Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 558  —  1. mál.

3. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2026.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið að nýju eftir 2. umræðu og fengið send gögn frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Breytingartillögur meiri hlutans ná bæði til tekju- og gjaldahliðar frumvarpsins auk viðbótar við 6. gr.

Heildaryfirlit vegna fjárlaga 2024.
    Með þeim breytingartillögum sem gerð er grein fyrir í áliti þessu er samtals gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs verði 1.592,8 ma.kr. og að útgjöld verði 1.621 ma.kr. Miðað við þetta er áætlaður 28,2 ma.kr. halli á ríkissjóði á næsta ári eða sem nemur um 0,5% af vergri landsframleiðslu (VLF). Það er um 700 m.kr. lakari útkoma en miðað var við eftir 2. umræðu um frumvarpið og áætlað er að skuldir ríkissjóðs samkvæmt skuldareglu laga um opinber fjármál verði um 37,4% af VLF í lok næsta árs.
    Þessi áætlun er innan þeirra marka samþykktrar fjármálastefnu fyrir árin 2022–2026 sem miða við að halli verði að hámarki 0,5% af VLF á næsta ári. Raunvöxtur útgjalda frá fjárlögum fyrir árið 2025 að teknu tilliti til tekjuráðstafana og undanskilinna liða er innan við 2,0% í samræmi við stöðugleikareglu laga um opinber fjármál.

Tekjur ríkissjóðs.
    Gerðar eru tillögur til lækkunar tekna sem samtals nema tæpum 6 ma.kr. á rekstrargrunni. Þar munar langþyngst um nýja áætlun um álagningu veiðigjalda sem lækkar áætlunina úr 20,1 ma.kr. í 13,4 ma.kr. eða um 6,7 ma.kr. Endurmatið byggist m.a. á nýjum aflamarksforsendum, nýju mati á áhrifum lagabreytinga sem samþykktar voru á síðasta löggjafarþingi og breytingum á fjárhæðum veiðigjalds fyrir hvern nytjastofn.
    Aðrar tekjubreytingar vega minna. Áætlað er að verkefni Skattsins um eflingu samtímaskatteftirlits, milliverðlagningareftirlits og stórfyrirtækjaeftirlits, samhliða eflingu skattrannsókna, muni samtals skila 1,1 ma.kr. í auknar tekjur.
    Tekjur af jöfnunargjaldi raforku eru lækkaðar um 1,1 ma.kr. til samræmis við breytingartillögur við frumvarp um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl. Miðað er við 27% hækkun gjaldskrár í stað 100% eins og í fyrri forsendum. Á móti er gert ráð fyrir samsvarandi lækkun útgjalda þannig að breytingin hefur ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs.
    Loks eru áætlaðar 1,1 ma.kr. hækkanir vegna laga um aukatekjur ríkissjóðs sem eru endurskoðaðar miðað við verðbólguþróun og breytingar á gjöldum fyrir þjónustu sýslumanna og Þjóðskrár Íslands.

Gjöld ríkissjóðs.
    Gerðar eru tillögur um samtals 5,3 ma.kr. lækkun gjalda, af nokkrum tilefnum. Mest vegur 2,2 ma.kr. lækkun áætlaðra daggjalda hjúkrunarheimila. Á undanförnum árum hefur dregist að taka í notkun ný hjúkrunarheimili og ónýttar fjárheimildir hafa safnast upp milli ára.
    Gerð er önnur tillaga um 2 ma.kr. lækkun gjalda vegna framkvæmda við nýjan Landspítala. Uppsafnaðar heimildir fyrri ára eru meira en 10 ma.kr. og lækkun heimilda ætti ekki að hafa áhrif á framgang verkefnisins. Þá er gert ráð fyrir því að lækka framlag til byggingar nýrrar þjóðarhallar. Framlag næsta árs er nú áætlað 1,3 ma.kr. í stað 2,2 ma.kr. og er því gert ráð fyrir 0,9 ma.kr. lækkun í þessum tillögum.
    Í fjórða lagi er gert ráð fyrir lækkun gjalda vegna jöfnunar á raforkubyrði um 1,1 ma.kr. til samræmis við breyttar forsendur um álagningu og í samræmi við samsvarandi lækkun á tekjum. Tillagan hefur því ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs.
    Í fimmta lagi er launa- og verðlagsbótaliður leiðréttur vegna endurmats á kostnaðaráhrifum kjarasamninga. Samtals leiða þessar breytingar til 1 ma.kr. hækkunar gjalda á næsta ári.
    Loks eru gerðar nokkrar tillögur sem varða tæknilegar breytingar og millifærslur milli liða. Í heild er nú áætlað að gjöld ríkissjóðs verði um 1.621 ma.kr.

Ábending vegna tillagna fyrir 2. umræðu um frumvarp til fjárlaga.
    Ein af tillögum meiri hluta fyrir 2. umræðu um frumvarpið var 50 m.kr. tímabundið framlag til KFUM og KFUK en textinn sem fylgdi tillögunni var ónákvæmur. Fjárhæðin var ekki öll vegna endurbyggingar matskála. Sundurliðun fjárhæðarinnar er með þeim hætti að 20 m.kr. eru tímabundinn rekstrarstyrkur til KFUM og KFUK og 30 m.kr. eru tímabundið framlag vegna uppbyggingar á nýjum matskála í Vatnaskógi.
    Gerð er tillaga um breytingu á 5. gr. frumvarpsins um að auka umfang hlutdeildarlána úr 4 ma.kr. í 5,5 ma.kr., sbr. aðgerðir stjórnvalda í húsnæðismálum sem kynntar voru í október árið 2025. Heildarendurlán til Húsnæðissjóðs haldast óbreytt í 20 ma.kr.

