Ferill 332. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 479 — 332. mál.
Skýrsla
framtíðarnefndar um vinnustofu um sviðsmyndir netöryggis á Íslandi árið 2035, alþjóðlega drifkrafta og óvissuþætti framtíðar.
Skýrsla þessi er unnin af framtíðarnefnd Alþingis og lögð fram í samræmi við 2. mgr. 26. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, sbr. einnig ákvæði til bráðabirgða IV við lögin þar sem hlutverk nefndarinnar er afmarkað. Nefndin skal m.a. fjalla um áskoranir og tækifæri Íslands í framtíðinni að því er snertir tæknibreytingar, langtímabreytingar á umgengni við náttúruna, lýðfræðilegar breytingar og sjálfvirknivæðingu.
Í samræmi við hlutverk nefndarinnar ákvað hún að halda vinnustofu 4. og 5. september 2025 í samstarfi við Framtíðarstofnun Kaupmannahafnar til að auka skilning þátttakenda á helstu alþjóðlegu drifkröftum og óvissuþáttum framtíðar og greina mögulegar sviðsmyndir í tengslum við netöryggi á Íslandi árið 2035. Afrakstur vinnustofunnar er tekinn saman í skýrslunni.
Fylgiskjal.
Skýrsla framtíðarnefndar um vinnustofu um sviðsmyndir netöryggis á Íslandi árið 2035, alþjóðlega drifkrafta og óvissuþætti framtíðar.