Ferill 257. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 575  —  257. mál.
Viðbót.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

Frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Frumvarp það sem hér um ræðir kemur mjög seint inn til þingsins og er allt annað en það sem fór í samráðsgátt, sem er afar óheppilegt, sérstaklega gagnvart þeim hagsmunaaðilum sem telja sig hafa komið á framfæri nauðsynlegum athugasemdum. Við fyrstu umræðu var frumvarpið um það bil tvöfalt stærra en það sem birtist í samráðsgátt. Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar ákveður engu að síður að keyra það í gegn í ágreiningi og með óvenju stuttum umsagnarfresti, en hann var einungis átta dagar, í jafn viðamiklu frumvarpi og hér um ræðir.
    Niðurstaðan er því fyrirsjáanleg, margar lagabreytingartillögur þurfa nánari skoðun og aðrar munu óbreyttar ekki ná tilætluðum árangri.
    Á þessu haustþingi hafa vikur og mánuður liðið og lítið komið inn af stjórnarfrumvörpum. Því hefði verið heppilegt að nýta betur tímann og fá svona stórt frumvarp fyrr til meðferðar svo að ekki þyrfti að vinna það í tímaþröng eins og nú er raunin. 1. minni hluti leggur til nokkrar breytingartillögur við þetta frumvarp og verða þær raktar hér að aftan.

Frítekjumark barna undir 16 ára.
    Lagt er til að hækka árlegt frítekjumark barna undir 16 ára. Það er breyting til góða enda hefur upphæðin verið óbreytt frá 2013. Hún fer úr 15 þús. á mánuði í 25 þús. á mánuði en ganga þarf lengra til að jafnræðis sé gætt, til að mynda fyrir 15 ára börn sem eru að þjálfa eða taka að sér önnur launuð verkefni. Þau geta verið í þeirri stöðu að borga hærri skatta en 16 ára börn sem fá jafn mikil laun. Því leggur 1. minni hluti til að skoðað verði milli umræðna að börn yngri en 16 ára verði ekki verr sett en börn 16 ára og eldri.
    Það væri hægt að gera með því að upphæð frítekjumarks á ári yrði sama upphæð og persónuafsláttur á ári. Eins og fram kemur í frumvarpinu hefur hækkun á frítekjumarki barna undir 16 ára lítil fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög og ríkissjóð. Ef hækkunin yrði á pari við persónuafslátt hefði hún hins vegar mikla þýðingu fyrir þau börn sem féllu undir þá breytingu. 1. minni hluti leggur því til að upphæðin verði endurmetin milli umræðna. Það kann að vera að ráðherra vilji t.d. nota skattkerfið til að draga úr hvata barna á skólaskyldualdri til að vinna en ekkert slíkt kemur fram í greinargerð né aðrar ástæður þess efnis af hverju ekki er gengið lengra svo að sanngirni sé gætt.

Hækkun tekjuskatts af leigutekjum einstaklinga.
    Í frumvarpinu er lagt til að tekjuskattur af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði hækki og fari úr 50% af tekjuskatti í 75%. Verði frumvarpið að lögum hækkar virk skattbyrði leigutekna þar með úr 11% í 16,5%. Að mati 1. minni hluta er þessi skattahækkunartillaga ekki hugsuð til enda. Það liggur fyrir að einstaklingar búa við allt aðra lagaumgjörð heldur en fyrirtæki sem leigja út eignir. Einstaklingar mega t.d. ekki nýta gjöld á móti leigutekjum. Því var farin sú leið að lækka skatta á einstaklinga til að reyna að „jafna stöðuna“. Það er meginástæða þess að einstaklingar borga lægri fjármagnstekjuskatt af útleiguíbúðum. Nú á að skekkja stöðuna á ný. Um er að ræða að hámarki útleigu á tveimur íbúðum.
    Tilgangurinn með frumvarpinu er sagður vera sá að beina einstaklingum í aðrar fjárfestingar en fjárfestingar í fasteignum. En hverjir eru það sem leigja út íbúð á eigin kennitölu? Það hefur ekki verið greint nægjanlega vel af stjórnvöldum. Umsagnaraðilar benda hins vegar á að leiða megi að því líkur að það séu fyrst og fremst einstaklingar sem leigja tímabundið út eigin íbúð, leigja út aukaíbúð í eigin húsnæði eða kaupa aukaíbúð á höfuðborgarsvæðinu til að styðja t.d. börn sín í námi. Þetta eru því þeir aðilar sem skattahækkunin bitnar verst á, auk leigjenda sem fá yfir sig hækkaða leigu eða missa heimilið sitt ef tilgangur ríkisstjórnarinnar þess efnis að fækka þeim sem fjárfesta í íbúðum verður að veruleika. Aðrir geta auðveldlega fært eignir sínar í félög og þeir sem leigja út fleiri en tvær eignir falla nú þegar í þann hóp sem borgar fullan fjármagnstekjuskatt. Það segir sig eiginlega sjálft að flestir þeirra sem leigja út fasteignir í stórum stíl eru nú þegar með eignir í félögum og því hefur þessi skattahækkun ekki áhrif á þá aðila. Umsagnaraðilar hafa einnig vakið athygli á því að útreikningar benda til þess að leiguverð hækki og að áhrif skattahækkunarinnar á vísitölu neysluverðs hafi ekki verið metin að fullu. Eins og Samtök verslunar og þjónustu bentu á í sinni umsögn er leiguverð lykilmælikvarði í verðbólgu, sem hefur áhrif á vaxtastig og verðtryggða fjármögnun. Þannig er um að ræða enn eitt skattahækkunarfrumvarpið þar sem ólíklegt má telja að áætlaðar tekjur standist en neikvæð áhrif breytingarinnar gætu orðið talsverð. Í ljósi framangreinds leggur 1. minni hluti til að undið verði ofan af boðaðri skattahækkun.

Hækkun erfðafjárskatts.
    Fyrsti minni hluti hefur barist fyrir því að 11. og 12. gr. er varða breytingu á lögum um erfðafjárskatt verði felldar brott. Um er að ræða breytingar sem leiða til verulegrar hækkunar á erfðafjárskatti yrðu þær samþykktar.
    Ekki var lögð til hærri skattprósenta í frumvarpinu heldur flókin og torskilin leið til að hækka skattinn án þess að segja það berum orðum. Niðurstaðan hefði orðið brot á meginreglum skatta- og félagaréttar, ómöguleiki og óskýr skattheimta. Breytingin snýr að mestu að því hvernig eignir skulu verðmetnar. Eins og breytingarnar eru settar upp þá ríma þær á engan hátt við önnur lög og reglur um verðmat eigna. Kynslóðaskipti bújarða yrðu erfiðari og dýrari með tilheyrandi afleiðingum. Uppgjör dánarbúa yrði mun flóknara og í sumum tilfellum verður ógerningur að framfylgja lögunum ef þau fara í gegn óbreytt. Þar að auki yrðu verulega íþyngjandi kröfur lagðar á herðar þeim sem njóta arfs. Því fagnar og styður 1. minni hluti tillögu þess efnis að 11. og 12. gr. falli brott.

Blandaðar tollvörugeymslur.
    Ríkisstjórnin sem sagðist ætla að einfalda regluverk er að fara í þveröfuga átt og leggur til auknar kröfur og meira eftirlit. Einstaklingar sem hafa hlotið dóm vegna brota á tollalögum eða fyrir fíkniefnabrot eiga samkvæmt þessari tillögu engan rétt á að endurheimta borgaraleg réttindi sín þrátt fyrir að hafa tekið út refsingu og ekki brotið af sér í ákveðinn árafjölda. Það sem um ræðir er að þeir sem sækjast eftir að sitja í stjórn eða vera í stjórnendateymi tollfrjálsra verslana, þrátt fyrir að hafa mögulega fyrir áratugum tekið út sinn dóm og byggt upp sitt líf, unnið sig upp í stjórnendastöðu, verður engu að síður um alla sína ókomnu framtíð bannað að sinna þeim störfum. Nú má telja ólíklegt að þessi staða komi oft upp en hún er hluti af stærra samhengi. Viljum við að einstaklingum verði gert kleift að bæta ráð sitt? Eiga ekki að vera hvatar í kerfinu svo að fólk geti bætt ráð sitt og fengið sín borgaralegu réttindi aftur? Nú er borið fyrir sig að þetta sé nokkuð algengt í lögum. Þá væri kannski nær að afnema slíka íþyngjandi lagabálka í stað þess að halda áfram að skerða eðlileg borgaraleg réttindi þeirra sem hafa tekið út sína refsingu. Þess ber einnig að geta að í flestum tilfellum öðlast einstaklingar aftur borgaraleg réttindi sín eftir að afplánun lýkur ásamt tilgreindum árafjölda þar sem viðkomandi brýtur ekki af sér.
    Skýringar meiri hlutans á því að gera ekki breytingar eru m.a. þær að í umfjöllun um skilyrðið í greinargerð með frumvarpi því sem varð að tollalögum kemur fram að handhafar starfsleyfis séu vörsluhafar ótollafgreiddra vara og beri ríkar skyldur samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Því felist í skilyrðinu eðlileg krafa til stjórnenda tollvörugeymslna sem annast mikilvægt hlutverk í rekstri sínum og er tilgangur hennar sá að standa vörð um tekjur ríkissjóðs og vernda þar með hagsmuni samfélagsins og almennings.
    Fyrsti minni hluti telur hins vegar að gæta þurfi meðalhófs og fara frekar í þá átt, eins og er víðast hvar að finna í lögum, að einstaklingar eigi möguleika á að öðlast borgaraleg réttindi sín á ný. Tilgangur afplánunar á Íslandi er að stórum hluta betrun. Að lokinni afplánun, auk kröfu um nokkur ár án afbrota, hlýtur að vera eðlileg krafa samfélagsins að ef okkur verður á sé möguleiki til að bæta ráð okkar og verða betri manneskjur. Viljum við lifa í samfélagi sem refsar ungu fólki sem kemst í kast við lögin um ókomna framtíð? Þó að ungt fólk snúi til betri vegar og bæti ráð sitt þá mun það aldrei duga til. Samfélagið ætlar að halda áfram að stimpla það sem glæpamenn það sem eftir er. Eru það skilaboðin sem við viljum senda ungum einstaklingum sem hafa stigið feilspor? Væri ekki nær að efla hvata til að halda sér á réttri braut? Í 15. gr. frumvarpsins er fjallað um breytingu á tollalögum þar sem settar verða meira íþyngjandi kvaðir á þá sem selja úr tollfrjálsri verslun. Þá gæti þetta orðið flókið fyrir minni aðila á markaðnum. Einnig eru þrengd skilyrði um stjórnendur og stjórnarmenn sömu fyrirtækja.
    Með því að skoða 2., 3. og 8. tölul. 1. mgr. 91. gr. tollalaga má átta sig á hversu miklar kröfur eru gerðar til leyfishafa og telur 1. minni hluti því að nægjanlegs öryggis sé gætt þó að breytingin verði samþykkt:
    Í 2. tölul. 1. mgr. 91. gr. tollalaga um skilyrði starfsleyfis segir: „Stjórnarmenn lögaðilans skulu vera a.m.k. tveir. Þeir skulu vera búsettir hér á landi, vera lögráða, vera fjár síns ráðandi og mega ekki á síðustu fimm árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða öðrum lögum. Þá mega þeir ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað þar sem refsing var fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi hið minnsta eða öryggisgæsla ef þeir voru fullra 18 ára þegar brotið var framið nema fimm ár hafi liðið frá því að afplánun var að fullu lokið. Þá mega stjórnarmenn ekki hafa hlotið dóm vegna brota á tollalögum eða fyrir fíkniefnabrot.“
    Í 3. tölul. segir: „Daglegur stjórnandi geymslusvæðis skal fullnægja skilyrðum 2. tölul.“
    Í 8. tölul. segir: „Leyfishafi skal hafa á að skipa starfsfólki sem hefur fullnægjandi þekkingu á lögum og reglum um meðferð ótollafgreiddra vara. Sýnt skal fram á að skjalagerð vegna tollmeðferðar, stjórnun, innra eftirlit, bókhald og varsla gagna starfseminnar verði með traustum hætti.“

Skattfrádráttur vegna hlutabréfakaupa.
    Fyrsti minni hluti styður breytingartillögu meiri hlutans þess efnis að framlengja skattfrádrátt vegna hlutabréfakaupa um þrjú ár í stað tveggja. Fyrsti minni hluti beinir þó því til ríkisstjórnarinnar að auka á fyrirsjáanleika þegar kemur að lagaumgjörð í kringum nýsköpun. Auka þyrfti á fyrirsjáanleika víða þegar kemur að lagasetningu en þegar um er að ræða nýsköpun mætti gera miklu betur og því hefði meiri hlutinn mátt ganga lengra þegar kom að framlengingu þess úrræðis.

