Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 544  —  1. mál.

3. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2026.

Frá allsherjar- og menntamálanefnd.


    Við sundurliðun 2 bætist eftirfarandi:

Heiðurslaun listamanna samkvæmt ákvörðun Alþingis.


    Við þann hóp listamanna sem nýtur heiðurslauna og tilgreindur er í fjárlögum fyrir árin 2021, 2023, 2024 og 2025, sbr. málaflokk 18.30 Menningarsjóðir og lög um heiðurslaun listamanna, nr. 66/2012, bætast eftirfarandi listamenn:
          1.      Ágúst Guðmundsson, f. 1947.
          2.      Ragnheiður Jónsdóttir, f. 1933.
          3.      Þórarinn Eldjárn, f. 1949.

Greinargerð.

Við fjárlög fyrir árið 2022 bættust ekki fleiri listamenn við þann hóp sem naut heiðurslauna samkvæmt ákvörðun Alþingis 18. desember 2020, sbr. fjárlög fyrir árið 2021. Við fjárlög fyrir árin 2023, 2024 og 2025 bættust samtals sjö við þann hóp listamanna sem nýtur heiðurslauna. Í lok árs 2024 og á árinu 2025 létust Jón Nordal, Jónas Ingimundarson og Jón Ásgeirsson og eru heiðurslaunaþegar nú 22. Með breytingartillögunni er lagt til að þrír listamenn bætist við þann hóp listamanna sem nú þegar nýtur heiðurslauna samkvæmt lögum um heiðurslaun listamanna, nr. 66/2012.