Ferill 115. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 495 — 115. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til ársins 2030.
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti og Íslenskri málnefnd. Nefndinni bárust 18 umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Með tillögunni er kveðið á um framtíðarsýn neytendamála sem byggist á traustri umgjörð sem stuðlar að virkri samkeppni og veitir neytendum vernd, réttarstöðu og nauðsynlegar upplýsingar til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um leið og óréttmætum viðskiptaháttum verði mætt af festu. Meginmarkmið stefnunnar verði að vinna eftir tíu þátta aðgerðaáætlun í samráði við helstu hagsmunaaðila í því skyni að tryggja framtíðarsýn í neytendamálum.
Umfjöllun nefndarinnar.
Málið er endurflutt en hefur áður komið til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd og getur nefndin þess að á 156. löggjafarþingi fjallaði hún nokkuð ítarlega um málið og fékk á sinn fund gesti frá Neytendasamtökunum, Neytendastofu, ÖBÍ réttindasamtökum, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum verslunar og þjónustu, Félagi atvinnurekenda, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Persónuvernd.
Meiri hlutinn fagnar fram kominni stefnu í neytendamálum til ársins 2030 og telur mikilvægt að hún nái fram að ganga. Þegar er hafin vinna við sumar aðgerðir stefnunnar og aðrar eru í mótun og undirbúningi. Allar aðgerðir stefnunnar eru til þess fallnar að bæta stöðu neytenda hér á landi og almennt voru umsagnaraðilar jákvæðir gagnvart stefnunni í heild þó að fram hafi komið ýmsar ábendingar, m.a. hvað varðar mögulega samstarfsaðila og fleiri atriði sem var bent á að væri tilefni til að taka til skoðunar, þar á meðal í tengslum við breytingar á lögum. Í sumum aðgerðum tillögunnar er fjallað um fyrirhugaðar lagabreytingar með það að markmiði að vinna að heildarendurskoðun og nútímavæðingu á löggjöf á sviði neytendamála, m.a. endurskoðun á lögum um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015, og lögum um fasteignakaup, nr. 40/2002. Þá er stefnt að heildarendurskoðun löggjafar á sviði neytendamála með frumvarpi til nýrra markaðssetningarlaga sem hefur þegar verið lagt fram á Alþingi ( 234. mál). Frumvarpinu er ætlað að efla virka samkeppni í viðskiptum og öfluga neytendavernd sem taki mið af tækniþróun síðustu ára.
Meiri hlutinn telur mikilvægt að uppfæra löggjöf, m.a. á grundvelli skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum. Meiri hlutinn undirstrikar jafnframt að með fyrirliggjandi tillögu til þingsályktunar sé verið að boða stefnu til næstu ára en jafnframt fari ítarlegri umfjöllun og frekara samráð fram þegar tilgreind frumvörp til laga verða lögð fram á Alþingi. Má í því samhengi vísa til umfjöllunar um breytingar á stofnanaumgjörð neytendamála en samkvæmt aðgerð stefnunnar er ætlunin að styrkja stofnanaumgjörð neytendamála í þágu neytenda. Hvað varðar mögulega sameiningu eða samrekstur Neytendastofu og Samkeppniseftirlits eru slíkar breytingar aðeins til skoðunar á þessu stigi en m.a. hefur verið unnið að úttektum og greiningum á kostum og göllum slíkrar sameiningar.
Meiri hlutinn telur að með stefnunni séu stigin jákvæð skref til hagsbóta fyrir neytendur í landinu og fagnar m.a. áherslu á eflingu neytendaverndar fyrir viðkvæma hópa og að gætt verði að mikilvægi íslenskrar tungu í markaðssetningu. Meiri hlutinn tekur þó jafnframt undir sjónarmið um að gæta þurfi meðalhófs svo að kröfur verði ekki of íþyngjandi og kostnaðarsamar fyrir fyrirtæki.
Loks getur meiri hlutinn þess að í greinargerð kemur fram að tillagan sé ekki að fullu fjármögnuð heldur fari mat á fjárhagslegum áhrifum fram eftir því sem aðgerðir stefnunnar mótast og tekið verði mið af því við gerð fjárlaga hvers árs fram til ársins 2030 og í uppfærslu á fimm ára ríkisfjármálaáætlun. Meiri hlutinn áréttar að stefnur sem þessi þurfa að vera innan þess ramma sem fjármálaáætlun kveður á um, ellegar koma þær ekki að fullu til framkvæmda. Meiri hlutinn beinir því til atvinnuvegaráðuneytisins að gert verði ráð fyrir þeim útgjöldum í áætlunum ráðuneytisins við uppfærslu á fimm ára fjármálaáætlun. Löggjafinn, að undangenginni umfjöllun fjárlaganefndar Alþingis, sbr. 6. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, tekur í kjölfarið afstöðu til tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
Alþingi, 8. desember 2025.
| Víðir Reynisson, form. |
María Rut Kristinsdóttir, frsm. |
Grímur Grímsson. | |
| Guðmundur Ari Sigurjónsson. | Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | ||