Ferill 278. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 566  —  278. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.


     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?

Innviðaráðuneytið.
    Einn samningur um starfslok var gerður hjá ráðuneytinu á tímabilinu.

Undirstofnanir.
Byggðastofnun 1
Fjarskiptastofa 0
Rannsóknarnefnd samgönguslysa 0
Samgöngustofa 5
Vegagerðin 5

     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?

Innviðaráðuneytið.
IRN
2024 6.063.082

Undirstofnanir.
Byggðastofnun Fjarskiptastofa Rannsóknarnefnd samgönguslysa Samgöngustofa Vegagerðin
2018
2019 15.389.324
2020
2021
2022
2023 13.070.068
2024 11.073.116
2025 2.700.000

     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?
    Tveir embættismenn hafa verið fluttir úr starfi hjá ráðuneytinu samkvæmt framangreindum lögum, annars vegar til Vegagerðarinnar 1. apríl 2024 og hins vegar til annars ráðuneytis 1. maí 2024, enginn hjá undirstofnunum.