Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 573 — 220. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um faggildingu o.fl. og lögum um staðla og Staðlaráð Íslands (endurskoðun).
Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti, Staðlaráði Íslands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu.
Nefndinni bárust þrjár umsagnir um málið sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu sæta lög um faggildingu o.fl. efnislegri endurskoðun í fyrsta sinn frá því að lögin voru sett árið 2006. Breytingunum er einkum ætlað að færa lögin til samræmis við Evrópulöggjöf á sviði faggildingar sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn og innleidd í íslenskan rétt, og að bregðast við athugasemdum Evrópusamtaka um faggildingu (European co-operation for Accreditation, EA) sem komu fram í jafningjamati sem faggildingarsvið Hugverkastofunnar, ISAC, gekkst undir í fyrra. Breytingarnar felast m.a. í því að markmiðsákvæði bætast við lögin, skilgreiningar hugtaka eru uppfærðar og faglegt sjálfstæði ISAC styrkt.
Í þeim umsögnum sem nefndinni hafa borist er tekið undir það markmið með frumvarpinu að styrkja grundvöll faggildingarstarfsemi og mikilvægi þess að frumvarpið nái fram að ganga er áréttað. Í umsögnum er jafnframt lögð áhersla á mikilvægi þess að starfsemi faggildingar og staðlaumsýslu sé fjármögnuð með viðunandi hætti. Það sé nauðsynlegt svo að standa megi undir því hlutverki sem faggildingu er ætlað, einkum þar sem hlutverk faggildingar fari vaxandi líkt og bent er á í umsögn SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Í umsögnum er jafnframt bent á að ótrygg fjármögnun og skortur á skýrri opinberri stefnumörkun, jafnt um starfsemi faggildingar og staðla, valdi skorti á fyrirsjáanleika sem komi niður á starfseminni og valdi erfiðleikum við áætlanagerð og undirbúning verkefna.
Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að frumvarpið verði að lögum. Meiri hlutinn tekur jafnframt undir framangreind sjónarmið um nauðsyn þess að tryggja þessari starfsemi trausta fjármögnun og fyrirsjáanleika, svo sem með opinberri stefnumótun. Ekki verður séð að þær ábendingar sem komu fram í umsögnum um málið kalli á breytingu á því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar en meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að taka ábendingarnar til skoðunar og eftirfylgni.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Eiríkur Björn Björgvinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 16. desember 2025.
| Sigurjón Þórðarson, form. |
Eiríkur Björn Björgvinsson, frsm. |
Eydís Ásbjörnsdóttir. |
| Ingvar Þóroddsson. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. | Lilja Rafney Magnúsdóttir. |