Verndarráðstafanir.
    Fjárveitingarvaldið og breytingar á sköttum, gjöldum og tollum á heima hjá Alþingi en ekki hjá einstaka ráðherrum. Vafi leikur á því hvort tillagan eins og hún er sett fram standist stjórnarskrána. Hvort sem umsagnaraðilar voru hlynntir eða ekki hlynntir auknum heimildum ráðherra mátti heyra samstöðu um að vanda betur til verka svo að ákvarðanir ráðherra stæðust og ekki væri vafi um hvort ákvörðunin stæðist stjórnarskrána. Ramma þyrfti betur inn heimildir ráðherra og ef ákvörðun ráðherra hefði t.d. fjárhagsleg áhrif umfram það sem Alþingi samþykkti ár hvert þyrfti aðkomu Alþingis. Ef um brýnt mál væri að ræða gæti forseti Alþingis hæglega sett málið fremst á dagskrá. Efnahags- og viðskiptanefnd hefur fengið minnisblað frá fjármálaráðuneytinu en 1. minni hluti telur að skoða þurfi þennan þátt betur áður en umræddar breytingar verða að lögum.

Jöfnun raforkukostnaðar.
    Stigin eru skref við jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, skref sem 1. minni hluti styður. Skrefin eru hins vegar ansi lítil í samanburði við allar þær skattahækkanir sem hafa dunið á landsbyggðinni. Einnig hefði verið gott að sjá langtímaplan ríkisstjórnarinnar þegar kemur að dreifingu raforku um Ísland, landinu öllu til heilla.

Bráðabirgðaákvæði EE-liðar búvörulaga.
    Árið 2021 sendu Bændasamtökin og Félag atvinnurekenda sameiginlega tillögu.
    Fyrsti minni hluti tekur undir með umsögn Bændasamtakanna þess efnis að ekki þurfi að framlengja bráðabirgðaákvæði tollfrelsis er varðar 7. tölul. 1. mgr. bráðabirgðaákvæðis EE-liðar, sbr. 21. gr. frumvarpsins. Þar undir eru m.a. kartöflur.
    Í umsögn Bændasamtakanna kemur eftirfarandi fram: „Með ákvæði 21. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir eins árs framlengingu á gildistíma ákvæðis EE-liðar til bráðabirgða í búvörulögunum, þannig að það gildi út árið 2026. Í ákvæðinu er kveðið á um tímabil sem afmarka lægri innflutningstolla á tilteknar tegundir grænmetis. Ákvæðið var upphaflega sett á fyrir tilstilli tillögu Bændasamtakanna og Félags atvinnurekenda árið 2021 og var ætlað að tryggja nægjanlegt framboð á tilteknum vörum til hagsbóta fyrir neytendur og koma í veg fyrir skortstöðu. Enn fremur er með ákvæðinu dregið úr líkum á tímabundnum verðhækkunum vegna álagningar tolla í þeim tilvikum þegar innlent vöruframboð er ekki nægjanlegt.“
    Síðar í sömu umsögn segir: „Samkvæmt upplýsingum frá framleiðendum og markaðsaðilum er uppskeran hjá flestum kartöflubændum í ár með allra besta móti, bæði hvað varðar magn og gæði. Birgðastaðan er þannig að nægilegt framboð er tryggt fram á næsta sumar án þess að grípa þurfi til innflutnings eða sértækra undanþága frá tollum. Þeir tollar sem lagðir eru á kartöflur eru mjög lágir en þeir tollar sem lagðir eru á samkvæmt tvíhliða samningi Íslands við Evrópusambandið (ESB-tollur) eru 60 kr. á hvert kg. (magntollur) en enginn verðtollur (prósentutollur) er lagður á kartöflur. Óþörf framlenging á þessari undanþágu frá greiðslu tolla gæti haft neikvæð áhrif á afkomu innlendra kartöflubænda með því að halda eftirspurn eftir innflutningi opinni án raunverulegrar þarfar.“

    Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      2. gr. orðist svo:
             Í stað orðanna „180.000 og skal barn ekki njóta persónuafsláttar“ í 2. mgr. 66. gr. laganna kemur: frítekjumark barna. Frítekjumark barna skal vera 824.292 kr. og skal barn ekki njóta persónuafsláttar. Frítekjumark barna skal í upphafi hvers árs taka breytingu í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils að viðbættum 1,0% framleiðnivexti á ári. Endurskoða skal mat á framleiðnivexti á fimm ára fresti, í fyrsta sinn vegna staðgreiðsluársins 2027.
     2.      3. gr. falli brott.
     3.      Í stað „1.–3.“ í 15. gr. komi: 1. tölul., 1., 4. og 5. málsl. 2. tölul., 3. tölul.
     4.      16., 17., 18. og 19. gr. falli brott.
     5.      21. gr. orðist svo:
            Eftirfarandi breytingar verða á EE-lið ákvæðis til bráðabirgða í lögunum:
              a.      Í stað orðanna „2024 og 2025“ í inngangsmálslið kemur: 2024, 2025 og 2026.
              b.      7. tölul. falli brott.

Alþingi, 16. desember 2025.

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.