Ferill 271. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 565  —  271. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um hálkuvarnir og helmingamokstur.


     1.      Hver ber ábyrgð á hálkuvörnum á vegum þar sem vetrarþjónustu er sinnt samkvæmt reglu Vegagerðarinnar um helmingamokstur?
    Vegir eða vegarkaflar sem falla undir reglu um helmingamokstur geta verið tvenns konar:
    I. Vegir sem fá reglubundna tvo þjónustudaga í viku eiga kost á að fá einn dag til viðbótar sem helmingamokstur.
    II. Vegir sem falla utan reglubundinna þjónustudaga og búa einungis við helmingamokstursreglu.
    Vegir í flokki I eru í þjónustuflokki 4. Á þeim vegum er veitt hálkuvörn samkvæmt verklagi þess flokks, það er að segja: hálkuvarnir eru framkvæmdar á stöðum sem eru skilgreindir sem varasamir ef flughálka myndast og á stöðum sem eru skilgreindir sem mjög varasamir þegar hálka er til staðar. Á vegum með fasta þjónustureglur eru (ef tilefni er til) skilgreindir vegarkaflar sem teljast varasamir. Það geta verið tilteknar brekkur, beygjur og staðir þar sem búast má við sterkum vindstrengjum eða sviptivindum.
    Vegir sem falla undir lið II eru ekki með skilgreinda daga, þjónustuflokk eða þjónustutíma og þar af leiðandi ekki skilgreindar hálkuvarnir. Þó hefur verið tekið mið af því að þegar flughált er geti þurft að beita hálkuvörnum í sérstaklega hættulegum aðstæðum í helmingamokstri.
    Þess ber að geta að í helmingamokstri er miðað við einn mokstur/mokstursferð á hvern heimilaðan dag.

     2.      Hver hefur kostnaðurinn við hálkuvarnir verið síðustu þrjú ár á vegum þar sem vetrarþjónustu er sinnt samkvæmt reglu Vegagerðarinnar um helmingamokstur? Hvernig hefur sá kostnaður skipst milli ríkis og sveitarfélaga?
    Kostnaði við helmingamokstur og þær aðgerðir vetrarþjónustu sem er beitt er deilt til helminga milli Vegagerðarinnar og sveitarfélags. Samþykkja þarf sérhverja beiðni um helmingamokstur sérstaklega.
    Reglan um helmingamokstur felur í sér heimild til að moka tiltekna vegi allt að þrisvar í viku. Beiðnir um slíkan mokstur koma nánast undantekningarlaust frá sveitarfélögum. Reglan felur því ekki í sér fasta þriggja daga þjónustu heldur er alltaf metið í hverju tilviki hvort skilyrði fyrir mokstri séu uppfyllt.
    Ekki er unnt að draga út úr bókhaldi kostnað við hálkuvarnir á helmingamokstursvegum. Í þeim sérstöku tilvikum þegar beiðni um helmingamokstur varðar hálkuvarnaraðgerð og Vegagerðin fellst á hana er kostnaðinum helmingaskipt.
    Síðustu þrjú ár hefur helmingamoksturskostnaður Vegagerðarinnar verið 50–135 millj. kr. á ári (á verðlagi hvers árs). Sveitarfélög hafa greitt sömu upphæð fyrir sinn hluta. Meðfylgjandi tafla sýnir hvernig kostnaður hefur fallið eftir þjónustustöðvum Vegagerðarinnar.


Kostnaður Vegagerðarinnar vegna helmingamoksturs.

Kostnaður Ár
Verknúmer Verk – heiti Verkþáttur 2021 2022 2023 2024 2025
4060-20 Vetrarviðhald 20 231.02 – Vík helmingamokstur 1.669.770 5.541.275 5.772.590 2.909.427 6.433.915
232.02 – Selfoss helmingamokstur 4.269.665 23.634.104 18.662.235 27.857.966 23.875.971
341.02 – Garðabær helmingamokstur 751.297 6.183.585 2.053.488 2.445.602 3.123.302
4060-20 alls 6.690.732 35.358.964 26.488.313 33.212.995 33.433.188
4060-40 Vetrarviðhald 40 451.02 – Borgarnes helmingamokstur 1.307.611 5.235.768 4.987.214 8.857.369 2.951.562
452.02 – Ólafsvík helmingamokstur 35.085 344.842 275.692 1.378.012 186.188
453.02 – Búðardalur helmingamokstur 1.341.369 5.136.069 1.844.653 6.615.863 3.258.664
461.02 – Patreksfjörður helmingamokstur 355.500 1.523.918 1.050.090 2.275.740 1.028.933
462.02 – Ísafjörður helmingamokstur 910.686 1.278.056 1.451.225 1.758.888 22.065
462.03 – Súðavík helmingamokstur 318.808 366.100 274.396 962.706 251.979
462.04 – Bolungarvík helmingamokstur 42.595 147.032 34.581 66.278
463.02 – Hólmavík helmingamokstur 1.456.945 400.760 238.595 557.207 19.265
4060-40 alls 5.768.599 14.432.545 10.121.865 22.440.366 7.784.934
4060-50 Vetrarviðhald 50 471.02 – Hvammstangi helmingamokstur 923.375 1.312.417 1.521.805 2.161.403 684.276
472.02 – Sauðárkrókur helmingamokstur 8.606.260 8.775.201 8.797.554 20.227.336 3.074.232
581.02 – Akureyri helmingamokstur 9.904.502 14.187.272 9.874.227 28.633.645 6.010.672
582.02 – Húsavík helmingamokstur 9.755.869 3.791.081 14.254.366 18.940.086 5.386.705
583.02 – Þórshöfn helmingamokstur 1.352.247 1.125.862 4.505.541 2.079.873 5.674.344
4060-50 alls 30.542.253 29.191.833 38.953.493 72.042.343 20.830.229
4060-60 Vetrarviðhald 60 591.02 – Vopnafjörður helmingamokstur 333.548 133.767 327.280 189.078
592.02 – Fellabær helmingamokstur 3.366.813 3.046.024 5.028.883 3.173.070 1.460.609
593.02 – Reyðarfjörður helmingamokstur 3.686.996 1.386.393 3.207.467 4.186.850 1.343.297
594.02 – Höfn helmingamokstur 14.481 48.553
4060-60 alls 7.068.290 4.814.518 8.370.117 7.687.200 2.992.984
Samtals 50.069.874 83.797.860 83.933.788 135.382.904 65.041.335