Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 488 — 112. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá dómsmálaráðuneyti, No Borders, Félagi talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd, Íslandsdeild Amnesty International, Rauða krossinum á Íslandi, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Landssamtökunum Þroskahjálp, Mannréttindastofnun Íslands, Barnaheillum og Útlendingastofnun.
Nefndinni bárust 12 umsagnir og minnisblað frá dómsmálaráðuneyti. Gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er m.a. lagt til að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd útlendings þegar viðkomandi hefur framið alvarlegt afbrot, ógnar öryggi ríkisins eða hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi. Þá er lagt til að fella brott reglu 2. mgr. 74. gr. laganna þar sem heimiluð er veiting dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða hafi útlendingur ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan lögbundinna tímamarka eftir að hann sótti um alþjóðlega vernd.
Umfjöllun nefndarinnar.
Endurflutt mál frá 156. löggjafarþingi.
Málið er endurflutt en það var til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd á 156. löggjafarþingi. Frumvarpið var afgreitt til 2. umræðu 20. júní 2025 með áliti meiri hluta nefndarinnar ( þskj. 769, 278. mál) en hlaut ekki lokaafgreiðslu fyrir þinglok. Líkt og kemur fram í greinargerð er frumvarpið nú endurflutt með fáeinum breytingum.
Nefndin hefur haft til hliðsjónar þær umsagnir sem hafa borist um málið auk þeirra umsagna og minnisblaðs frá dómsmálaráðuneyti sem liggja fyrir frá 156. löggjafarþingi. Gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Með frumvarpinu er kveðið á um breytingar sem eru liður í því að samræma lög um útlendinga við löggjöf í öðrum Evrópuríkjum, bæði á Norðurlöndunum og innan Evrópusambandsins. Ísland er aðili að ýmsum þjóðréttarsamningum sem varða málefni útlendinga og réttarstöðu þeirra og telur meiri hlutinn mikilvægt að tekið hafi verið tillit til þeirra skuldbindinga við vinnslu frumvarpsins líkt og fram kemur í greinargerð. Þá ber löggjafanum ávallt að meta hvort lagasetning rúmist innan marka stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.
Samkvæmt 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, má engan beita pyndingum né annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í 3. gr. mannréttindasáttmálans felst sú grundvallarregla að ríkjum er óheimilt að vísa fólki brott eða endursenda það þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu og er þessi regla ófrávíkjanleg. Ákvæðið veitir enn ríkari vernd gegn brottvísun en veitt er á grundvelli 1. mgr. 32. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna frá árinu 1951 (hér eftir flóttamannasamningurinn) en samkvæmt því ákvæði skulu aðildarríkin ekki víkja úr landi flóttamanni, sem dvelur löglega í löndum þeirra, nema vegna öryggis landsins eða allsherjarreglu. Í 33. gr. samningsins er kveðið á um bann gegn brottvísun og endursendingu en þar segir í 2. mgr. að flóttamaður geti ekki krafist þess að njóta góðs af ákvæðinu ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi landsins sem hann dvelur í eða ef hann er talinn hættulegur þjóðfélaginu vegna þess að hann hefur með endanlegum dómi verið dæmdur sekur um mjög alvarlegan glæp. Með frumvarpinu verður ekki vikið frá þeirri meginreglu þjóðaréttar að óheimilt sé að senda einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð sem er jafnframt lögfest í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016.
Líkt og fram kemur í greinargerð frumvarpsins verður ekki talið að ákvæði þess fari í bága við stjórnarskrá né mannréttindasáttmála Evrópu og tekur meiri hlutinn undir það. Í eftirfarandi köflum verður þó fjallað nánar um samspil tiltekinna ákvæða frumvarpsins við alþjóðlegar skuldbindingar, einkum flóttamannasamninginn, og lagðar til tilteknar breytingar vegna þessa.
Afturköllun alþjóðlegrar verndar (3. gr.).
Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef gildar ástæður eru til að álíta viðkomandi hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi.
Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er Ísland eina ríkið á Norðurlöndum sem heimilar ekki afturköllun alþjóðlegrar verndar þegar viðkomandi hefur framið alvarlegt afbrot eða telst ógn við öryggi ríkisins. Þá er í nýsamþykktu regluverki Evrópusambandsins um verndarmál, sem tekur gildi í júní 2026, kveðið á um að ríki innan Evrópusambandsins verði skuldbundin til að afturkalla alþjóðlega vernd þegar málefnalegar ástæður eru til að líta svo á að ríkisborgari þriðja lands eða einstaklingur án ríkisfangs sé ógn við öryggi þess aðildarríkis þar sem viðkomandi er staddur eða þegar ríkisborgari þriðja lands eða einstaklingur án ríkisfangs hlýtur endanlegan dóm fyrir sérstaklega alvarlegan glæp og samfélaginu í því aðildarríki þar sem viðkomandi er staddur telst stafa hætta af honum, sbr. d- og e-lið 14. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1347.
Í greinargerð frumvarpsins er að finna nánari skýringar á því hvað sé átt við með alvarlegu broti sem sé m.a. alvarlegt eða að öðru leyti gróft brot, eða tilraun til brots, svo sem manndráp, ofbeldis- eða kynferðisbrot, frelsissviptingarbrot, meiri háttar fíkniefnabrot, brenna eða önnur almannahættubrot, rán og skipulögð brotastarfsemi. Almennt myndu skilorðsbundnir dómar ekki falla undir hugtakið. Í minnisblaði dómsmálaráðuneytis, dags. 20. maí 2025, kemur fram að ákvæðið veiti stjórnvöldum ákveðið svigrúm til mats og ekki sé talið skynsamlegt að kveða með tæmandi hætti á um tiltekna brotaflokka við afmörkun á hugtakinu. Í minnisblaðinu kemur jafnframt fram að hugtakið „öryggi ríkisins“ sé ekki skilgreint sérstaklega í íslenskri löggjöf en eðli máls samkvæmt yrði það á hendi löggæsluyfirvalda að meta hvað félli þar undir, sbr. m.a. dóm Hæstaréttar Íslands í máli nr. 191/2012.
Fyrir nefndinni var einnig fjallað um það hvort heimild til afturköllunar alþjóðlegrar verndar og brottvísunar frá landinu fæli í sér tvöfalda refsingu. Í minnisblaði dómsmálaráðuneytis er bent á að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi í dómaframkvæmd vísað til þess að brottvísun einstaklings frá ríki í kjölfar afbrots brjóti ekki gegn banni við tvöfaldri refsingu, sbr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Með vísan til þessa telur meiri hlutinn liggja fyrir að ekki sé um tvöfalda refsingu að ræða.
Ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi (1. og 3. gr.).
Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að útiloka og afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar í tilvikum þar sem viðkomandi hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi. Í greinargerð með frumvarpinu segir að með ítrekuðum afbrotum sé m.a. átt við endurtekin brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni, svo sem þjófnaðarbrot og önnur brot sem beinast gegn eignarrétti einstaklinga og lögaðila.
Í umsögnum um málið komu fram athugasemdir við þessa viðbót og m.a. vísað til þess að með skilyrði um ítrekuð afbrot væri gengið lengra en skv. d- og e-lið 14. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1347 og að slíkt skilyrði væri ekki í samræmi við flóttamannasamninginn. Líkt og rakið hefur verið er með frumvarpinu tekið mið af löggjöf annars staðar á Norðurlöndunum og nýsamþykktu regluverki Evrópusambandsins. Ísland er þó ekki, sem þátttakandi í Schengen-samstarfinu, skuldbundið af heildarstefnu Evrópusambandsins í útlendingamálum og almennum málsmeðferðarreglum sambandsins er varða alþjóðlega vernd líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu.
