Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 494 — 144. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með frávísunartillögu
um frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki.
Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Eftir þinglega meðferð þessa máls er fyrirséð að ef frumvarpið verður óbreytt að lögum leiðir það til mikils óhagræðis. Kerfið verður gríðarlega þungt í vöfum og aukinn kostnaður kemur hart niður á stjórnvöldum, fyrirtækjum og heimilum. Í engu öðru landi hefur áþekkt kílómetragjald verið innleitt vegna þess flækjustigs sem slíku kerfi fylgir og vegna ýmissa annmarka sem tilgreindir eru í umsögnum um málið. Ekki hefur verið talið forsvaranlegt að ráðast í slíka vegferð til þessa.
Í þeim löndum þar sem ráðgert er að innleiða kílómetragjald á bifreiðar er stefnt að því að gera það eftir nokkur ár og á nokkurra ára tímabili. Þannig verður skapaður fyrirsjáanleiki sem skiptir miklu máli fyrir heimili og sérstaklega fyrir fyrirtæki. Þá er oftast horft til þess að innleiða einungis slíkt gjald á rafmagnsbifreiðar.
Kílómetragjald á rafmagnsbifreiðar hefur nú þegar verið innleitt á Íslandi. Óþarfi er að umbylta kerfi sem virkar vel þegar fyrirséð er að nýtt kerfi hefur gríðarlega neikvæð áhrif um land allt eins og fjöldi umsagnaraðila hefur bent á. Skynsamlegra væri að leyfa núverandi fyrirkomulagi olíu- og bensíngjalda, sem áralöng reynsla hefur fengist af, að renna sitt skeið.
Með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði afar íþyngjandi og flókin kerfisbreyting. Einnig er vert að benda á að gildistaka laganna er mjög skammt undan, 1. janúar 2026.
Tillaga um afgreiðslu.
Í ljósi þess að enn á eftir að greiða úr mörgum vafaatriðum er málið ekki tækt til afgreiðslu.
Að framangreindu virtu leggur 2. minni hluti til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Varatillaga:
Um er að ræða umfangsmikla kerfisbreytingu frá því sem verið hefur sem stjórnvöld, einstaklingar og fyrirtæki þurfa að undirbúa. Flækjustig er hátt og því þarf að veita hæfilegt svigrúm til að greiða megi úr þeim vanda sem uppi kann að verða svo að hægt sé að framfylgja lögunum. Óraunhæft er með öllu að lögin taki gildi 1. janúar 2026. Í því ljósi leggur 2. minni hluti til að lögin taki gildi 1. janúar 2027.
Annar minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Í stað dagsetningarinnar „1. janúar 2026“ fjórum sinnum í 1., 2. og 4. mgr. 29. gr. komi: 1. janúar 2027.
2. Í stað dagsetningarinnar „1. janúar 2026“ í 1. efnismgr. b-liðar 2. tölul. 30. gr. komi: 1. janúar 2027.
3. Við ákvæði til bráðabirgða I.
a. Í stað dagsetningarinnar „20. janúar 2026“ í 1. mgr. komi: 20. janúar 2027.
b. Í stað dagsetningarinnar „1. apríl 2026“ í 3. mgr. komi: 1. apríl 2027.
4. Við ákvæði til bráðabirgða II.
a. Í stað orðanna „ársins 2026“ í 1. mgr. komi: ársins 2027.
b. Í stað dagsetningarinnar „1. febrúar 2026“ þrisvar sinnum í 1., 2. og 4. mgr. komi: 1. febrúar 2027.
5. Í stað dagsetningarinnar „1. janúar 2026“ í ákvæði til bráðabirgða III komi: 1. janúar 2027.
6. Við ákvæði til bráðabirgða V.
a. Í stað dagsetningarinnar „26. janúar 2026“ í 1. mgr. komi: 26. janúar 2027.
b. Í stað dagsetningarinnar „16. febrúar 2026“ þrisvar sinnum í 2. og 3. mgr. komi: 16. febrúar 2027.
7. Við ákvæði til bráðabirgða VI.
a. Ártalið „2026“ í 1. mgr. falli brott.
b. Í stað orðanna „og 2029“ í 1. mgr. komi: 2029 og 2030.
c. Í stað ártalsins „2026“ og „2027“ fjórum sinnum í 1.–4. tölul. 1. mgr. komi: 2027; og: 2028.
d. Ártalið „2026“ í 5. tölul. 1. mgr. falli brott.
e. Í stað orðanna „og 2029“ í 5. tölul. 1. mgr. komi: 2029 og 2030.
f. Í stað ártalsins „2027“ í 2. mgr. komi: 2028.
Alþingi, 9. desember 2025.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.