Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 582  —  112. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar).

Frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Fyrsti minni hluti styður frumvarpið í öllum meginatriðum og telur brýnt að heimildir stjórnvalda til að afturkalla alþjóðlega vernd verði festar í sessi, skýrðar og rýmkaðar. Sjálfsögð krafa Íslendinga er að þeir sem hér njóta verndar af hálfu íslenskra stjórnvalda misnoti ekki það traust sem þeim er sýnt.
    Fyrsti minni hluti fagnar því að tekið hafi verið tillit til sjónarmiða 1. minni hluta sem fram komu á 156. löggjafarþingi um að ítrekuð brotahegðun geti einnig réttlætt afturköllun alþjóðlegrar verndar, ekki aðeins einstaka alvarleg brot. Það að dómsmálaráðherra hafi tekið þessar ábendingar gildar og fært inn í nýja útgáfu frumvarpsins er jákvæð breyting. Fyrsti minni hluti telur þó að frumvarpið gangi ekki nægilega langt í þessu efni þar sem ákvæði frumvarpsins í núverandi mynd þrengi um of heimild yfirvalda til að afturkalla alþjóðlega vernd síbrotamanna.

Ítrekuð brot og samfélagssáttmáli.
    Endurtekin lögbrot, jafnvel þótt hvert einstakt brot teljist ekki sérstaklega alvarlegt í skilningi laga og enda þótt aðeins sé um skilorðsbundna dóma að ræða, sýna glöggt að viðkomandi virðir ekki grundvallarreglur íslensks samfélags.
    Fyrsta minni hluta þykir greinargerð með frumvarpinu en einkum álit meiri hluta nefndarinnar þrengja óþarflega þær heimildir sem stjórnvöld munu hafa til að afturkalla alþjóðlega vernd. Í greinargerð með frumvarpinu segir: „Með alvarlegu broti er m.a. átt við alvarlegt eða að öðru leyti gróft brot, eða tilraun til slíks brots, svo sem manndráp, ofbeldis- eða kynferðisbrot, frelsissviptingarbrot, meiri háttar fíkniefnabrot, brennu eða önnur almannahættubrot, rán og skipulagða brotastarfsemi. Almennt myndu skilorðsbundnir dómar ekki falla undir framangreint. Með ítrekuðum afbrotum er m.a. átt við endurtekin brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni, svo sem þjófnaðarbrot og önnur brot sem beinast gegn eignarrétti einstaklinga og lögaðila.“
    Fyrsti minni hluti telur þessar skýringar góðar og gildar en í nefndaráliti meiri hlutans er að finna leiðbeiningar um það hvernig beri að túlka ákvæðið um ítrekuð brot: „Meiri hlutinn áréttar jafnframt í því samhengi að um er að ræða heimildarákvæði sem almennt skuli túlkað þröngt með vísan til skilyrða um alvarleikastig, þ.e. að gildar ástæður þurfi að vera til staðar um að útlendingur verði álitinn hættulegur öryggi ríkisins, um verði að ræða alvarlegt afbrot og viðkomandi af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða að ítrekuð afbrot ógni allsherjarreglu og almannaöryggi.“
    Að mati 1. minni hluta er ekki nauðsynlegt að sú brotahegðun sem geti leitt til afturköllunar verndar einskorðist við beina ógn við allsherjarreglu eða almannaöryggi í þröngum skilningi. Mikilvægt er að tilvísun laganna til ítrekaðra brota geti einnig átt við fleira en alvarleg brot, svo sem endurtekin brot gegn almennum hegningarlögum eða lögum um ávana- og fíkniefni. Undir tilvísunina ættu einnig að falla önnur brot sem í krafti þess að vera ítrekuð benda til viðvarandi vanvirðingar við landslög, svo sem brot gegn friðhelgi einstaklinga, brot gegn nálgunarbanni, heimilisofbeldi, skjalafals, svik gagnvart stjórnvöldum, misnotkun opinberra úrræða, ítrekuð brot gegn umferðarlögum og vopnalögum og önnur sambærileg brot, jafnvel þótt hvert þeirra teljist ekki alvarlegt eitt og sér.
    Fyrsti minni hluti telur að það eitt að einstaklingur brjóti ítrekað gegn lögum landsins sé nægjanleg ástæða til að endurmeta rétt hans til alþjóðlegrar verndar. Áskilnaður um ógn við allsherjarreglu eða almannaöryggi er ekki óeðlileg hugmynd í sjálfu sér en getur þó reynst óþarflega íþyngjandi fyrir íslensk stjórnvöld í ákveðnum tilvikum.

