Ferill 257. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 576  —  257. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld, o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


Hækkun skatts á leigutekjur.
    Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að frítekjumark tekjuskatts af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði verði lækkað úr 50% í 25%. Í breytingunni felst að virk skattbyrði einstaklinga sem leigja út íbúðarhúsnæði sitt hækkar um 50%, úr 11% í 16,5%.
    Vandi leigumarkaðarins hér á landi er fyrst og fremst skortur á framboði. Það hefur í för með sér að leigjendur hafa í reynd takmarkaða möguleika á að standa á rétti sínum gagnvart leigusala. Auknar kvaðir á leigusala, hvort sem þær eru í formi skattahækkana eða annarra íþyngjandi aðgerða, eru ekki til þess fallnar að auka framboð heldur þvert á móti að draga úr því. Að auki er í greinargerð með frumvarpinu sérstaklega tekið fram að líklegt sé að leiguverð muni hækka sökum breytingarinnar. Þegar ástand leigumarkaðarins er jafn slæmt og raunin er nú er það mat 2. minni hluta að óforsvaranlegt sé að ráðast í aðgerðir sem fyrirséð er að leiði af sér hækkun leiguverðs. Stór hluti umsagnaraðila gagnrýndi umrædda skattahækkunartillögu og lagðist eindregið gegn því að hún næði fram að ganga, þ.m.t. Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands, Samtök verslunar og þjónustu, Hagsmunasamtök heimilanna og ÖBÍ réttindasamtök.
    Að mati 2. minni hluta er óforsvaranlegt, sérstaklega eins og ástandið á leigumarkaði er nú, að ráðast í aðgerðir sem leiða af sér hækkun leiguverðs.
    Að framangreindu virtu leggur 2. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      B-liður 2. gr. falli brott.
     2.      3. gr. falli brott.

Alþingi, 16. desember 2025.

Vilhjálmur Árnason,
frsm.
Hildur Sverrisdóttir.