Ferill 250. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 482 — 250. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
2. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
3. Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.
Í ráðuneytinu starfar einn upplýsingafulltrúi. Engir upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar eru starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins. Hvorki í ráðuneytinu né í undirstofnunum þess er starfrækt sérstök upplýsinga- eða samskiptadeild.