóri vinna náið saman svo ráðuneytið sé í stakk búið til að takast á við stór mál sem kalla á mikla upplýsingagjöf og samskipti við fjölda aðila. Ráðuneytið leggur áherslu á að bregðast fljótt og vel við upplýsingabeiðnum og fyrirspurnum og er þetta liður í að tryggja slíka þjónustu.
                                  
     2.      Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
    Hjá Íslenskum orkurannsóknum starfar ekki sérstakur upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri en lítill hluti af starfi sérfræðings á rekstrar- og mannauðssviði hjá stofnuninni felst í því að sinna verkefnum því tengdu, svo sem viðburðahaldi og skráningu frétta á vef- og samfélagsmiðla.
    Hjá Landi og skógi starfar einn kynningarstjóri/upplýsingafulltrúi.
    Hjá Minjastofnun Íslands er ekki starfandi sérstakur upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri.
    Hjá Náttúrufræðistofnun er ekki starfandi sérstakur upplýsingafulltrúi heldur er það verkefni í höndum hinna ýmsu sérfræðinga stofnunarinnar en forstjóri ber ábyrgð á samskiptamálum stofnunarinnar.
    Hjá Náttúruverndarstofnun er ekki starfandi upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri.
    Enginn upplýsingafulltrúi eða samskiptastjóri starfar hjá Umhverfis- og orkustofnun. Hins vegar er stofnunin með einn starfsmann í hlutverki sérfræðings í miðlun.
    Hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála starfar hvorki upplýsingafulltrúi né samskiptastjóri.
    Hjá Úrvinnslusjóði er starfandi sérfræðingur sem sinnir bæði starfi samskiptastjóra og lögfræðings.
    Hjá Veðurstofu Íslands starfar einn samskiptastjóri. Auk þess er einn starfsmaður sem er sérfræðingur í kynningum og miðlun. Samskiptastjórnun heyrir undir skrifstofu forstjóra.

     3.      Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.
    Nei, engin upplýsinga- eða samskiptadeild er starfrækt í ráðuneytinu eða í stofnunum þess.