Séríslenskar reglur.
    Í umfjöllun um útlendingamál er oft vísað til þess að forðast beri svokallaðar séríslenskar reglur og að íslensk löggjöf eigi að fylgja framkvæmd nágrannaríkja, einkum annarra ríkja á Norðurlöndum. Fyrsti minni hluti telur það ekki markmið í sjálfu sér að íslenskar reglur samræmist reglum annarra ríkja heldur aðeins að þær þjóni hagsmunum samfélagsins. Af þeim sökum telur 1. minni hluti jákvætt að stjórnvöld treysti sér til þess að móta eigin reglur þegar um er að ræða grundvallarhagsmuni íslensks samfélags, líkt og í þessu máli. Ekki virðast vera fordæmi fyrir því víða annars staðar að telja ítrekuð brot til afturköllunarástæðna en þrátt fyrir slíkar ábendingar virðast stjórnvöld reiðubúin að standa fyrir þessum breytingum.
    Í því samhengi telur 1. minni hluti jákvætt að allsherjar- og menntamálanefnd hafi auðnast að vinna skynsamlega úr athugasemdum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem bárust um málið. Þar var komist að þeirri niðurstöðu, sem þarf að gera víðar, að löggjafinn verði sjálfur að leggja mat á hvernig tryggja beri hagsmuni íslensks samfélags innan marka stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, en ekki samkvæmt skipun að utan.

Umborin dvöl og mannúðarsjónarmið.
    Fyrsti minni hluti lýsir efasemdum um breytingartillögu meiri hlutans um að stjórnvöldum beri áfram skylda til að meta veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða við afturköllun alþjóðlegrar verndar. Meiri hlutinn byggir sjálfur í nefndaráliti sínu á því að skuldbindingar Íslands, þar á meðal bann við endursendingu (e. non-refoulement), séu tryggðar með ákvæðum frumvarpsins um dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar. Að mati 1. minni hluta ber stjórnvöldum því ekki nauðsynleg skylda til að meta einnig dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Umborin dvöl á að duga til að uppfylla skuldbindingar Íslands. Að byggja þar fyrir utan á sjálfvirkri skyldu til mannúðarmats kann að grafa undan tilgangi þessara nýju heimilda og draga úr áhrifum lagasetningarinnar.
    Fyrsti minni hluti ítrekar jafnframt áhyggjur sínar af því að umborin dvöl verði í framkvæmd að dvalarleyfisflokki til lengri tíma en lagt er upp með. Fyrsti minni hluti hvetur til þess að fylgst verði náið með þróun hinnar nýju tegundar af dvalarleyfi. Ástæða kann að vera til að hafa áhyggjur af því að dvalarleyfið bindi í raun hendur íslenskra stjórnvalda þegar kemur að því að flytja einstaklinga úr landi sem ættu að vera farnir. Þegar það gerist ítrekað að aðstæður í heimaríki koma í veg fyrir brottvísun einstaklinga, sem þó á að brottvísa samkvæmt lögum, er mikilvægt að íslensk stjórnvöld gefist ekki upp á að gæta réttar síns gagnvart slíku þrátefli. Skoða ber samninga við þriðju ríki. Með útgáfu sérstaks dvalarleyfis fyrir þessar aðstæður kann að vera dregið úr hvata fyrir stjórnvöld til að tryggja lögmæta brottvísun einstaklinga.

Breytingartillaga.
    Fyrsti minni hluti leggur til breytingu á a-lið 3. gr. frumvarpsins um heimild til að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar og leggur til að fallið verði frá því að vísa til þess að viðkomandi sem fremji alvarlegt brot sé af þeim sökum talinn hættulegur samfélaginu og að fallið verði frá því að vísa til þess að ítrekuð afbrot ógni allsherjarreglu eða almannaöryggi.
    Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Efnismálsgrein a-liðar 3. gr. orðist svo:
    Heimilt er að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef gildar ástæður eru til að álíta útlending hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot eða hann hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot.

Alþingi, 17. desember 2025.

Snorri Másson.