Ferill 219. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
491  —  219. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun.

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar.

    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá utanríkisráðuneyti, Samtökum verslunar og þjónustu og Umhverfis- og orkustofnun.
    Nefndinni bárust þrjár umsagnir sem eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis auk minnisblaðs frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á samningi um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun sem undirritaður var hinn 15. nóvember 2024.
    Samningurinn nefnist formlega samningurinn um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbærni.
    Í greinargerð með tillögunni kemur fram að samningurinn, sem Ísland, Nýja-Sjáland, Sviss og Kosta Ríka gerðu með sér, sé fyrsti sértæki samningurinn á sviði alþjóðaviðskipta sem hefur það að markmiði að nýta hefðbundin ákvæði viðskiptasamninga til að styðja við orkuskipti og aðrar aðgerðir í loftslags- og umhverfismálum. Samningaviðræður hófust í kjölfar þátttöku ríkjanna í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna haustið 2019. Markmiðið var að hópur líkt þenkjandi ríkja sem hefðu náð góðum árangri á sviði umhverfismála og sjálfbærni ynni að metnaðarfullum samningi og skapaði fordæmi fyrir önnur ríki að fylgja. Eftir gildistöku samningsins verður hann opinn fyrir aðild annarra aðildarríkja Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) sem reiðubúin eru til að undirgangast skuldbindingar hans. Vonir standa því til að áhrif samningsins aukist samfara aðild fleiri ríkja. Samningurinn kallar ekki á lagabreytingar hérlendis.
    Í umsögnum og máli gesta fyrir nefndinni komu fram ýmsar ábendingar, t.d. varðandi það hvort samningurinn hefti möguleika til að útfæra markmið ríkisins um neyðarbirgðir eldsneytis og hvernig samningurinn samræmist núverandi skuldbindingum Íslands á grundvelli EES-samningsins um losunarheimildir og ríkisaðstoð. Í þessu sambandi vísar meiri hlutinn til minnisblaðs utanríkisráðuneytisins þar sem fram kemur að samningurinn hindrar í engu hið opinbera við útfærslu markmiðs ríkisins um neyðarbirgðir eldsneytis. Þá kemur fram í minnisblaðinu að samningurinn samræmist skuldbindingum Íslands á grundvelli EES-samningsins um losunarheimildir og ríkisaðstoð.
    Meiri hlutinn flytur tæknilega breytingartillögu til að tryggja að samræmi sé á milli tillögugreinar og fyrirsagnar tillögunnar annars vegar og formlegs heitis ofannefnds samnings hins vegar.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Tillögugreinin orðist svo:
    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samninginn um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbærni sem undirritaður var hinn 15. nóvember 2024.
     2.      Fyrirsögn tillögunnar verði: Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu samningsins um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbærni.

Alþingi, 8. desember 2025.

Pawel Bartoszek, form., frsm. Sigurður Helgi Pálmason. Dagbjört Hákonardóttir.
Sigmar Guðmundsson. Sigurður Ingi Jóhannsson. Víðir Reynisson.