Ferill 333. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 480 — 333. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um skipti á dánarbúum o.fl. og erfðalögum (framlenging bráðabirgðaheimilda).
Frá allsherjar- og menntamálanefnd.
I. KAFLI
Breyting á lögum um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991.
1. gr.
Í stað ártalsins „2025“ í 1. og 2. mgr. 158. gr. laganna kemur: 2026.
II. KAFLI
Breyting á erfðalögum, nr. 8/1962.
2. gr.
Í stað ártalsins „2025“ í ákvæði til bráðabirgða í lögunum kemur: 2026.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Hinn 31. desember 2025 rennur út gildistími í tveimur ákvæðum til bráðabirgða, annars vegar í erfðalögum og hins vegar í lögum um skipti á dánarbúum o.fl., sem kveða á um heimild til að beita rafrænum lausnum og fjarfundarbúnaði í ákveðnum tilvikum við meðferð mála á grundvelli laganna. Heimildirnar hafa reynst vel í framkvæmd og leggur nefndin því til að framangreindar bráðabirgðaheimildir verði framlengdar um eitt ár til að tryggja samfellu í framkvæmd. Nefndin hefur til umfjöllunar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna stafrænnar og rafrænnar málsmeðferðar hjá sýslumönnum og dómstólum (
231. mál á 157. löggjafarþingi). Verði það frumvarp að lögum munu heimildir á grundvelli þeirra laga leysa þessi ákvæði til bráðabirgða af hólmi.