Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 504 — 2. mál.
2. umræða.
Framhaldsnefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Nefndinni barst minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, dags. 4. desember, þar sem lagðar eru til frekari breytingar á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, og lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.
Í minnisblaðinu er farið ítarlega yfir þær breytingar sem ráðuneytið hefur í samráði við hagaðila unnið að og óskar eftir að nefndin geri að sínum.
Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, sem varða framlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða. Í fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 og frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 ( þskj. 1, 1. mál) var ekki gert ráð fyrir jöfnunarframlagi úr ríkissjóði vegna örorkubyrði til lífeyrissjóða. Í ljósi þess að endurskoðun á samspili greiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða til örorkulífeyrisþega er enn yfirstandandi er gerð tillaga um sambærilegt fyrirkomulag á jöfnun örorkubyrði á árinu 2026 og á árinu 2025. Fram til ársins 2024 var framlagi ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skipt milli allra lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags til jöfnunar örorkubyrði, sbr. lög um tryggingagjald, nr. 113/1990, óháð því hvort sjóðir hefðu háa eða lága örorkubyrði. Með breytingu á lögum um tryggingagjald, sbr. lög nr. 127/2024, var með ákvæði til bráðabirgða III ákveðið að breyta þessu fyrirkomulagi. Samkvæmt nýrri framkvæmd mun framlagið á árinu 2025 eingöngu renna til þeirra lífeyrissjóða þar sem hlutfall örorkulífeyrisskuldbindinga af framtíðarskuldbindingum er hærra en meðaltal allra sjóða. Þykir rétt, þar sem vinnu við framtíðarlausn á samspili greiðslna almannatrygginga vegna örorku annars vegar og greiðslna lífeyrissjóða vegna orkutaps hins vegar er ekki lokið, að lagt verði til að ákvæðið taki jafnframt til ársins 2026. Til að tryggja að framlag þess árs renni til lífeyrissjóða með verulega hærri örorkubyrði en meðaltal örorkuskuldbindinga sjóðanna er lagt til að framlagið renni eingöngu til lífeyrissjóða þar sem hlutfall örorkuskuldbindingar af framtíðarskuldbindingu er þremur prósentustigum yfir meðaltalinu. Vísast að öðru leyti til ítarlegs minnisblaðs fjármála- og efnahagsráðuneytis, dags. 4. desember 2025.
Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, sem fela í sér tillögu um framlengingu á gildistíma ákvæðis til bráðabirgða XI sem varðar víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða. Gildistíminn afmarkaðist síðast við 1. janúar 2025 til og með 31. ágúst sl. Forsaga málsins er að lög nr. 106/2011, sem fólu í sér breytingar á lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, voru samþykkt í kjölfar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og Landssamtaka lífeyrissjóða og vörðuðu m.a. víxlverkun örorkulífeyris úr almannatryggingakerfinu og greiðslna frá lífeyrissjóðum. Lögunum var ætlað að koma tímabundið í veg fyrir þá víxlverkun sem orðið hafði í samspili þessara tveggja meginstoða í lífeyristryggingum.
Víxlverkunin lýsir sér þannig að samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð lækka lífeyrisgreiðslur og greiðslur félagslegrar aðstoðar í mörgum tilfellum vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum. Þá er mælt fyrir um það í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða að sjóðfélagi í lífeyrissjóði eigi rétt á örorkulífeyri úr viðkomandi sjóði hafi hann orðið fyrir tekjuskerðingu af völdum orkutaps sem er metið 50% eða meira. Ákvæðið hefur verið útfært nánar í samþykktum lífeyrissjóða þar sem kveðið er á um að heildartekjur örorkulífeyrisþega eftir orkutap verði ekki umfram þær tekjur sem hann hafði fyrir. Við samanburð á heildartekjum fyrir og eftir orkutap líta lífeyrissjóðir m.a. til greiðslna almannatrygginga sem oft hefur leitt til þess að greiðslur til örorkulífeyrisþega úr lífeyrissjóðum hafa lækkað eða jafnvel fallið niður. Við þá tekjulækkun öðlast sömu einstaklingar aukin réttindi innan almannatryggingakerfisins sem aftur leiðir til enn frekari lækkunar á greiðslum frá lífeyrissjóðunum við næsta samanburð á gögnum frá Skattinum og síðan koll af kolli. Gagnkvæm tekjutenging almannatrygginga og greiðslna úr lífeyrissjóðum getur því leitt til tíðra breytinga á örorkulífeyrisgreiðslum og tilsvarandi óöryggis lífeyrisþega sem fyrst og fremst hefur bitnað á örorkulífeyrisþegum. Undanfarin ár hafa stjórnvöld unnið að heildarendurskoðun á örorkuhluta almannatryggingakerfisins og á vorþingi 2024 voru samþykktar breytingar á örorkuhlutanum sem leiddu til þess að nýtt greiðslukerfi almannatrygginga tók gildi 1. september 2025. Hin tímabundna stöðvun víxlverkunar, sem lögfest var með lögum nr. 106/2011, var framlengd árlega frá gildistöku þeirra, síðast með lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025, nr. 127/2024, og var stöðvun víxlverkunar framlengd til 31. ágúst 2025, eða þar til nýtt greiðslukerfi almannatrygginga tók gildi.
