Ferill 263. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 509  —  263. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999 (framlenging gildistíma o.fl.).

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, Samtökum iðnaðarins, Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda og RVX (Reykjavik Visual Effects).
    Nefndinni bárust þrjár umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999. Helstu breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu eru framlenging á gildistíma endurgreiðslu kerfisins til ársins 2028 og aukin áhersla á framleiðslu barna- og ungmenna efnis og eru lagðar til skýrari skilgreiningar á hugtökum.

Umfjöllun nefndarinnar.
Barna- og ungmennaefni (a-liður 3. gr.).
    Með a-lið 3. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 5. gr. laganna. Er þar lagt til að stutt verði sérstaklega við barna- og ungmennaefni og í ákvæðinu skýrt nánar hvað teljist til slíks efnis. Við umfjöllun um málið komu fram sjónarmið um að fjármögnun á barna- og unglingaefni sé erfiðari en á öðru sjónvarpsefni og að skortur sé á innlendu efni. Telur meiri hlutinn það jákvætt skref að framleiðslu á því efni sé gert hærra undir höfði en verið hefur. Undanfarið hefur verið mikil umræða um það í samfélaginu að íslenskukunnáttu þjóðarinnar hafi hrakað, ekki síst meðal barna og ungmenna. Þá er staða barna og ungmenna af erlendum uppruna ekki góð þegar kemur að íslenskri tungu. Meiri hlutinn telur m.a. af þeim sökum að mikilvægt sé að gripið sé til aðgerða sem spornað geti við þeirri þróun sem átt hefur sér stað að undanförnu og telur að frumvarpið geti gagnast sem liður í því að efla íslenska tungu, en tungumálið er ein af meginforsendum þess að einstaklingum vegni vel í leik og starfi hér á landi.

Endurgreiðslur umfram 300 milljónir króna (b-liður 3. gr.).
    Með b-lið 3. gr. er lagt til að ný málsgrein bætist við ákvæði 5. gr. laganna þar sem kveðið verði á um að endurgreiðslur til verkefna, þar sem áætluð eða endanleg heildarendurgreiðsla fer yfir 300 millj. kr., verði ekki greiddar út fyrr en í fyrsta lagi einu og hálfu ári eftir að umsókn um endurgreiðslu er lögð fram. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem koma fram í greinargerð með frumvarpinu um að með þessu fyrirkomulagi verði betur hægt að meta fjárþörf kerfisins hverju sinni og eðlilegt að auknar kröfur séu gerðar um fyrirsjáanleika hvað það varðar.

Endurskoðun á regluverki.
    Nefndin fjallaði um endurskoðun regluverks um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar. Í umsögnum til nefndarinnar og við umfjöllun málsins kom fram að tímabært væri að huga að heildarendurskoðun og uppfærslu á regluverkinu. Meiri hlutinn tekur undir að brýnt sé að ráðast í heildarendurskoðun í nánu samráði við hagaðila. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að hefja vinnu við endurskoðunina við fyrsta tækifæri.

Breytingartillögur.
Heildarframleiðslukostnaður (1. gr.).
    Með 1. gr. frumvarpsins er lagt til að 2. málsl. 3. mgr. 2. gr. falli brott og við ákvæðið bætist ný málsgrein sem kveði á um að með heildarframleiðslukostnaði sé átt við heildarframleiðslukostnað kvikmynda- eða sjónvarpsefnis, óháð því hvar hann fellur til.
    Við umfjöllun um málið kom fram að lögin hafi ekki verið nægilega skýr um hvort laun og verktakagreiðslur hafi talist til framleiðslukostnaðar á grundvelli laganna hafi sá kostnaður ekki verið skattlagður á Íslandi. Framleiðslukostnaður sem verður til innan EES geti verið stór þáttur og jafnvel grundvöllur framleiðslunnar og telur meiri hlutinn rétt að undirstrika að umsækjendur geta með breytingunni áfram sótt um endurgreiðslu af framleiðslukostnaði vegna launa- og verktakagreiðslna sem falla til innan EES, Grænlands og Færeyja, að uppfylltu skilyrði um að meira en 80% af heildarframleiðslukostnaði falli til hér á landi.
    Við umfjöllun um málið barst umsögn frá nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar þar sem gerðar eru athugasemdir við 1. gr. frumvarpsins og lagðar til breytingar á 2. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna. Í umsögninni kemur m.a. fram að inntak hugtaksins „heildarframleiðslukostnaður“ sé skýrt samkvæmt gildandi lögum. Með heildarframleiðslukostnaði sé átt við allan kostnað kvikmyndar eða sjónvarpsþátta sem fallið hefur til innan EES, en til aðgreiningar er hugtakið „framleiðslukostnaður“ notað yfir þann kostnað sem er endurgreiðsluhæfur, þ.e. kostnað sem uppfyllir skilyrði laganna sem og kostnað sem reynist endurgreiðsluhæfur á grundvelli 2. mgr. 2. gr. og að aðgreining þessara hugtaka sé nauðsynleg til að beita ákvæði 2. mgr. 2. gr. Í umsögninni er tekið fram að sú skýring á ákvæði 2. gr. sem þar er lögð til grundvallar hafi verið hluti af framkvæmd nefndarinnar frá upphafi, en borið hafi á því að fámennur hópur umsækjenda hafi túlkað ákvæðið með þeim hætti að með heildarframleiðslukostnaði sé átt við þann kostnað sem sótt er um endurgreiðslu fyrir. Ef sá skilningur yrði lagður til grundvallar yrði um samruna á hugtökunum heildarframleiðslukostnaði og framleiðslukostnaði að ræða og beiting 2. mgr. 2. gr. laganna í raun marklaus.
    Meiri hlutinn áréttar, líkt og kemur fram í umsögninni, að þeirri breytingu sem lögð er til með frumvarpinu er ætlað að skýra ákvæði 2. gr. frekar, en ekki breyta framkvæmd endurgreiðslna hvað þetta varðar. Bendir meiri hlutinn á að í skýringum við ákvæði b-liðar 2. gr. frumvarpsins í greinargerð með því er það tekið sérstaklega fram að mikilvægt sé að taka af tvímæli um skilgreiningu orðsins heildarframleiðslukostnaður eins og það kemur fram í lögunum, þ.e. hvort með því sé átt við heildarframleiðslukostnað umsækjanda vegna þess verkefnis sem viðkomandi tekur að sér, mögulega sem hluta af kvikmynd eða sjónvarpsefni, eða heildarframleiðslukostnað kvikmyndar eða sjónvarpsefnis óháð hlutdeild umsækjanda um endurgreiðslu hér á landi í þeim heildarkostnaði. Í ljósi þessa tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið sem koma fram í umsögn nefndar um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar og leggur til breytingar á 2. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna.

Ákvæði til bráðabirgða I.
    Í 1. málsl. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I kemur fram að aðili máls þar sem beiðni um útborgun endurgreiðslu sem barst á árinu 2025 hefur verið hafnað að hluta eða öllu leyti á grundvelli 2. málsl. 3. mgr. 2. gr. laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999, eins og ákvæðið var fyrir gildistöku laga þessara, eigi rétt á að óska eftir endurupptöku málsins.
    Í umsögn Samtaka iðnaðarins er lögð áhersla á að ákvæðið nái einnig til ársins 2024 og mikilvægt að það sé tilgreint í lögunum. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið og leggur til breytingar á ákvæði til bráðabirgða I þar að lútandi.

Aðrar tillögur.
    Meiri hlutinn leggur til nokkrar lagatæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið. Þær breytingar sem lagðar eru til snúa fyrst og fremst að leiðréttingum á millivísunum í lögunum.
    Í 2. málsl. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að beiðni um endurupptöku skuli berast nefndinni innan 60 daga frá dagsetningu tilkynningar hennar. Í skýringum við ákvæðið í greinargerð með frumvarpinu er hins vegar vísað til þess að þessi frestur skuli vera 90 dagar. Leggur meiri hlutinn því til að þessi fjöldi daga sem tiltekinn er í frumvarpinu verði leiðréttur til samræmis við það sem fram kemur í greinargerð.
    Þá leggur meiri hlutinn til að ákvæði til bráðabirgða II færist inn í stofnlögin, þ.e. lög nr. 43/1999.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Við 1. gr. bætist nýr stafliður sem verði a-liður, svohljóðandi: Í stað orðsins „heildarframleiðslukostnaði“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: framleiðslukostnaði.
     2.      Á eftir 3. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                  Í stað tilvísunarinnar „3. mgr. 5. gr.“ í a-lið 3. mgr. 5. gr. a laganna kemur: 6. mgr. 5. gr.
     3.      4. gr. orðist svo:
                  1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:
                  Ákvörðun nefndar um endurgreiðslur skv. 3. og 5. gr. og framlengingu skv. 4. mgr. 4. gr. er kæranleg til ráðuneytisins, sbr. 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga.
     4.      Við 5. gr. bætist tveir nýir liðir, svohljóðandi:
                  a.      Í stað tilvísunarinnar „6. mgr. 4. gr.“ kemur: 8. mgr. 4. gr.
                  b.      Í stað tilvísunarinnar „6. mgr. 5. gr.“ kemur: 9. mgr. 5. gr.
     5.      Á eftir 6. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                  Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                  Ráðherra setur á laggirnar starfshóp sem skal endurskoða ákvæði laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi og að lokinni þeirri endurskoðun skila tillögum til breytinga til ráðherra fyrir 1. mars 2026.
     6.      Í stað tilvísunarinnar „1.–5. gr.“ í 7. gr. komi: 1.–6. gr.
     7.      Við ákvæði til bráðabirgða I.
                  a.      Á undan ártalinu „2025“ í 1. mgr. komi: 2024 og.
                  b.      Í stað orðanna „60 daga“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: 90 daga.
     8.      Ákvæði til bráðabirgða II falli brott.

    Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 9. desember 2025.

Sigurjón Þórðarson,
form.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
frsm.
Eiríkur Björn Björgvinsson.
Eydís Ásbjörnsdóttir. Ingvar Þóroddsson. Lilja Rafney Magnúsdóttir.