Meiri hlutinn áréttar að með frumvarpinu er vísað til ítrekaðra brota sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi. Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að kveðið verði á um heimildir til afturköllunar alþjóðlegrar verndar að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í frumvarpinu. Ákvæði frumvarpsins veiti stjórnvöldum tiltekið svigrúm til mats sem þarf að fara fram í hverju máli fyrir sig. Ákvæðin muni þannig mótast í framkvæmd, m.a. á grundvelli úrskurða kærunefndar útlendingamála og eftir atvikum niðurstöðu dómstóla sem og með hliðsjón af alþjóðlegum skuldbindingum. Meiri hlutinn áréttar jafnframt í því samhengi að um er að ræða heimildarákvæði sem almennt skuli túlkað þröngt með vísan til skilyrða um alvarleikastig, þ.e. að gildar ástæður þurfi að vera til staðar um að útlendingur verði álitinn hættulegur öryggi ríkisins, um verði að ræða alvarlegt afbrot og viðkomandi af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða að ítrekuð afbrot ógni allsherjarreglu og almannaöryggi.
Þá var fyrir nefndinni rætt um hvernig geti reynt á heimild til afturköllunar alþjóðlegrar verndar í framkvæmd. Líkt og dómsmálaráðuneytið vísar til í minnisblaði, dags. 20. maí 2025, er fjöldi ákvæða í lögum um útlendinga sem veitir svigrúm til mats með sambærilegum hætti og 3. gr. frumvarpsins, t.d. ákvæði í d-lið 1. mgr. 94. gr., 1. mgr. 95. gr., a-lið 1. mgr. 97. gr., f-lið 1. mgr. 98. gr., d-lið 1. mgr. 99. gr. og b-lið 1. mgr. 100. gr., sem varða m.a. skírskotun til öryggis ríkisins, almannahagsmuna, allsherjarreglu, almannaöryggis og almannaheilbrigðis. Þar af leiðandi er þegar til staðar ákveðið verklag hjá Útlendingastofnun á framkvæmd í tengslum við aðrar sams konar heimildir á grundvelli laganna. Þá vill meiri hlutinn geta þess að við afturköllun alþjóðlegrar verndar gilda reglur stjórnsýsluréttar auk þess sem heimilt er að kæra ákvarðanir Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða vegna lögbundinna tímamarka (4. gr.).
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er kveðið á um heimild til veitingar dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða hafi útlendingur ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan lögbundinna tímamarka eftir að hafa sótt um alþjóðlega vernd. Skilyrði fyrir því að einstaklingur fái dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins er að það hafi verið skorið úr um að viðkomandi uppfylli ekki skilyrði til að fá útgefna alþjóðlega vernd. Þeir einstaklingar sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli heimildarinnar eru því ekki flóttamenn í skilningi laganna. Frumvarpið kveður á um að umrætt ákvæði verði fellt brott.
Í umsögnum og fyrir nefndinni voru gerðar alvarlegar athugasemdir við þessa breytingu, m.a. með vísan til þess að ákvæðið veiti stjórnvöldum mikilvægt aðhald og stuðli að skilvirkni í málsmeðferð. Meiri hlutinn bendir á að slíka reglu sé ekki að finna annars staðar á Norðurlöndunum og að það hafi valdið auknu álagi á framkvæmd í málaflokknum að hafa séríslenska málsmeðferðarreglu sem skeri sig frá nágrannaríkjum. Í þessu samhengi áréttar meiri hlutinn að á grundvelli málshraðareglu 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, skulu ákvarðanir í málum teknar svo fljótt sem unnt er. Þá er kveðið á um það í 4. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að umsóknum skv. 37. og 39. gr. laganna skuli svarað innan 18 mánaða. Stjórnvöld hafa áfram hag af því að vinna mál eins fljótt og unnt er og ber þeim skylda til þess samkvæmt framangreindum ákvæðum. Fjöldi umsókna um alþjóðlega vernd hafi skapað mikið álag fyrir Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála sem meiri hlutinn telur mikilvægt að bregðast við. Það hafi haft áhrif á allan málsmeðferðartíma sem hafi leitt til þess að fjöldi mála hafi fallið á tíma á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga og einstaklingar þá hlotið dvalarleyfi án þess að teljast flóttamenn. Þá megi vænta þess að breytingin leiði til lækkunar útgjalda í þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd, bæði hjá ríki og sveitarfélögum. Meiri hlutinn telur rétt að tilgreina að flóttamannakerfið er neyðarkerfi og mikilvægt að tryggja að einstaklingar sem hingað leita og þarfnast verndar fái vandaða og skilvirka málsmeðferð. Loks telur meiri hlutinn sanngjarnt og eðlilegt að tekið sé tillit til umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. við gildistöku laganna, sbr. 9. gr. frumvarpsins, og að þær umsóknir fái skoðun hjá stjórnvöldum á grundvelli ákvæðisins þrátt fyrir að ákvæðið sé fellt brott úr lögunum.
Dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar (6. gr.).
Með frumvarpinu er kveðið á um nýjan dvalarleyfisflokk, svokallað dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar. Það nær til þeirra sem annaðhvort njóta ekki stöðu flóttamanns eða þegar alþjóðleg vernd hefur verið afturkölluð hjá viðkomandi en aðstæður í heimaríki koma í veg fyrir brottvísun. Í framkvæmd taka stjórnvöld í slíkum tilvikum ákvörðun um brottvísun og endurkomubann en fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar tímabundið á grundvelli 42. gr. laganna, um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda það þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu, og veita viðkomandi dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar. Líkt og rakið er í greinargerð verður einstaklingum í þessari stöðu óheimilt að fá dvalarleyfi á öðrum grundvelli þar sem grunnskilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis er að ekki liggi fyrir atvik sem valdið geta því að viðkomandi verði meinuð landganga hér á landi eða dvöl samkvæmt öðrum ákvæðum laganna, sbr. d-lið 1. mgr. 55. gr.
Meiri hlutinn telur mikilvægt að bregðast við stöðu þeirra sem njóta ekki stöðu flóttamanns hér á landi en er þó ekki hægt að brottvísa með vísan til 42. gr. laganna. Þá áréttar meiri hlutinn að skv. 11. gr. frumvarpsins verði heimilt að gefa út atvinnuleyfi til einstaklinga sem eiga rétt á dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar. Þeir einstaklingar ættu þá almennt kost á því að fá tímabundið atvinnuleyfi á meðan ekki væri unnt að brottvísa viðkomandi til heimaríkis vegna aðstæðna þar.
Breytingartillögur.
Útilokunarástæður fyrir alþjóðlegri vernd (1. gr.).
Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga hefur flóttamaður skv. 37. gr., sem er hér á landi eða kemur hér að landi, rétt til að fá hér alþjóðlega vernd samkvæmt umsókn. Ákvæði 2. mgr. 40. gr. mælir þó fyrir um tilteknar útilokunarástæður fyrir alþjóðlegri vernd. Í c- og d-lið 2. mgr. er kveðið á um slíkar takmarkanir, annars vegar ef ástæða er til að álíta viðkomandi hættulegan öryggi ríkisins, eða hafi hann hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu, og hins vegar ef viðkomandi flóttamaður hefur yfirgefið heimaland sitt eða land þar sem hann hafði síðast fasta búsetu í þeim eina tilgangi að komast hjá refsingu fyrir brot sem geta varðað fangelsisrefsingu samkvæmt íslenskum hegningarlögum. Samkvæmt gildandi lögum eiga framangreindar útilokunarástæður aðeins við um flóttamann skv. 2. mgr. 37. gr. laganna, þ.e. um þá sem eiga rétt á viðbótarvernd. Með frumvarpinu er lagt til að því verði breytt, svo að þessar takmarkanir eigi við um alla umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Fyrir nefndinni voru gerðar athugasemdir við þessar breytingar og vísað til þess að með þeim verði farið út fyrir þær heimildir sem flóttamannasamningurinn kveður á um. Nefndin fjallaði um það hvaða áhrif þessi breyting hefði, einkum d-liður ákvæðisins sem varðar það að komast hjá refsingu í öðru landi fyrir brot sem varða fangelsisrefsingu samkvæmt íslenskum hegningarlögum.
