Ferill 329. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 474 — 329. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um að hefja framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi.
Flm.: Þorgrímur Sigmundsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Karl Gauti Hjaltason.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að tryggja að framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi hefjist strax í samræmi við gildandi vegáætlun.
Greinargerð.
Sveitarfélagið Múlaþing varð til árið 2020 þegar sveitarfélögin Djúpavogshreppur, Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstaður og Borgarfjarðarhreppur voru sameinuð. Talsverður þrýstingur hafði lengi verið uppi af hálfu stjórnvalda á Íslandi um að fækka einingum á stjórnsýslustigi og ýmislegt talið upp til að auka áhuga sveitarstjórna á því að stíga slík skref.
Undir þessum þrýstingi varð Múlaþing til. Bættar samgöngur í sveitarfélaginu voru ein af forsendum sameiningar og þar var Axarvegur settur á oddinn. Þjóðvegur nr. 939, Axarvegur, liggur um samnefnda heiði, Öxi, og er hann tenging frá hringveginum í Berufirði allt til Egilsstaða. Miðhluti vegarins yfir heiðina er brattur og þröngur og liggur 530–540 m yfir sjávarmáli. Til samanburðar liggur vegur yfir Hellisheiði milli höfuðborgarsvæðisins og Hveragerðis rúma 370 m yfir sjávarmáli og vegur yfir Holtavörðuheiði rúma 400 m yfir sjávarmáli. Umferð yfir Öxi er 600–800 bílar á dag. Er það sama umferð og um þjóðveg 1 um Breiðdalsvík, Stöðvarfjörð og Fáskrúðsfjörð.
Í febrúar árið 2022 bauð Vegagerðin til kynningarfundar þar sem kynntar voru áætlanir um útboð á vegi yfir Öxi. Var verkið kynnt sem „samvinnuverkefni“. Í 2. gr. laga um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir, nr. 80/2020, er orðið „samvinnuverkefni“ skilgreint svo: „Verkefni þar sem einkaaðili annast fjármögnun opinbers mannvirkis, í heild eða að hluta, eða tekur með öðrum hætti áhættu af gerð og rekstri þess, eftir atvikum með heimild til gjaldtöku fyrir notkun mannvirkisins á rekstrartíma.“ Í kynningargögnum Vegagerðarinnar kemur jafnframt fram að gert sé ráð fyrir því að lokaútboði verði skilað í janúar árið 2023.
Orð skulu standa. Tillaga þessi er lögð fram til að knýja á um að ríkisstjórnin standi við þær forsendur sem lágu til grundvallar sameiningu sveitarfélaga árið 2020. Þá er mikilvægt að innviðaráðherra grafi ekki undan gildandi samgönguáætlun með því að fara gegn henni.
Við skoðun á gögnum um fjölda ökutækja á sólarhring virðist vera meiri umferð yfir Öxi en marga aðra fjallvegi sem þó eru lagðir bundnu slitlagi og flestir í samræmi við nútímakröfur.
Þjóðvegurinn yfir Öxi hefur verið með allra versta móti það sem af er árinu 2025. Viðhaldi á þessum fjölfarna 18 km langa vegi hefur um árabil verið svo ábótavant að hann telst vart örugg samgönguleið nú á dögum. Umferð um Axarveg er orðin mikil. Í september árið 2025 þurfti að loka veginum tímabundið vegna þess að hann var orðinn afar slæmur og þoldi umferðina ekki.
Sumarumferð yfir Öxi hefur aldrei verið meiri en í ár. Um nítján daga skeið í ágúst var umferð um veginn meiri en um þjóðveg 1 og það þrátt fyrir að Axarvegur hafi verið í afar slæmu ástandi stóran hluta sumarsins. Gera má ráð fyrir því að á hverjum degi fari milli 1.200 og 2.400 manns yfir Öxi sem þýðir að milli 36.000 og 72.000 manns ferðast um stórhættulegan veg í hverjum mánuði.
