Ferill 339. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 501 — 339. mál.
Fyrirspurn
til samstarfsráðherra Norðurlanda um norrænt samstarf.
Frá Dagbjörtu Hákonardóttur.
1. Hvernig vinnur ríkisstjórnin að því markmiði sem Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin hafa sett sér að Norðurlönd verði samþættasta og samkeppnishæfasta svæði heims fyrir árið 2030?
2. Hefur ráðherra kannað kosti þess að framkvæma að færeyskri fyrirmynd skyldubundið mat á því hvort þingmál eða ákvarðanir geti falið í sér stjórnsýsluhindranir á norræna vísu?
Skriflegt svar óskast.