Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 515  —  346. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um geðheilsuteymi heilsugæslunnar.

Frá Rósu Guðbjartsdóttur.


     1.      Hversu mörgum einstaklingum hefur verið vísað úr þjónustu á vegum geðheilsuteyma heilsugæslunnar frá því þau tóku til starfa? Hvaða ástæður liggja að baki slíkum ákvörðunum og hvernig eru þær rökstuddar?
     2.      Hversu margir þeirra sem vísað var úr þjónustu hafa jafnframt fengið einhverfugreiningu eða hjá hve mörgum leikur grunur á einhverfu?
     3.      Hversu mörgum einstaklingum hefur verið synjað um þjónustu á vegum geðheilsuteyma heilsugæslunnar frá því þau tóku til starfa? Hversu margir þeirra hafa jafnframt fengið einhverfugreiningu eða hjá hve mörgum leikur grunur á einhverfu?


Skriflegt svar óskast.