Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 508 — 245. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.
1. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
Já, einn upplýsingafulltrúi er starfandi í ráðuneytinu.
2. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
| Stofnun | Upplýsingafulltrúi/ samskiptastjóri | Samskiptadeild |
| Hugverkastofan | Já | Nei |
| Listasafn Íslands | Nei | Nei |
| Náttúruminjasafn Íslands | Nei | Nei |
| Þjóðminjasafn Íslands | Nei | Nei |
| Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn | Nei | Nei |
| Þjóðskjalasafn Íslands | Nei | Nei |
| Listasafn Einars Jónssonar | Nei | Nei |
| Gljúfrasteinn – hús skáldsins | Nei | Nei |
| Kvikmyndasafn Íslands | Nei | Nei |
| Hljóðbókasafn Íslands | Nei | Nei |
| Þjóðleikhúsið | Já 1 | Nei |
| Sinfóníuhljómsveit Íslands | Nei | Nei |
| Íslenski dansflokkurinn | Já | Nei |
| Kvikmyndamiðstöð Íslands | Já | Nei |
| Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum | Nei | Já 2 |
| Miðstöð íslenskra bókmennta | Nei | Nei |
| Fjölmiðlanefnd | Nei | Já |
| Háskóli Íslands | Nei 3 | Já 4 |
| Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum | Nei | Nei |
| Háskólinn á Akureyri | Já | Já 5 |
| Landbúnaðarháskóli Íslands | Nei 6 | Nei |
| Hólaskóli – Háskólinn á Hólum | Nei | Nei |
| Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) | Já | Nei 7 |
| Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra | Nei | Nei |
3. Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.
Í ráðuneytinu er ekki starfrækt upplýsinga- eða samskiptadeild. Varðandi undirstofnanir er vísað til svars við 2. tölul. fyrirspurnarinnar auk meðfylgjandi yfirlita frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri.
Háskóli Íslands.
Markaðs- og samskiptasvið Háskóla Íslands annast samskipta- og upplýsingastarf skólans í heild. Starfsemi þess byggist á því lögbundna hlutverki háskóla að miðla þekkingu og fræðslu til samfélagsins, sbr. lög um háskóla, nr. 63/2006. Þar er miðlun talin ein af meginstoðum háskólastarfs, ásamt kennslu og rannsóknum. Í lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008, er jafnframt lögð áhersla á að opinberir háskólar veiti samfélaginu fræðslu og þjónustu í krafti þekkingar sinnar, sem endurspeglar þá samfélagsskyldu sem miðlunar- og upplýsingastarf HÍ stendur á. Háskólar hafa þannig algjöra sérstöðu hvað varðar miðlun því með henni uppfylla þeir skyldur sínar að lögum auk þess sem miðlunin er samfélagslega brýn. Hún tryggir að almenningur hafi aðgang að skýrum, áreiðanlegum og gagnreyndum upplýsingum sem nýtast m.a. við ákvarðanatöku, lýðræðislega umræðu og daglegt líf. Með virkri miðlun verða rannsóknir og niðurstöður þeirra að sameiginlegri þekkingu sem styrkir velferð samfélagsins í heild.
Eftirfarandi tafla sýnir starfsmannafjölda Markaðs- og samskiptasviðs (ársverk) 2017– 2024:
| Ár | Ársverk |
| 2017 | 12,4 |
| 2018 | 12,6 |
| 2019 | 13,1 |
| 2020 | 12,7 |
| 2021 | 13,2 |
| 2022 | 13,8 |
| 2023 | 10,7 |
| 2024 | 10,5 |
Háskólinn á Akureyri.
Hjá Háskólanum á Akureyri eru nú 3,8 stöðugildi hjá teyminu Markaðs- og kynningarmál. Teymið sér um alla ytri miðlun og samskipti, auglýsingar, fjölmiðlatengsl, samfélagsmiðla, viðburðahald og ímyndarmál ásamt þróun og uppbyggingu námssamfélags skólans. Þá sér teymið um innra upplýsingaflæði háskólans, leiðamerkingar, upplýsingaskjái og aðra staði þar sem upplýsingar eða merkingar eru til staðar innan húss. Teymið skipa eftirtaldir starfsmenn: samskiptastjóri, verkefnisstjóri samfélagsmiðla og samskipta- og verkefnastjóri námssamfélags, allir í 100% starfi, og vefstjóri í 80% starfi. Undanfarin tíu ár hafa stöðugildi hjá einingunni verið tæplega þrjú, sjá nánar eftirfarandi töflu:
| Ár | Fjöldi stöðugilda |
| 2015 | 3 |
| 2016 | 3 |
| 2017 | 3 |
| 2018 | 3 |
| 2019 | 2 |
| 2020 | 2 |
| 2021 | 3 |
| 2022 | 2,6 |
| 2023 | 3 |
| 2024 | 2,8 |
| 2025 | 3,8 |
1 Kynningarfulltrúi og markaðsstjóri eru starfandi hjá Þjóðleikhúsinu.
2 Miðlunarsvið er starfandi hjá Stofnun Árna Magnússonar. Þar starfa auk sviðsstjóra, sem jafnframt er kynningarstjóri, vefstjóri, forritari, safnkennari og verkefnastjóri.
3 Kynningarstjórar eru starfandi hjá Háskóla Íslands.
4 Samskiptastjóri leiðir Markaðs- og samskiptasvið Háskóla Íslands auk þess sem kynningar-, vef- og viðburðastjórar starfa á fræðasviðum skólans, sjá nánar svar við 3. tölul. fyrirspurnarinnar.
5 Hjá Háskólanum á Akureyri er starfandi teymið Markaðs- og kynningarmál, sjá nánar svar við 3. tölul. fyrirspurnarinnar.
6 Kynningarstjóri er starfandi hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.
7 Formleg upplýsinga- eða samskiptadeild er ekki starfrækt hjá Rannís. Í kynningarteymi eru kynningarfulltrúi, vefstjóri og sérfræðingur kynningarmála auk mannauðs- og samskiptastjóra sem stýrir teyminu.