Meiri hlutinn telur brýnt að unnt sé að bregðast við með því að útiloka að einstaklingur eigi rétt á alþjóðlegri vernd þegar gildar ástæður eru til að álíta viðkomandi hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaði dómsmálaráðuneytis, dags. 20. maí 2025, um að það sé lágmarksskilyrði að þeir einstaklingar sem leita skjóls hér á landi viðhafi ekki háttsemi sem fer í bága við grundvallarhagsmuni samfélagsins. Þá undirstrikar meiri hlutinn að með breytingunni verði ekki vikið frá þeirri meginreglu þjóðaréttar að brottvísa ekki einstaklingum til ríkja þar sem þeir hafa ástæðu til að óttast ofsóknir eða eru í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Komi slík staða upp hjá einstaklingi sem er útilokaður frá alþjóðlegri vernd verði viðkomandi ekki brottvísað frá landinu á meðan aðstæður eru þess eðlis en aftur á móti muni íslensk stjórnvöld ekki veita viðkomandi einstaklingi alþjóðlega vernd með öllum þeim réttindum sem því fylgja heldur nýja tegund dvalarleyfis vegna umborinnar dvalar.
Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd ef gildar ástæður eru til að álíta viðkomandi hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi. Ákvæðið er samhljóða nýjum c-lið 2. mgr. 40. gr. sem mælir fyrir um útilokunarástæður fyrir alþjóðlegri vernd og telur meiri hlutinn að gæta þurfi að samræmi við markmið og tilgang þeirra breytinga svo að ekki komi upp sú staða að það verði óhjákvæmilegt að veita einstaklingi vernd sem yrði síðan afturkölluð vegna framangreindra ástæðna.
Meiri hlutinn telur aftur á móti tilefni til að skoða nánar útvíkkun á d-lið 2. mgr. 40. gr. laganna. Meiri hlutinn telur mikilvægt að taka tillit til þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem Ísland hefur undirgengist og leggur í því skyni til breytingu á 1. gr. frumvarpsins um að d-liður 2. mgr. 40. gr. laganna standi óbreyttur, sem varðar útilokunarástæður þegar viðkomandi hefur yfirgefið heimaland sitt eða land þar sem hann hafði síðast búsetu í þeim eina tilgangi að komast hjá refsingu fyrir brot sem varða fangelsisrefsingu. Meiri hlutinn leggur til að fallið verði frá því að útvíkka ákvæði d-liðar þannig að það taki til allra umsækjenda um alþjóðlega vernd og telur það jafnframt koma betur til móts við sjónarmið í umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna til nefndarinnar.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða við afturköllun alþjóðlegrar verndar (3. gr.).
Samkvæmt 2. málsl. 4. mgr. 48. gr. laga um útlendinga ber stjórnvöldum við afturköllun alþjóðlegrar verndar að taka til athugunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr., en með frumvarpinu er lagt til að fella brott þá skyldu stjórnvalda.
Umsagnaraðilar gerðu athugasemdir við þessa breytingu. Í umsögn Íslandsdeildar Amnesty International kom til að mynda fram að einstaklingur sem fellur ekki undir skilgreiningu sem flóttamaður geti engu síður haft ríkulega þörf fyrir vernd en með þessari breytingu væri sá varnagli fjarlægður án frekari skoðunar á sérstökum aðstæðum viðkomandi einstaklinga. Mannréttindastofnun Íslands benti á að breytingin þarfnaðist nánari rökstuðnings og skýringa og eru sérstaklega gerðar athugasemdir við að breytingin taki til allra tilvika, óháð grundvelli afturköllunar. Auk þessa kemur fram í umsögn ÖBÍ réttindasamtaka að vernd sem er veitt á grundvelli 74. gr. laganna sé mjög mikilvæg fólki í viðkvæmri stöðu og eigi það ekki síst við um fatlað fólk þar sem leyfið kann m.a. að vera veitt þegar einstaklingur hefur ríka þörf fyrir vernd af heilsufarsástæðum og vegna erfiðra félagslegra aðstæðna.
Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið um mikilvægi þess að áfram verði unnt að taka til athugunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laganna, einkum í tilvikum þar sem vernd fellur niður vegna þess að aðstæður hafa breyst í heimalandi en einstaklingurinn sjálfur hefur ekkert til saka unnið sem leiðir til þess að verndin falli niður. Í minnisblaði dómsmálaráðuneytis, dags. 20. maí 2025, kemur fram að þegar Útlendingastofnun er með til skoðunar afturköllun alþjóðlegrar verndar á grundvelli breytts mats á aðstæðum í heimaríki er viðkomandi einstaklingi almennt leiðbeint um aðra dvalarleyfismöguleika hér á landi, t.d. á grundvelli sérstakra tengsla við landið, sbr. 78. gr. laganna, eða á grundvelli atvinnuþátttöku, sbr. VI. kafla laganna. Meiri hlutinn telur mikilvægt að hægt verði að bregðast við í þeim tilvikum þar sem m.a. geti verið um að ræða fólk í viðkvæmri stöðu sem ekki er víst að geti uppfyllt önnur skilyrði til dvalarleyfis. Meiri hlutinn leggur því til breytingu þess efnis að stjórnvöldum beri áfram að taka afstöðu til þess hvort veita eigi dvalarleyfi vegna mannúðarsjónarmiða þegar alþjóðleg vernd er afturkölluð á grundvelli e- eða f-liðar 1. mgr. 48. gr. sem varða breytt mat á aðstæðum í heimaríki. Slík lagaskylda myndi þó ekki eiga við þegar vernd er afturkölluð skv. a-d-liðum 1. mgr. 48. gr. en þau ákvæði varða m.a. tilvik þar sem einstaklingur hefur ferðast sjálfviljugur til heimaríkis.
Endurnýjun dvalarleyfis skv. 74. gr. laga um útlendinga (10. gr.).
Dvalarleyfi skv. 74. gr. eru veitt til eins árs í senn en með frumvarpinu er brugðist við stöðu þeirra einstaklinga sem hefðu óskað eftir endurnýjun dvalarleyfis á grundvelli 5. mgr. 74. gr. með því að kveða á um það í ákvæði til bráðabirgða að heimila hópi dvalarleyfishafa að fá útgefið dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið, sbr. 78. gr. laganna, að uppfylltum nánari skilyrðum, m.a. um trygga framfærslu.
Meiri hlutinn telur eðlilegt að til staðar sé heimild fyrir veitingu dvalarleyfis skv. 78. gr. fyrir einstaklinga sem hafa þegar hlotið dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. og eru ekki flóttamenn í skilningi laganna en eiga þá kost á að fá dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið að uppfylltum tilgreindum skilyrðum. Meiri hlutinn ítrekar að ákvæðinu yrði ekki beitt ef viðkomandi er með ólokin mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi eða afplánar fangelsisrefsingu eða bíður afplánunar.
Í umsögn Útlendingastofnunar er bent á að mikilvægt sé að útgáfa dvalarleyfis skv. 10. gr. byggist á umsókn um endurnýjun. Til að auka skýrleika ákvæðisins leggur meiri hlutinn til að fram komi að handhafar dvalarleyfis skv. 2. mgr. 74. gr. geti fengið útgefið dvalarleyfi skv. 78. gr. við lok gildistíma dvalarleyfis samkvæmt umsókn.
Aðrar breytingar.
Meiri hlutinn leggur til örfáar breytingar sem eru tæknilegs eðlis og varða breytt orðalag til að auka skýrleika. Þá er lögð til breyting um að fella brott tilvísun í 2. mgr. 74. gr. í 2. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga sem varðar endurteknar umsóknir, í ljósi þess að fyrirhugað er að fella ákvæðið brott skv. a-lið 4. gr. frumvarpsins.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Á undan 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
2. málsl. 2. mgr. 35. gr. a laganna fellur brott.
2. B-liður 1. gr. falli brott.
3. Við b-lið 3. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Við afturköllun alþjóðlegrar verndar skv. e- eða f-lið 1. mgr. skal stjórnvald taka til athugunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr.
4. Í stað orðanna „þessari grein“ í 2. mgr. 6. gr. komi: ákvæði þessu.
5. Í stað orðsins „ákvæðisins“ í 2. mgr. 9. gr. komi: 2. mgr. 74. gr.
6. Við 1. málsl. 10. gr. bætist: samkvæmt umsókn.
Alþingi, 4. desember 2025.
| Víðir Reynisson, form. |
Grímur Grímsson, frsm. | Guðmundur Ari Sigurjónsson. | |
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | María Rut Kristinsdóttir. | ||