Ferill 189. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 520  —  189. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Gnarr um meðferðarúrræði fyrir börn með alvarlegan fíknivanda.


     1.      Hver eru meðferðarúrræðin fyrir börn með alvarlegan fíknivanda hér á landi?
    Meðferðarúrræði fyrir börn með vímuefnavanda á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytisins eru rekin af Barna- og fjölskyldustofu. Þau eru fyrir börn á aldrinum 12–18 ára og eru eftirfarandi:
    Fjölkerfameðferð eða MST (e. Multisystemic Therapy) er fjölskyldumiðað meðferðarúrræði fyrir fjölskyldur barna á aldrinum 12–18 ára sem glíma við alvarlegan hegðunar- og/eða vímuefnavanda. Meðferðin felur fyrst og fremst í sér að auka færni foreldra til að takast á við vanda barna sinna og er mikilvægur þáttur í meðferðinni að ungmennið sé tilbúið til að taka þátt í henni. Hún stendur til boða um land allt og fer fram á heimili og í nærumhverfi barnsins. Meðferðin stendur yfir í 3–5 mánuði.
    Meðferð sem veitt er felur í sér samþættingu MST-meðferðar og atferlismiðaðrar vímuefnameðferðar (e. Contingency Management eða CM). CM er gagnreynd meðferð þar sem m.a. er unnið markvisst að því að kortleggja ýmsa hegðun, svo sem neysluhegðun og kveikjur. Út frá kortlagningunni eru fundnar leiðir til að vinna að því að hætta neyslu. Meðferðin byggir einnig á jákvæðri styrkingu, umbun og mælanlegum markmiðum. Meðferðin er veitt af sérhæfðu MST-teymi sem vinnur með ungmenninu sjálfu, fjölskyldu, skóla og öðrum aðilum í umhverfi barnsins. CM-vímuefnameðferð er áhrifarík meðferð til að draga úr vímuefnaneyslu og auka meðferðarheldni, bæði hjá fullorðnum og ungmennum. Hún er talin virka sérstaklega vel þegar hún er samþætt fjölskyldumeðferð eins og MST.
    Þegar fíknivandi er alvarlegur og ekki er talið að meðferð inni á heimili barns beri árangur stendur til boða meðferð á meðferðarheimili. Grunnmeðferð er meðferðar- og greiningarvistun þar sem vandi barna og fjölskyldna er kortlagður og meðferðaráætlun gerð. Slík meðferð fer fram á Blönduhlíð, sem er staðsett á Vogi, og stendur alla jafna yfir í 8–12 vikur með reglulegum heimfararleyfum.
    Ef talið er að barn þurfi áframhaldandi meðferð stendur til boða framhaldsmeðferð. Þá er gert ráð fyrir sex mánaða vistun með möguleika á skemmri eða lengri vistun eftir því hvernig gengur. Bjargey í Eyjafjarðarsveit sinnir framhaldsmeðferð fyrir stelpur og stálp. Frá og með janúar 2026 sinnir Lækjarbakki á Rangárvöllum að nýju framhaldsmeðferð fyrir stráka og stálp, en þangað til er sú meðferð veitt á meðferðarheimilinu Stuðlum í Fossaleyni í Reykjavík.
    Í vissum tilvikum á barn ekki afturkvæmt á öruggt heimili að meðferð lokinni og stendur þá til boða vistun á stuðningsheimili Barna- og fjölskyldustofu. Á því heimili er ekki gert ráð fyrir að vinna þurfi með alvarlegan fíknivanda heldur er það öðru fremur til þess fallið að aðstoða barn við frekari aðlögun út í samfélagið.

     2.      Hversu mörg börn með alvarlegan fíknivanda geta verið í meðferð á hverjum tíma?
    MST- og CM-meðferð fer fram á heimili og í nærumhverfi barns. Hver MST-meðferðaraðili getur þjónustað 4–5 fjölskyldur samtímis. Á Íslandi eru starfrækt þrjú MST-teymi, þar sem fjórir meðferðaraðilar eru í hverju teymi og geta því sinnt 48–60 ungmennum á hverjum tíma.
    Á hverju meðferðarheimili, Blönduhlíð, Bjargey og Lækjarbakka, er rými fyrir sex börn. Alls eru það 18 börn. Á Stuðlum er nú rými fyrir fjögur börn en þegar meðferðarheimilið á Lækjarbakka hefur starfsemi í janúar 2026 verður húsnæði Stuðla ekki lengur nýtt sem meðferðarheimili. Stuðningsheimili Barna- og fjölskyldustofu hefur rými fyrir þrjú börn.

     3.      Hversu lengi stendur meðferð yfir að meðaltali?
    Sjá svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.

     4.      Hversu mörg börn hafa farið í gegnum meðferð við alvarlegum fíknivanda frá árinu 2015 og með hvaða árangri?
    Tafla 1 sýnir heildarfjölda barna í meðferð á árunum 2015–2024 en sýnir ekki fjölda barna sem eru í meðferð við alvarlegum fíknivanda.

     Tafla 1. Heildarfjöldi barna í meðferð á árunum 2015–2024.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     5.      Hefur fjöldi þeirra barna sem leitað hafa meðferðar erlendis, t.d. til Bretlands, Bandaríkjanna eða Suður-Afríku, verið tekinn saman? Ef svo er, hversu mörg börn er um að ræða frá árinu 2015?
    Hvorki ráðuneytið né Barna- og fjölskyldustofa hafa undir höndum upplýsingar um fjölda barna sem hlotið hafa meðferð erlendis.