Ferill 330. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 476 — 330. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á skipalögum, nr. 66/2021 (EES-reglur).
Frá innviðaráðherra.
1. gr.
a. Í stað orðanna „viðurkenndu flokkunarfélagi“ í 5. tölul. kemur: viðurkenndri stofnun.
b. 13. tölul. orðast svo: Viðurkennd stofnun er stofnun sem hlotið hefur viðurkenningu í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit.
2. gr.
b. Í stað orðanna „viðurkenndu flokkunarfélagi“ í 2. mgr. 26. gr. og 4. mgr. 30. gr. laganna kemur: viðurkenndri stofnun.
c. Í stað orðanna „viðurkennds flokkunarfélags“ í 1. málsl. 28. gr. laganna kemur: viðurkenndrar stofnunar.
3. gr.
Valdheimildir Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA-dómstólsins.
EFTA-dómstóllinn skal hafa lögsögu til að endurskoða ákvarðanir Eftirlitsstofnunar EFTA um sektir eða févíti skv. 1. mgr.
Ráðherra skal setja reglugerð um framkvæmd sameiginlegra reglna og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit og frekari skilyrði ákvarðana Eftirlitsstofnunar EFTA.
4. gr.
Innleiðing.
5. gr.
6. gr.
Greinargerð.
Með frumvarpi til laga um breytingu á skipalögum, nr. 66/2021, er ætlunin að tryggja lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit. Reglugerðin er hluti af endurútgáfu tilskipunar ráðsins 94/57/EB frá 22. nóvember 1994 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun og fyrir tilheyrandi starfsemi siglingamálayfirvalda. Sú tilskipun er innleidd hér á landi með reglugerð nr. 142/2004 um viðurkenningu flokkunarfélaga og um reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun. Þar sem eldri tilskipun hefur verið breytt í veigamiklum atriðum var ákveðið að gefa út nýja Evrópugerð til að skýra og styrkja ýmis efnisatriði.
Helstu nýmæli reglugerðar (EB) nr. 391/2009 eru breytingar á valdi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, eða Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í tilviki EFTA-ríkjanna, til að leggja á sektir og févíti ef viðurkenndar stofnanir, þ.e. stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit og hafa verið viðurkenndar til þeirra starfa, uppfylla ekki þau skilyrði sem kveðið er á um í reglugerðinni.
Hér er um að ræða ESB-gerð sem varðar stjórnskipuleg álitamál og er hún háð samþykki Alþingis. Því hefur reglum um þinglega meðferð EES-mála verið fylgt. Forsætisráðuneytið, innanríkisráðuneytið og utanríkisráðuneytið lögðu árið 2016 fyrir utanríkismálanefnd Alþingis álitsgerð um reglur um eftirlit með skipum með tilliti til stjórnarskrár Íslands. Þá fengu reglugerðin og álitsgerð ráðuneytanna þriggja efnislega umfjöllun í umhverfis- og samgöngunefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Umhverfis- og -samgöngunefnd gaf út álit um upptöku gerðarinnar í EES-samninginn 25. maí 2016. Það álit tekur á efnisreglum gerðarinnar og taldi nefndin að hagsmunir innlendra skipafyrirtækja sem reglurnar taka til fælist í því að efnisreglur gerðarinnar yrðu teknar upp í landsrétt. Í áliti meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis frá 23. febrúar 2017 kemur fram að talið sé að framsalið sem um ræðir sé á afmörkuðu og vel skilgreindu sviði og ekki mjög íþyngjandi fyrir íslenska ríkið eða þegna þess. Þá taldi meiri hlutinn það vera til bóta að leggja á févíti og sektir áður en til afturköllunar kæmi og til þess fallið að tryggja meiri sanngirni. Meiri hluti nefndarinnar tók undir sjónarmið í álitsgerð ráðuneytanna og gerði ekki athugasemdir við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Nauðsynlegt er að breyta lögum til að innleiða reglugerð (EB) nr. 391/2009 í íslenskan rétt. Lagastoð fyrir því framsali valdheimilda til Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA-dómstólsins að stofnunin geti lagt sektir og févíti á viðurkenndar stofnanir og dómstóllinn hafi lögsögu í þeim málum er ekki fyrir hendi í gildandi lögum.
3. Meginefni frumvarpsins.
Frumvarpið er fjórar greinar, auk gildistökuákvæðis. Lagt er til að 3. gr. laganna verði breytt á þann veg að í stað orðskýringarinnar viðurkennt flokkunarfélag komi viðurkennd stofnun. Er það í samræmi við núverandi orðfæri almennt í Evrópugerðum og í samningum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar. Einnig er lagt til að í stað hugtaksins viðurkennt flokkunarfélag hvarvetna í lögunum komi viðurkennd stofnun.
Þá er lagt til að við lögin bætist ný grein sem kveði á um valdheimildir Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og EFTA-dómstólsins. Samkvæmt greininni skal ESA hafa heimild til þess að leggja sektir og févíti á viðurkennda stofnun sem hefur verið viðurkennd á grundvelli beiðni um viðurkenningu frá EFTA-ríki. Lagt er til að EFTA-dómstóllinn fái lögsögu til að endurskoða ákvarðanir ESA um að leggja sektir og févíti á þessar viðurkenndu stofnanir.
