Ferill 268. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 552 — 268. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Sigríði J. Steingrímsdóttur um starfsumhverfi kennara.
1. Til hvaða aðgerða telur ráðherra að ríkið geti gripið í því skyni að bæta starfsumhverfi kennara á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi?
Í sameiginlegum hluta aðalnámskrár leik-, grunn- og framhaldsskóla frá árinu 2011 er fjallað um fagmennsku kennara. Þar er áréttað að kennarar gegni lykilhlutverki í öllu skólastarfi og að gæði menntunar og árangur skólakerfisins byggist fyrst og síðast á vel menntaðri og áhugasamri fagstétt kennara á öllum skólastigum. Þá kemur fram að fagmennska kennara byggist á sérfræðilegri starfsmenntun, þekkingu, viðhorfum og siðferði starfsins. Fagmennska kennara snýst um nemendur, menntun þeirra og velferð. Kennarar leitast við að skapa góðan skólabrag, réttlátar vinnureglur og hvetjandi námsumhverfi. Ráðuneytið telur tímabært að huga að endurskoðun á almennum hluta aðalnámskráa leik-, grunn- og framhaldsskóla þar sem m.a. verði fjallað nánar um starfsumhverfi kennara á öllum skólastigum og hlutverk þeirra í inngildandi skólastarfi til framtíðar.
Hæfnirammi fyrir kennara og skólastjórnendur fjallar um mikilsverðustu þættina í starfi kennara og skólastjórnenda. Hæfni kennara er skipt í almenna og sérhæfða hæfni, sbr. lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 95/2019. Hæfniramminn er nánar skilgreindur og útfærður í reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla, nr. 1355/2022. Hæfniramminn veitir leiðsögn um inntak kennaramenntunar og starfsþróun kennara og skólastjórnenda.
Hæfniramminn er endurskoðaður reglulega þar sem kröfur til kennara breytast með tímanum. Nú stendur kennararáð fyrir kynningum á inntaki reglugerðarinnar fyrir kennara, skólastjórnendur, háskóla og þá sem koma að mati á skólastarfi og starfsþróun. Virkt samtal við vettvanginn er mikilvægt og er það hér fyrsta skrefið í stöðugri endurskoðun hæfnirammans. Regluleg endurskoðun hæfnirammans á vettvangi kennararáðs getur þannig stuðlað að bættu starfsumhverfi kennara um land allt.
Mennta- og barnamálaráðuneyti vekur loks athygli á niðurstöðum hinnar alþjóðlegu TALIS-rannsóknar sem birtar voru í byrjun október árið 2025. TALIS-rannsóknin er framkvæmd af Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) á sex ára fresti og hefur Ísland tekið þátt frá árinu 2008. Í rannsókninni gefst kennurum, skólastjórnendum og öðru fagfólki skóla kostur á að lýsa starfsaðstæðum sínum, starfsháttum, endurgjöf, starfsþróun, starfsánægju og öðrum mikilvægum þáttum í starfi. Niðurstöðurnar skapa mikilvægan grundvöll fyrir stjórnvöld, háskóla sem mennta kennara og aðra hagaðila til að móta og innleiða stefnu sem byggist á traustum og samanburðarhæfum niðurstöðum rannsóknarinnar. Í skýrslunni kemur fram að starfsánægja er lykilatriði þar sem kennarar sem eru ánægðir í starfi séu 80% ólíklegri til þess að hverfa frá kennslu á næstu fimm árum. Stefnumótun verður því að beinast að því að skapa góðar starfsaðstæður í leik-, grunn- og framhaldsskólum til að bæði byggja upp og viðhalda starfsánægju kennara og skólastjórnenda.
Ein megináskorun sem íslenskt menntakerfi hefur tekist á við undanfarin ár varðar málefni kennara, þ.m.t. kennaraskort. Áhersla undanfarinna ára á að fjölga útskrifuðum kennurum hefur borið ákveðinn árangur í nýliðun. Samhliða áframhaldandi áherslu á fjölgun kennara þarf að beina sjónum að því að gera kennarastarfið sjálfbært og aðlaðandi allan starfsferilinn. Með því að takast á við þessar áskoranir getur Ísland byggt sjálfbært og öflugt menntakerfi sem þjónar nemendum enn betur til framtíðar. Mennta- og barnamálaráðuneyti mun kynna niðurstöður TALIS-rannsóknarinnar og hefja samtal meðal allra hagaðila um leiðir til að bæta starfsumhverfi og starfsánægju kennara. Einnig verða mótaðar leiðir til að efla starfsþróun, auka nýliðun og efla virðingu fyrir kennarastarfinu. Þá þarf að huga að inntaki kennaranáms. Þar er hægt að byggja á faglegum styrkleikum íslenska menntakerfisins og helstu niðurstöðum TALIS-rannsóknarinnar og tengja við aðgerðaáætlanir menntastefnu til ársins 2030 og styrkingu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu sem stuðningsaðila og baklands fyrir allt menntakerfið og skólaþjónustu.
2. Liggur fyrir þarfagreining á fjölbreyttari aðkomu fagstétta, annarra en kennara og kennslu- og menntafræðinga, innan grunn- og framhaldsskólastigsins? Ef svo er ekki, telur ráðherra þörf á slíkri greiningu?
Í samfélagi okkar eru stöðugar breytingar og þeim fylgja breyttar þarfir barna, ungmenna og fjölskyldna. Ör samfélagsþróun kallar á aukna nýsköpun, lausnir og verkfæri sem uppfylla þarfir barna, fjölskyldna og starfsfólks á vettvangi skóla- og frístundastarfs. Til að takast á við nýjar áskoranir og svara kalli fagaðila á víðum vettvangi var árið 2022 sett af stað vinna við að greina hvaða úrræði og stuðning vantaði í skóla og frístundastarf hér á landi. Um var að ræða kortlagningu á skólaþjónustu á Íslandi sem var unnin í nánu samráði við fagfólk, hagaðila og börn um land allt. Niðurstaða þessa samtals benti til þess að þörf væri á auknum stuðningi við skólasamfélagið allt og á verkfærum og lausnum sem styddu við farsæld barna á víðu sviði á þeirra forsendum.
Mikið samtal hefur átt sér stað um útfærslu skólaþjónustu frá því að samráðsferli við gerð nýrra heildarlaga um skólaþjónustu hófst haustið 2022. Þátttaka á þjóðfundi og samráðsfundum var umfangsmikil með fleiri en tvö þúsund þátttakendum. Safnað var endurgjöf frá skóla- og fræðasamfélaginu samhliða samráði við rúmlega þúsund börn og ungmenni um land allt. Þá hefur mikið verið rætt um aðkomu ólíkra fagstétta að menntakerfinu, bæði vegna þeirrar fjölbreyttu þjónustu sem þörf er á og vegna stuðnings við nemendur. Hins vegar liggur ekki fyrir heildstæð þarfagreining á aðkomu fjölbreyttra starfsstétta og fagaðila. Að mati ráðherra er þörf á að slík greining fari fram í tengslum við frekari undirbúning að mótun skólaþjónustu í skóla- og frístundastarfi.