Ferill 345. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 514 — 345. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um VIRK.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur.
1. Hversu mörgum einstaklingum hefur verið vísað úr endurhæfingarúrræðum á vegum VIRK eða öðrum endurhæfingarúrræðum sem VIRK hefur samið við undanfarin tíu ár, flokkað eftir úrræðum? Hvaða ástæður liggja að baki slíkum ákvörðunum og hvernig eru þær rökstuddar?
2. Hversu margir fyrrgreindra hafa fengið einhverfugreiningu eða hjá hve mörgum leikur grunur á að þeir séu á einhverfurófi?
3. Hversu mörgum einstaklingum hefur verið synjað um endurhæfingarþjónustu hjá VIRK undanfarin tíu ár? Hvaða ástæður liggja að baki slíkum ákvörðunum og hvernig eru þær rökstuddar?
4. Hversu margir þeirra sem hefur verið synjað um endurhæfingarþjónustu hafa fengið einhverfugreiningu eða hjá hve mörgum leikur grunur á að þeir séu á einhverfurófi?
Skriflegt svar óskast.