Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 578 — 144. mál.
3. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin fjallaði um málið milli 2. og 3. umræðu.
Breytingartillögur.
Meiri hlutinn leggur til minni háttar orðalagsbreytingu á 2. mgr. 15. gr. frumvarpsins.
Auk þess kom í ljós við umfjöllun málsins að nauðsynlegt væri að bregðast við athugasemdum frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, vegna tæknilegra atriða, sem unnin hafa verið af ráðuneytinu í samráði við Skattinn. Breytingarnar eru þrjár, í fyrsta lagi breyting á 28. gr. frumvarpsins, sem snýr að lagaskilum þegar undirliggjandi tímabil nær m.a. yfir einhverja mánuði eða lengra tímabil og fram yfir áramót, til að mynda í tengslum við álagningu kílómetragjalds á rafmagns- og tengiltvinnbíla samkvæmt lögum nr. 101/2023. Í öðru lagi, sem jafnframt er breyting á 28. gr. frumvarpsins, er brugðist við því í framkvæmd hvernig gera skuli upp það stutta tímabil sem er frá lokaálestri samkvæmt lögum nr. 87/2004, á tímabilinu 1.–15. desember 2025 til og með 31. desember 2025, vegna brottfalls laga nr. 87/2004. Lagt er til að áætlaður meðalakstur verði reiknaður út frá tveimur síðustu álestrum á árinu 2025. Sambærilega leið er að finna í fjölmörgum bráðabirgðaákvæðum í lögum nr. 87/2004 þegar akstur liggur ekki fyrir á álestrartímabili í lok árs. Í þriðja lagi er lögð til breyting á ákvæði til bráðabirgða VI þar sem leiðrétt er misritun, að öðrum kosti myndi skapast skörun við 2. tölul. ákvæðisins.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Við 15. gr.
a. Í stað orðsins „greiðslutímabil“ í 1. málsl. 2. mgr. komi: greiðslutímabils.
b. Í stað orðanna „breyttrar skráningar“ í 1. málsl. 2. mgr. komi: breyttri skráningu.
2. Við 28. gr.
a. Í stað 2. málsl. 1. tölul. 2. mgr. komi fjórir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ákvæði þeirra laga skulu þó gilda um álagningu, endurákvörðun og innheimtu gjalda vegna uppgjörs- og álagningartímabila fram að gildistöku laga þessara, þ.m.t. ákvæði um sektir. Þrátt fyrir ákvæði 14. gr. laganna skal greiðsla kílómetragjalds og sérstaks kílómetragjalds vegna aksturs frá álestri á stöðu akstursmælis á álestrartímabilinu 1. desember til 15. desember 2025 til og með 31. desember 2025 miðuð við áætlaðan meðalakstur á dag. Áætlaður meðalakstur á dag skal reiknaður út frá meðalakstri á dag milli skráningar á stöðu akstursmælis á álestrartímabilinu 1. júní til 15. júní 2025 og 1. desember til 15. desember 2025. Gjalddagi kílómetragjalds og sérstaks kílómetragjalds er 1. febrúar 2026 og eindagi 14 dögum síðar.
b. Í stað 2. málsl. 2. tölul. 2. mgr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ákvæði þeirra laga skulu þó gilda um álagningu, endurákvörðun og innheimtu gjalda vegna greiðslutímabila fram að gildistöku laga þessara, þ.m.t. ákvæði um álag, vanskráningargjald og sektir. Um gjalddaga og eindaga skal fara samkvæmt lögum þessum.
3. Í stað „20.000“ í 3. tölul. ákvæðis til bráðabirgða VI komi: 20.001.
Vilhjálmur Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 16. desember 2025.
| Arna Lára Jónsdóttir, form. |
Pawel Bartoszek, frsm. | Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | |
| Sigmundur Ernir Rúnarsson. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | ||