Ferill 337. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 498  —  337. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um samráð um stjórnarfrumvörp.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Hversu mörg stjórnarfrumvörp hafa verið lögð fram á Alþingi árið 2025 án þess að þau hafi áður farið í samráð í samráðsgátt stjórnvalda?
     2.      Hversu mörg slík frumvörp fengu styttri umsagnartíma í samráðsgátt en samþykkt ríkisstjórnar segir til um, eða 2–4 vikur?
     3.      Hvaða ástæður eru fyrir því að undantekningar eru gerðar á málsmeðferð í hverju tilviki um sig?


Skriflegt svar óskast.