Samkvæmt teljara Vegagerðarinnar var umferð yfir Öxi 711 bílar á dag í ágúst árið 2025 en 693 bílar dag hvern um þjóðveg 1 við Streitishvarf. Minna má á að Axarvegur styttir leiðina milli Djúpavogs og Egilsstaða um tæpa 70 km og getur haft áhrif á hagkvæmni þess að flytja út lax frá Egilsstaðaflugvelli og Seyðisfjarðarhöfn. Að klára þjóðveginn yfir Öxi er einnig í takt við áherslur ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum en með styttri leiðum minnkar mengun með minni orkunotkun bifreiða, gjaldeyrir sparast og færri kílómetrar kalla á dýrt og umfangsmikið viðhald.
Fyrir kemur að veðurfar og snjóalög á Öxi séu notuð til að draga úr notkunargildi og mikilvægi Axarvegar. Staðreyndin er hins vegar sú að fjallgarðar norðaustan við Öxi taka iðulega mestu úrkomuna úr veðraskilum sem koma inn yfir austanvert landið. Eru snjóalög því minni á Öxi. Snælína liggur mun ofar í Berufirði en norðar á Austurlandi vegna þess hversu sunnarlega fjörðurinn er og vegna þess að hann liggur sunnan við kaldan straum fyrir austan land. Lítil snjóalög á þessum slóðum eru því andstæð því sem gerist frá Loðmundarfirði í norðri til Reyðarfjarðar í suðri þar sem menn þekkja snjóflóð og aurskriður.
Í samantekt Samgöngustofu um umferðarslys á Íslandi, sem stofnunin gefur út árlega, kemur fram að þjóðvegurinn yfir Öxi sé sá vegur þar sem flest slys verði miðað við umferð á vegum í dreifbýli. Samkvæmt tölfræði frá Samgöngustofu hefur vegurinn notið þessa vafasama heiðurs undanfarin ár. Þörfin fyrir góðan og öruggan þjóðveg yfir Öxi með tryggu farsímasambandi er augljóslega til staðar. Vilji íbúanna er skýr. Krafan árið 2025 er sú að gera verði betur. Til marks um það má vitna í bókun heimastjórnar Djúpavogs um Axarveg frá 4. september 2025:
„Sumarumferð á Öxi hefur aldrei verið meiri en í ár og hafa umferðarþyngstu dagar farið nálægt 1.000 bílum. Heimastjórn vill árétta fyrri bókanir um mikilvægi Axarvegar og að það sé nauðsynlegt að ráðist verði í framkvæmdir á heilsársvegi nú þegar. Umferð um Axarveg frá áramótum til ágústloka er nálægt 80 þúsund bílum þrátt fyrir að lítil sem engin vetrarþjónusta hafi verið á tímabilinu janúar til apríl. Umferðarþyngsti dagurinn taldi 880 bíla.
Meðalumferð frá 1. júní til 24. ágúst var 623 bílar. Aukning á umferð yfir Öxi á tveimur árum er yfir 35%. Marga daga er umferð yfir Öxi meiri en um þjóðveg 1 við Streitishvarf.
Heimastjórn sýnist það einsýnt að öllu lengur sé ekki hægt að bíða eftir framkvæmdum vegna síaukinnar umferðar og það sé ljóst að mjór og illa viðhaldinn malarvegur dugi ekki til að anna þessari umferð. Einnig vill heimastjórn árétta að viðhald sé í lágmarki og því vegurinn oft á köflum holóttur og erfiður yfirferðar en þrátt fyrir það sé hann að verða umferðarþyngsti vegurinn milli Djúpavogs og Mið-Austurlands og það kalli á tafarlausar úrbætur.“
Á vef Vegagerðarinnar er Axarvegur nefndur með yfirstandandi framkvæmdum þótt þær séu ekki hafnar. Ólíðandi er að draga það að hefja framkvæmdir við vandaðan veg sem eykur öryggi, styrkir byggðir og styttir hringveginn um 70 km og leysir jafnframt af hólmi hlykkjóttan og holóttan veg af svipuðum gæðum og þeir sem lagðir voru fyrir tæpri öld.
Hönnun vegarins er tilbúin og vegurinn á áætlun. Því telja flutningsmenn ekkert að vanbúnaði að hefja verkið.