Ferill 336. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 497 — 336. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hversu oft hefur alþjóðleg vernd verið afturkölluð vegna ferðar útlendings til heimalands síns undanfarin tíu ár, sbr. 1. mgr. 48. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016? Svar óskast sundurliðað eftir árum og heimalandi.
2. Hvernig er háttað eftirliti með ferðum útlendings sem veitt hefur verið alþjóðleg vernd til heimalands síns?
Skriflegt svar óskast.