Til að tryggja að markmiðið um bætt kjör örorkulífeyrisþega nái fram að ganga hefur verið unnið að framtíðarlausn á samspili greiðslna almannatrygginga vegna örorku annars vegar og greiðslna lífeyrissjóða vegna orkutaps hins vegar. Vonir standa til þess að henni geti lokið á næsta ári. Af þeim sökum þykir tilefni til að leggja til framlengingu á gildistíma ákvæðis til bráðabirgða XI í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Tillögunni er þannig ætlað að koma tímabundið í veg fyrir að almennar hækkanir á greiðslum almannatrygginga til örorkulífeyrisþega leiði til lækkunar við útreikning lífeyrissjóða á lífeyri vegna orkutaps sjóðfélaga, örorkulífeyrisþegum til hagsbóta. Verði ekkert aðhafst mun meginmarkmið breytinga á örorkuhluta almannatryggingakerfisins ekki nást. Tillögunni er þannig ætlað að koma í veg fyrir að hluti af þeim auknu framlögum úr ríkissjóði vegna hins nýja örorkulífeyriskerfis, sem ætlað er að bæta kjör fólks með örorku og skerta starfsgetu, lækki útgjöld lífeyrissjóða í stað þess að hækka tekjur þeirra sem fá örorkulífeyri almannatrygginga og hafa jafnframt réttindi til örorkulífeyris úr lífeyrissjóðakerfinu. Í tillögunni felst ekki algert bann við víxlverkun heldur áframhald á sambærilegu fyrirkomulagi og verið hefur í gildi undanfarin ár en lögfesting hennar myndi draga úr neikvæðum áhrifum á ákveðinn hóp örorkulífeyrisþega. Ef tillagan verður að lögum mun fjármála- og efnahagsráðuneytið kanna, í samráði við lífeyrissjóði, hvernig til tekst við framkvæmd hennar. Vísast að öðru leyti til áðurnefnds minnisblaðs fjármála- og efnahagsráðuneytis.
Meiri hlutinn telur þær breytingar sem hér að framan er lýst, og unnar eru í samráði ráðuneytisins og hagaðila, til bóta en hvetur ráðuneytið til þess að ljúka endurskoðun á samspili almannatrygginga og lífeyrissjóða vegna greiðslna örorkulífeyris hið fyrsta, enda hefur sú óvissa sem er um þessi mál varað lengi og tilefni til þess að greiða úr ærið.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Á undan 18. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XI í lögunum:
a. Í stað orðanna „1. janúar 2025 til og með 31. ágúst 2025“ kemur: 1. september 2025 til og með 31. desember 2026.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Með almennum hækkunum er átt við 5,8% hækkun 1. september 2025 og 5,2% hækkun 1. janúar 2026.
2. Á eftir 23. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða III í lögunum:
a. Í stað orðanna „árinu 2024“ í 1. mgr. kemur: árunum 2024 og 2025.
b. Í stað orðanna „árinu 2025“ og „tveimur“ í 2. mgr. kemur: árunum 2025 og 2026; og: þremur.
Vilhjálmur Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 8. desember 2025.
| Arna Lára Jónsdóttir, form., frsm. |
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | Pawel Bartoszek. | |
| Sigmundur Ernir Rúnarsson. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | ||