Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 510  —  2. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.

Frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Efnahags- og viðskiptanefnd hefur fengið á sinn fund fjölda gesta sem hafa fylgt eftir umsögnum sínum og svarað spurningum nefndarmanna. Fyrsti minni hluti telur að ekki hafi verið tekið nægjanlegt tillit til fjölmargra réttmætra umsagna sem bentu á galla á frumvarpinu. Einnig hefur verið sýnt fram á að hegðunarbreytingar vegna fyrirhugaðra skattahækkana hafa nú þegar orðið það miklar að ljóst er að áætlanir stjórnvalda um tekjuaukningu næsta árs standast ekki. Það er hins vegar ljóst að ef frumvarpið verður samþykkt óbreytt mun neikvæðra hliðaráhrifa gæta vítt og breitt um landið. Áhrifin gætu orðið til þess að heildarskattspor minnki í stað þess að stækka.
    Hliðaráhrifin koma fram til að mynda hjá fjölda minni og meðalstórra fyrirtækja sem verða fyrir áhrifum vegna skattahækkana á bifreiðar og vegna ofsköttunar á skemmtiferðaskip. Höggið verður mjög þungt fyrir ferðaþjónustuna og minni sveitarfélög.
    Nú þegar þessar fyrirséðu afleiðingar liggja fyrir er vænlegast að vinda ofan af tillögunum áður en meiri skaði verður. Endurmeta þarf tekjuhlið fjárlaga og standa við kosningaloforð þess efnis að hækka ekki skatta á almenning og hagræða þess í stað í ríkisrekstri.

Umfjöllun 1. minni hluta.
Sóknargjöld.
    Í frumvarpinu er lagt til að lækka sóknargjöld í 1.133 kr. Fyrsti minni hluti leggst gegn þeirri breytingu. Fyrsti minni hluti telur breytingartillögu meiri hlutans þess efnis að sóknargjöld standi í stað ásættanlega og styður því þá tillögu að sóknargjöld verði óbreytt, þ.e. 1.221 kr. á árinu 2026.

Tollfrelsi skipa í innanlandssiglingum.
    Skip í innanlandssiglingum hafa mikil jákvæð fjárhagsleg áhrif á hafnir vítt og breitt um landið sem og aðra afleidda þjónustu sem fylgir skipunum og farþegum þeirra. Mestu skiptir afnám tollfrelsis fyrir minni hafnir landið um kring og minni sveitarfélög þar sem fjölbreyttur rekstur þrífst í kringum komur skipanna. Tollfrelsið er einnig mikilvægur liður í dreifingu ferðamanna um landið.
    Fyrsti minni hluti er sammála breytingartillögu meiri hlutans þess efnis að ótímabært sé að afnema tollfrelsi skipa í innanlandssiglingum og styður því tillögu þess efnis að 22. gr. laga nr. 102/2023 falli brott.

Framlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða og víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða.
    Tillaga fjármála- og efnahagsráðuneytis, sbr. minnisblað dags. 4. desember sl., um breytingu á starfsemi lífeyrissjóða þess efnis að áunnin réttindi lífeyrisþega verði nýtt til að hækka greiðslur almannatrygginga til örorkulífeyrisþega er ekki góð útfærsla og telur 1. minni hluti einsýnt að finna þurfi betri framtíðarlausn. Því styður 1. minni hluti breytingartillögu meiri hlutans þess efnis að leggja til framlengingu á ákvæði til bráðabirgða XI í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.
    Tillögunni er ætlað að koma tímabundið í veg fyrir að almennar hækkanir á greiðslum almannatrygginga til örorkulífeyrisþega leiði til lækkunar við útreikning lífeyrissjóða á lífeyri vegna orkutaps sjóðfélaga, örorkulífeyrisþegum til hagsbóta.

Breytingartillögur sem varða lög um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993.
    Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 má sjá að ríkisstjórnin leggur til 7,5 milljarða kr. hækkun á vörugjöldum. Þær tillögur voru hins vegar óútfærðar og meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar var falið að vinna að útfærslunni og leggja fram 7,5 milljarða kr. skattahækkun á almenning með breytingartillögu við frumvarpið. Vinnu sinni til stuðnings hafði meiri hluti nefndarinnar minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, dags. 17. október sl.
    Svona umfangsmikil skattahækkun fær fyrir vikið ekki faglega þinglega meðferð. Lokatillaga efnahags- og viðskiptanefndar liggur ekki fyrir fyrr en eftir að gestakomum þeirra sem sendu umsagnir við frumvarpið er lokið. Fyrsti minni hluti telur þessi vinnubrögð óboðleg.
    Ljóst er að um verulega íþyngjandi aðgerð er að ræða sem hefur víðtæk áhrif á einstaklinga og fyrirtæki. Í engu er tekið tillit til breytinga á kauphegðun vegna fyrirhugaðra skatta og ekki virðist hafa komið til greina að hækka gjaldið í skrefum. Nú er fyrirséð að tekjur skila sér ekki en einstaklingum og fyrirtækjum hefur verið ýtt út í ótímabærar fjárfestingar. Samkeppnisstaða fyrirtækja skekkist þar sem ljóst er að ekki eru allir í aðstöðu til að fara í fjárfestingar löngu áður en að fjárfestingin á möguleika á að skila tekjum.
    Sjá má í fjölda umsagna að gengið er of langt í skattahækkunum á bifreiðar. Þessi gríðarlega hækkun leggst ofan á hækkun vegna boðaðra skatta í frumvarpi um kílómetragjald á ökutæki ( 144. mál) sem og 3,7% krónutöluhækkun gjalda. Allir þessir skattar leggjast ofan á þá fjölmörgu skatta sem settir hafa verið á bifreiðaeigendur undanfarin ár.
    Hækkun vörugjalda mun bitna hart á heimilum landsins, hækka verðlag, ekki síst á landsbyggðinni, veikja samkeppnisstöðu Íslands þegar kemur að ferðaþjónustu. Ásamt öllum öðrum neikvæðu áhrifum sem ofsköttun hefur á samfélagið.
    Fyrsti minni hluti leggst alfarið gegn þessari hækkun. Skattar sem bifreiðaeigendur greiða eru langt umfram þær upphæðir sem ríkisstjórnin hyggst setja í vegakerfið. Það er því ljóst að það er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar sem þarf að breytast til að styrkja innviði vegakerfisins en ekki auknar skattahækkanir.
    Í frumvarpinu er að mati 1. minni hluta að finna fjölmargar gjalda- og skattahækkanir sem eru til óþurftar. Ríkisstjórnin reynir með orðaleikjum og nýyrðasmíð að halda því fram að hækkun skatta sé bara minni eftirgjöf af hálfu ríkisins. Með slíku viðhorfi virðist ríkisstjórnin líta svo á að skattar séu 100% og frávik frá því sé eftirgjöf? Er það mat 1. minni hluta að þetta viðhorf sé ólíðandi gagnvart sjálfsaflafé fólks.

Samnýting skattþrepa.
    Fyrsti minni hluti leggst alfarið gegn því að samsköttunarheimild hjóna og sambýlisfólks milli tveggja skattþrepa verði felld brott. Samsköttun sambýlisfólks og hjóna byggist á sameiginlegum fjárhagslegum réttindum og skyldum. Með þessum breytingum er verið að höggva í hugmyndina um fjölskylduna sem hornstein í samfélagi okkar. Fjölskyldan er mikilvægasta velferðarkerfið. Innan fjölskyldna tökumst við á hendur ábyrgð á öðru fólki, mökum, börnum, öldruðum foreldrum og jafnvel fjarskyldari ættmennum. Því skýtur ansi skökku við að ríkisstjórnin beri fyrir sig að um einhvers konar einföldun sé að ræða þegar einn liður í lögum um samsköttun er tekinn út fyrir mengið. Augljóslega er bara um hreina skattahækkunartillögu að ræða.
    Eftir að fjölþrepaskattkerfi var tekið upp skiptir máli fyrir mörg hjón að ófyllt skattþrep tekjulægri hjóna geti flust til hins. Augljóslega varðar þetta þau hjón litlu hafi báðir aðilar sömu tekjur. Hins vegar skiptir það þau hjón miklu þar sem annað hjóna er mun tekjulægra en hitt, jafnvel tekjulaust. Bæði hjónin bera jafn mikla ábyrgð á fjölskyldum sínum. Verði heimild til samsköttunar felld niður verður heildarskattbyrði þessara hjóna mjög ólík. Hjón sem hafa jafn háar tekjur munu bera minni skattbyrði en hjón sem afla ójafnra tekna. Þau síðarnefndu þurfa að bera aukna skattbyrði, með öðrum orðum skattahækkun.
    Í engu er hins vegar slegið af skyldum, sambýlisfólk ber til að mynda sameiginlega ábyrgð á skattaskuldum hvort annars. Sameiginleg ábyrgð hjóna er gegnumgangandi stef í íslenskri löggjöf sem lýtur að málefnum fjölskyldunnar. Bæði er málefnalegt og æskilegt að standa vörð um þetta elsta tryggingafélag mannkyns. Það hafa stjórnvöld gert með margvíslegum hætti sem miða að fjárhagslegum stöðugleika fjölskyldna. Samsköttun hjóna er dæmi um viðleitni að þessu leyti.
    Fyrsti minni hluti telur að nær hefði verið að ýta undir fjölskyldueininguna og auðvelda sambýlisfólki og hjónum að eignast heimili og börn. Því hefði verið æskilegra að koma með hvata og auka frekar möguleika til samnýtingar þrepa. Fyrsti minni hluti styður breytingartillögu á þingskjali 256 sem kveður á um að 25. og 30. gr. frumvarpsins falli brott.

Ónýttur persónuafsláttur til greiðslu fjármagnstekjuskatts.
    Ónýttan persónuafslátt hefur mátt nýta á móti fjármagnstekjuskatti. Langflestir hafa einhverjar tekjur og nýta þar með persónuafslátt sinn. Þó er ekki loku fyrir það skotið að einhverjir vildu nýta sér það að segja sig ekki til sveitar þótt þeir hafi engar atvinnutekjur. Maður getur t.d. verið í þeirri stöðu um tíma að hafa engar atvinnutekjur án þess að þiggja bætur eða lífeyrisgreiðslur en hafa fjármagnstekjur, t.d. vegna útleigu fasteignar. Hvers vegna getur ríkisstjórnin ekki unnt þeim manni þess að nýta persónuafsláttinn sinn vegna fjármagnstekna?
    Fyrsti minni hluti getur unnt fólki þess og styður fyrir vikið breytingartillögu á þingskjali 256 þess efnis að 26. gr. frumvarpsins falli brott.

Breytingartillögur.
Verðlagsuppfærsla krónutöluskatta.
    Í frumvarpinu er lögð til verðlagsuppfærsla krónutöluskatta upp á 3,7% sem er 1,2% yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Um er að ræða skatta eins og kolefnisgjald, olíugjald og kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, almennt og sérstakt bensíngjald, bifreiðagjald og gjald af áfengi, tóbaki og nikótínvörum. Þessi skattur kemur í ofanálag á aðra skatta á bifreiðaeigendur. Í umsögnum sem bárust nefndinni komu fram þau sjónarmið, sem 1. minni hluti tekur undir, að krónutöluskattar ættu ekki að hækka umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
    Fyrsti minni hluti tekur ekki undir þau sjónarmið stjórnvalda að nauðsynlegt sé að hækka umrædd gjöld til þess að þau haldi verðgildi sínu milli ára. Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að ríkið gangi á undan með góðu fordæmi og að krónutöluhækkanir verði ekki umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Að mati stjórnvalda er um að ræða aðgerð á tekjuhlið ríkisfjármála sem miðar að því að draga úr þenslu og verðbólgu, slík staðhæfing stenst ekki skoðun á meðan ríkisstjórnin eykur á sama tíma gríðarlega við útgjöld ríkissjóðs.

Innviðagjald á skemmtiferðaskip.
    Að mati 1. minni hluta hefur þegar sýnt sig að gengið var of langt í skattahækkunum á skemmtiferðaskip. Afleiðingar þess að grípa ekki inn í þá þegar eru augljósar, veruleg fækkun í komum skemmtiferðaskipa næstu árin með öllum þeim afleiddu áhrifum sem því fylgja. Sveitarfélög verða af tekjum, stoðum verður kippt undan ferðaþjónustufyrirtækjum og öðrum aðilum sem hafa undanfarin ár byggt upp rekstur tengdan komum skemmtiferðaskipa.
    Þær umsagnir sem nefndinni bárust eru skýrar, neikvæðra áhrifa mun gæta víða og tekjur sem eru áætlaðar skila sér ekki. Hafnir eru þegar farnar að sjá fram á allt að 95% fækkun í skipakomum, að mati 1. minni hluta er ljóst að afnám tollfrelsis skemmtiferðaskipa spilar þar stóra rullu. Að mati 1. minni hluta segir það sig sjálft að hærri skattur á litlar sem engar tekjur skila sér ekki. Verulega hefur skort á fyrirsjáanleika þegar kemur að svokölluðu innviðagjaldi á skemmtiferðaskip. Í ljósi þess að skaðinn er að hluta skeður, þar sem þó nokkur skip stefna á að sigla á aðrar norðlægar slóðir í stað Íslands í kjölfarið á ofsköttun, þá leggur 1. minni hluti til að vörn verði snúið í sókn.
    Ef litið er á gistináttaskatt á farþega skemmtiferðaskipa í nágrannalöndum er hann enginn eða mun lægri en á Íslandi. Víðast hvar eru það sveitarfélög sem innheimta skattinn beint. Þau þurfa þá að hugsa hann vandlega til að draga ekki úr öðrum tekjum af skemmtiferðaskipum, svo sem tekjum vegna hafnargjalda sem skipafélögin borga og skatttekjum sem fást af hliðarstarfsemi sem verður til í kringum komur þeirra.
    Danmörk, Bretland, Írland, Noregur og Skotland innheimta ekki innviðagjald/gistináttaskatt á skemmtiferðaskip (þó er í skoðun í Noregi og Skotlandi að setja á gistináttaskatt). Þýskaland innheimtir 1 evru á farþega á hverja nótt, Færeyjar 8,7 evrur og Svalbarði 12,9 evrur. Það má leiða líkur að því að Noregur sé okkar helsti samkeppnisaðili þegar kemur að skemmtiferðaskipum. Fyrsti minni hluti leggur því til að það verði enginn gistináttaskattur innheimtur 2026 til að reyna að vinda ofan af hruni í áætluðum komum skemmtiferðaskipa til Íslands, þannig megi efla samkeppnishæfni okkar.
    Bókanir í skemmtiferðaskip fara að stórum hluta fram með 1–2 ára fyrirvara. Fyrirsjáanleiki í breytingu á skattheimtu er því mjög mikilvægur. Skotland hefur til að mynda fest fyrirsjáanleika í lög. Ef sveitarfélög taka upp gistináttaskatt á skemmtiferðaskip verður að tilkynna þá breytingu með 18 mánaða fyrirvara.
    Ef innbyggðir væru hvatar í kerfið yrði líklegra að þeir sem hafa ekki nú þegar pantað velji Ísland sem áfangastað og að þungi skipafélaganna á að auglýsa lausu plássin til Íslands yrði meiri en ella. Við erum búin að skattleggja okkur út úr samkeppninni.
    Fyrsti minni hluti leggur til að í framhaldinu verði gistináttaskattur tekinn upp í þrepum til að stuðla að fyrirsjáanleika fyrir alla hagaðila. Jafnvægi þarf að vera í innheimtu annars vegar gagnvart gistináttaskatti sem er rukkaður á hverja gistinótt á hótelherbergi (sem er í dag 800 kr.) og hins vegar að vera samkeppnishæf við löndin í kringum okkur þegar kemur að gjöldum sem eru lögð á skemmtiferðaskip. Breytingartillaga 1. minni hluta er því að enginn skattur verði innheimtur 2026, árið 2027 verði hann 400 kr. á hvern farþega á hverja nótt, árið 2028 verði hann 600 kr. á farþega á hverja nótt, börn 12 ára og yngri verði undanskilin gistináttaskatti.
    Með þessum breytingum telur 1. minni hluti að hægt verði að vinda ofan af hluta þess skaða sem hefur orðið og koma í veg fyrir meira tjón, tjón sem er fyrirséð að verði ef við höldum áfram þeirri vegferð að skattleggja greinina meira en samkeppnislönd okkar gera. Dæmin eru til, Alaska fór þá leið að ofskatta skemmtiferðaskip. Brugðist var of seint við til að draga úr skattbyrðinni. Fyrir vikið tók yfir tíu ár að rétta kúrsinn og fá skipin til að koma aftur í svipuðum mæli.

Niðurstaða.
    Fyrsti minni hluti er á móti öllum þeim skattahækkunum sem eru áformaðar í frumvarpinu en hefur gert grein fyrir þeim breytingartillögum sem hann telur mikilvægast að nái fram að ganga landsmönnum til heilla.
    Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Í stað „22,20 kr.“, „19,30 kr.“, „27,15 kr.“ og „24,10 kr.“ í 1. gr. komi: 21,94 kr.; 19,07 kr.; 26,86 kr.; og: 23,83 kr.
     2.      Við 2. gr.
                  a.      Í stað „156,45 kr.“ í a-lið komi: 154,60 kr.
                  b.      Í stað „142,50 kr.“ í b-lið komi: 140,85 kr.
                  c.      Í stað „192,85 kr.“ í c-lið komi: 190,60 kr.
     3.      Við 3. gr.
                  a.      Í stað „642,25 kr.“ í a-lið komi: 634,85 kr.
                  b.      Í stað „35,70 kr.“ í b-lið komi: 35,30 kr.
                  c.      Í stað „35,70 kr.“ í c-lið komi: 35,30 kr.
     4.      Við 4. gr.
                  a.      Í stað „806,70 kr.“ í a-lið komi: 797,35 kr.
                  b.      Í stað „44,75 kr.“ í b-lið komi: 44,25 kr.
     5.      Við 5. gr.
                  a.      Í stað „8,30 kr.“ í a-lið komi: 8,20 kr.
                  b.      Í stað „12,45 kr.“ í b-lið komi: 12,30 kr.
                  c.      Í stað „15,55 kr.“ í c-lið komi: 15,40 kr.
                  d.      Í stað „20,75 kr.“ í d-lið komi: 20,50 kr.
                  e.      Í stað „41,50 kr.“ í e-lið komi: 41 kr.
                  f.      Í stað „62,20 kr.“ í f-lið komi: 61,50 kr.
     6.      Í stað „35,85“ í 6. gr. komi: 35,40 kr.
     7.      Í stað „57,70 kr.“ og „61,15 kr.“ í 7. gr. komi: 57,05 kr.; og: 60,05 kr.
     8.      Í stað „80,15“ í 8. gr. komi: 79,25 kr.

     9.      Við 9. gr.
                  a.      Tafla í a-lið orðist svo:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


                  b.      Tafla í b-lið orðist svo:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     10.      Í stað „6,20 kr.“ í a-lið 10. gr. komi: 6,15 kr.
     11.      Í stað „10.370 kr.“ og „5.185 kr.“ í 11. gr. komi: 10.250 kr.; og: 5.125 kr.
     12.      Við 12. gr.
                  a.      Í stað „21.260 kr.“ og „188 kr.“ í a-lið komi: 21.012 kr.; og: 185,5 kr.
                  b.      Í stað „21.260 kr.“ og „154 kr.“ í b-lið komi: 21.012 kr.; og: 152,7 kr.
                  c.      Í stað „21.260 kr.“ og „154 kr.“ í c-lið komi: 21.012 kr.; og: 152,7 kr.
                  d.      Í stað „73.795 kr.“, „3,10 kr.“ og „115.460 kr.“ í d-lið komi: 72.939 kr.; 3,06 kr.; og: 114.123 kr.
     13.      Á undan 49. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                      2. mgr. 3. gr. a laganna orðast svo:
                      Innviðagjald skal vera 600 kr. fyrir hvern farþega 12 ára og eldri fyrir hvern byrjaðan sólarhring sem skipið dvelur á tollsvæði ríkisins.
     14.      49. gr. orðist svo:
                      Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                      Ekki skal greiða innviðagjald samkvæmt lögum þessum árið 2026.
                      Þrátt fyrir 2. mgr. 3. gr. a skal greiða innviðagjald fyrir hvern farþega um borð í skemmtiferðaskipi í millilandasiglingu á meðan skipið dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins, sbr. 2. gr. tollalaga, nr. 88/2005, og skal gjaldið vera 400 kr. fyrir hvern farþega 12 ára og eldri árinu 2027.

Alþingi, 10. desember 2025.

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.