Heimildir ráðherra skv. 6. gr. fjárlaga.
Ríkiseignir.
    Í hagræðingartillögum ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins er lögð áhersla á að bæta fasteignaumsýslu ríkisins. Í stjórnarsáttmála er sett fram það stefnumið að auðvelda umbreytingu atvinnuhúsnæðis í íbúðarhúsnæði annars vegar og að nýta ríkislóðir í stórauknum mæli til íbúðabyggingar hins vegar. Meiri hlutinn bendir á að um 60.000 m2 af atvinnuhúsnæði í eigu ríkisins standa auðir að hluta eða í heild. Lagt er til að hraða vinnu við að meta hvaða eignir henti til slíkrar þróunar. Nú þegar eru nokkrar heimildir í 6. gr. sem tengjast þessum markmiðum, svo sem vegna Guðrúnartúns 6, Hafnarstrætis 99–101 á Akureyri, Kópavogsbrautar 5a–c, Laugavegar 164–166, Skógarhlíðar 6, auk Tollhússins við Tryggvagötu.
    Meðal þeirra eigna sem komi til skoðunar verði þessar: Árleynir 2A, Borgartún 5, Borgartún 7, Grensásvegur 9, Jónstótt, Klapparstígur 8, Laufásvegur 14, Laufásvegur 16, Laugarnesvegur 91, Lindargata 11a, Lindargata 13, Lindargata 15–17, Lindargata 7, Skuggasund 1 / Lindargata, Skuggasund 3, Skúlagata 6, Sólvangsvegur 2, Sölvhólsgata 10, Sölvhólsgata 10b, Sölvhólsgata 11, Sölvhólsgata 13, Sölvhólsgata 14, Sölvhólsgata 4, Sölvhólsgata 6, Sölvhólsgata 8, Spítalavegur 10, Spítalavegur 15, Spítalavegur 2, Spítalavegur 5, Spítalavegur 6, Spítalavegur 7, Spítalavegur 8, Spítalavegur 9 og Vesturvör 2.
    Sérstaklega verði metið í hvaða tilvikum sé áhugavert að óhagnaðardrifin félög takist verkefnin á hendur, að hluta eða í heild, í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um félagslega blöndun íbúðabyggingar.

Ríkislóðir.
    Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins er lögð áhersla á að nýta ríkislóðir í stórauknum mæli til íbúðabyggingar. Boðað var að kynntar yrðu viðbótarlóðir og byggingarland í tengslum við annan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Lagt er til að hraða vinnu við að meta hvaða lönd og lóðir henti til slíkrar þróunar. Nú þegar eru nokkrar heimildir í 6. gr. sem tengjast þessum markmiðum, svo sem við Blikastaðaveg, Þjórsárgötu og Þorragötu, og landspildur á Reykjanesi ásamt ýmsum jörðum og landi um land allt. Þá er sérstök heimildargrein vegna lands og lóða á Ásbrú og í nágrenni Keflavíkurflugvallar.
    Lönd og lóðir sem komi til skoðunar verði m.a. þessar: Keldur, Keldnaholt, RALA-land, Landhelgisgæslureitur við Ánanaust, Listaháskólareitur í Laugarnesi, lóð Kvikmyndasafns Íslands við Hvaleyrarbraut, Vífilsstaðaland, Borgarholtsskólareitur við Mosaveg, Stjórnarráðsreitur, uppbyggingarsvæði við Miklubrautargöng, uppbyggingarsvæði við Sæbrautarstokk, Hólmasund við Þróttheima, lóðir við Landspítala í Fossvogi/norður-vesturhluti Landspítalalóðar við Bústaðaveg.
    Mikilvægt er að við þróun lands og lóða í eigu ríkisins sé hluta þeirra ráðstafað til óhagnaðardrifinnar uppbyggingar til að stuðla að félagslegri blöndun og því að íbúðir rísi fyrir alla tekjuhópa. Því verði sérstaklega tiltekið að heimilt sé að ráðstafa landi og lóðum ríkisins til sveitarfélaga og óhagnaðardrifinna uppbyggingarfélaga þannig að uppbyggingin geti orðið að veruleika innan kostnaðarramma laga um almennar íbúðir. Þetta gildi einnig um land Keldna sem ríkið hefur afsalað inn í félagið Betri samgöngur til að fjármagna hluta samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
    Gerð er tillaga um viðbót við 6. gr. sem hljóðar svo: „Að selja, að öllu leyti eða hluta, fasteignir og lóðir ríkisins við Lindargötu, Skuggasund og Sölvhólsgötu í Reykjavík og eignir við Spítalaveg í Garðabæ.“
    Gerð er tillaga um viðbót við 6. gr. sem hljóðar svo: „Að selja, að öllu leyti eða hluta, lönd eða lóðir til sveitarfélaga og/eða óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga þannig að uppbyggingin geti orðið að veruleika innan kostnaðarramma laga um almennar íbúðir.“

    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem skýrðar hafa verið og gerð er tillaga um á sérstökum þingskjölum.

Alþingi, 15. desember 2025.

Ragnar Þór Ingólfsson,
form., frsm.
Arna Lára Jónsdóttir. Dagur B. Eggertsson.
Eiríkur Björn Björgvinsson. Ingvar Þóroddsson.