Markmið með lagasetningunni er að innleiða þau ákvæði reglugerðar (EB) nr. 391/2009 sem kalla á lagabreytingu. Ekki verður gengið lengra við innleiðingu en þörf krefur. Framsalið er mjög afmarkað og nær aðeins til viðurkenndra stofnana samkvæmt gerðinni og aðeins þeirra sem hafa verið viðurkenndar í framhaldi af beiðni EFTA-ríkis. Engar slíkar stofnanir hafa höfuðstöðvar hér á landi og ólíklegt verður að teljast að slík stofnun verði stofnuð á sviði skipaskoðunar og -eftirlits eða útibú frá stofnun með viðurkenningu frá ESA, í kjölfar beiðni frá EFTA-ríki. Stofnanir af þessu tagi eru fáar og stórar og hafa langa sögu og útibú um heim allan.
Í sama tilgangi var árið 2025 gerð sambærileg breyting á lögum í norskum rétti (LOV-2025-06-20-110). Við lög um öryggi skipa þar í landi, nr. 9/2007 (n. lov om skipssikkerhet), var bætt við sambærilegu ákvæði sem heimilar ESA og EFTA-dómstólnum að leggja sektir á viðurkenndar stofnanir og ráðherra að setja um það nánari ákvæði með reglugerð.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Íslenska ríkið er að þjóðarétti skuldbundið til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit og er frumvarpið samið með það fyrir augum að tryggja fullnægjandi stoð í lögum til innleiðingar á henni.
Farið hefur fram sérstök umfjöllun um samræmi efnis frumvarpsins við stjórnarskrá. Unnin var álitsgerð þriggja ráðuneyta, forsætisráðuneytis, utanríkisráðuneytis og innanríkisráðuneytis. Innleiðing Evrópugerðarinnar var borin undir utanríkismálanefnd Alþingis skv. 5. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Í framhaldinu var hún borin undir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þar sem hún var talin varða stjórnskipuleg álitamál og einnig undir umhverfis- og samgöngunefnd þar sem málaflokkurinn heyrir undir hana.
Almennt hefur Eftirlitsstofnun EFTA ekki heimildir til að leggja á sektir eða beita innlenda aðila févíti en fyrir því eru þó ákveðin fordæmi, svo sem 250. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, sem byggist á eldri heimild í 136. gr. a laga um loftferðir, nr. 60/1998, en er þó víðtækari. Með 250. gr. gildandi laga um loftferðir var Eftirlitsstofnun EFTA falin heimild til að leggja sektir og févíti á einstaklinga eða lögaðila þegar brot er talið af ásetningi eða gáleysi.
Þegar Eftirlitsstofnun EFTA var veitt heimild í nýjum lögum um loftferðir til að leggja á sektir vegna brota á lögunum og reglugerðum settum samkvæmt þeim var meðal annars horft til álitsgerðar Stefáns Más Stefánssonar lagaprófessors um hvort ákvæði sem heimiluðu stofnuninni að leggja sektir á innlenda aðila stæðust ákvæði stjórnarskrár. Í álitsgerðinni segir m.a.: „Er eðlilegt að líta svo á að ákveðið svigrúm sé fyrir hendi til að túlka viðkomandi stjórnarskrárákvæði þannig að ekki þrengi um of að möguleikum Íslands sem fullvalda þjóðréttaraðila til að tryggja hagsmuni sína sem best í samstarfi og samningum við aðrar þjóðir jafnvel þó að stofn þeirra sé gamall.“
Færa má rök fyrir því að sambærileg sjónarmið og hér hafa verið reifuð gildi um framsal valds til að leggja sektir og févíti á viðurkenndar stofnanir samkvæmt reglugerð (EB) nr. 391/2009. Engin slík stofnun í skilningi reglugerðarinnar hefur höfuðstöðvar á Íslandi og er ekki fyrirséð að heimildin komi til með að hafa bein áhrif á innlenda aðila. Við það má bæta að um er að ræða vel takmarkað framsal á afmörkuðu sviði sem er ekki gert ráð fyrir að verði íþyngjandi hér á landi. Þá er auk þess gert ráð fyrir því að Eftirlitsstofnun EFTA fari með samsvarandi heimild gagnvart EFTA-ríkjunum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fer með gagnvart aðildarríkjum Evrópusambandsins og tveggja stoða kerfi samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sé þannig virt.
Með vísan til framangreinds má telja að lögfesting umræddra heimilda Eftirlitsstofnunar EFTA til að leggja sektir og févíti á viðurkenndar stofnanir og heimild EFTA-dómstólsins til endurskoðunar þess brjóti ekki í bága við stjórnskipunarreglur Íslands.
5. Samráð.
Áform um lagasetningu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá 26. ágúst – 10. september 2025 (mál nr. S-152/2025). Engar umsagnir bárust. Drög að frumvarpi til laga voru kynnt í samráðsgáttinni frá 23. október – 6. nóvember 2025. Ein umsögn barst frá Samtökum verslunar og þjónustu. Í umsögn sinni beina samtökin því til stjórnvalda að ganga úr skugga um hvaða afleiðingar það kann að hafa fyrir innlenda aðila taki frumvarp þetta gildi óbreytt. Þá telja samtökin nauðsynlegt að meta líkindi þess að innlendir aðilar verði fyrir viðbótarkostnaði vegna málareksturs utan Íslands. Þar sem engar viðurkenndar stofnanir hafa höfuðstöðvar sínar á Íslandi og hafa verið viðurkenndar á grundvelli beiðni frá EFTA-ríki er ekki talið að lagabreytingin hafi afleiðingar fyrir innlenda aðila.
6. Mat á áhrifum.
Samþykkt frumvarpsins mun fyrst og fremst hafa þau áhrif að lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit verður tryggð.
Ekki er gert ráð fyrir að samþykkt frumvarpsins hafi í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð eða hagaðila.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.