Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 595 — 206. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Sigurði Erni Hilmarssyni um menntun fanga.
1. Hversu miklum fjármunum hefur ráðuneytið, eða stofnanir sem heyra undir það, varið árlega til menntunar fanga á árunum 2020–2025? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Eftirfarandi eru upplýsingar frá Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu) sem sinnir sérverkefni
um menntun fanga á framhaldsskólastigi um þá fjármuni sem varið hefur verið til málefnisins
á umræddu tímabili:
| 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025* |
| 54.141.218 kr. | 62.295.625 kr. | 59.935.561 kr. | 54.582.918 kr. | 52.662.385 kr. | 44.923.577 kr. |
2. Hvernig hefur framangreindum fjármunum verið ráðstafað, sundurliðað eftir menntastofnunum og fangelsum? Hvert er hlutfall fjármuna sem hefur verið varið í verkmenntun og starfsþjálfun samanborið við annað nám?
Framangreindum fjármunum er ráðstafað til Fjölbrautaskóla Suðurlands sem sinnir
menntun fanga á framhaldsskólastigi. Ekki liggur fyrir hvert hlutfall fjármuna er milli bók- og verknáms og/eða starfsþjálfunar. Fyrirkomulag menntunar í fangelsum hefur verið með
eftirfarandi hætti:
Litla-Hraun: Umfang verknáms á Litla-Hrauni er u.þ.b. 1/ 8 af námsframboði í staðnámi
eða 2 klst. á viku af 16 klst. Til viðbótar staðnáminu er yfirleitt einnig fjarnám í boði, stundum námsáfangar á verknámsbrautum.
Sogn: Á Sogni er aðeins boðið upp á bóknám í staðnámi eða í 3x80 mínútur á viku, þar
sem ekki er aðstaða fyrir verknám í staðnámi. Þar er, líkt og á Litla-Hrauni, boðið upp á
fjarnám, stundum námsáfanga á verknámsbrautum. Til dæmis eru þar nú fjórir nemendur í
átta áföngum (40 einingum) á rafmagns- og trésmíðabrautum í fjarnámi.
Hólmsheiði: Á Hólmsheiði er föngum boðið upp á aðstoð við að skrá sig í fjarnám. Náms- og starfsráðgjafi FSu fer þangað að jafnaði einu sinni í viku og býður upp á viðtalsþjónustu.
Þar er engin staðkennsla í boði samkvæmt ákvörðun Fangelsismálastofnunar.
Kvíabryggja: Á Kvíabryggju eru oftast einhverjir í fjarnámi. Þangað fer náms- og starfsráðgjafi FSu einu sinni til tvisvar á önn og býður upp á símaviðtöl a.m.k. vikulega þess í milli.
3. Með hvaða hætti er menntunarþörf fanga metin og þeim leiðbeint um viðeigandi námsleiðir?
Menntunarþörf fanga og viðeigandi námsleiðir eru metnar af náms- og starfsráðgjafa sem
starfar við skóladeild FSu í fangelsunum. Auk náms- og starfsráðgjafa hefur kennslustjóri
FSu í fangelsum séð um skráningar í nám, tekið nemendur í viðtöl og aðstoðað þá við að
velja nám og leiðir.
4. Með hvaða hætti mælir ráðuneytið árangur af menntun fanga, sér í lagi með tilliti til markmiða um endurhæfingu og minni líkur á endurkomu í fangelsi? Hvaða mælikvarðar eru notaðir og hverjar eru niðurstöður slíkra mælinga?
Allar mælingar á formlegum námsárangri í fangelsisdeild FSu eru skráðar með sama hætti
og annar námsárangur í skólanum, með einkunnum og einingum, stöðnum og föllnum, í miðlæga skráningarkerfinu Innu. Að auki hefur kennslustjóri FSu í fangelsum skilað inn ítarlegri skýrslu til ráðuneytisins um starfið á hverju skólaári sem einnig má finna á vef skólans. 1 Þar er að finna upplýsingar um staðnar einingar, fjölda nemenda, brotthvarfshlutfall og annað það sem hefur haft áhrif á nám og kennslu á hverjum tíma. Þessi gögn eru helstu árangursmælikvarðar ráðuneytisins. Markmið um endurhæfingu eða minni líkur á endurkomu í fangelsi liggja ekki fyrir.
5. Hefur ráðuneytið átt í samráði við Afstöðu, Bjargráð eða önnur slík samtök um nám fanga á landsvísu? Ef svo er, hvernig hefur því samráði verið háttað og stendur til að festa það í formi til framtíðar?
Við gerð tveggja skýrslna um málefni fanga frá árunum 2019 og 2021 var náið samráð við
fulltrúa Afstöðu, Bataakademíunnar og fleiri hagaðila vegna þeirra tillagna sem lagðar voru
fram í þeim skýrslum, þar á meðal um bættan aðgang að menntun.
Að beiðni fulltrúa Afstöðu og fleiri gesta hefur mennta- og barnamálaráðuneyti fundað
með þeim fulltrúum u.þ.b. einu sinni á ári frá því að breytingar voru gerðar á ráðuneytinu árið
2022, nú síðast í júní 2025.
6. Hyggst ráðherra leggja fram formlega stefnu í menntamálum fanga? Ef svo er, hvaða skref hafa verið tekin í þá átt?
Í tveimur skýrslum um málefni fanga frá árunum 2019 og 2021 kemur fram að gríðarlegur
samfélagslegur ávinningur sé af því að auka líkur á því að einstaklingar snúi aftur út í samfélagið með færni og verkfæri til þess að vera þar farsælir þátttakendur og eru endurhæfing og menntun grunnforsendur slíkrar betrunar. Í skýrslunum er áhersla á mikilvægi þess að ná til þessara einstaklinga um leið og tækifæri gefst og tryggja fjölþættan og einstaklingsbundinn stuðning sem miði að betrun þeirra og árangursríkri þátttöku í samfélaginu þegar þar að kemur. Í skýrslunum voru lagðar til fjölþættar tillögur sem sumar hafa þegar komist til framkvæmda eins og t.d. geðheilsuteymi fyrir fanga. Þær tillögur sem lutu að menntun og virkni voru um stóraukna námsráðgjöf og sérkennsluúrræði, fullorðinsfræðslu, tölvustofur og styttri námskeið í verkmenntun.
Þá gaf umboðsmaður út þemaskýrslu um konur í fangelsum árið 2023 þar sem tilmælum
var beint til ráðuneytisins að brýnt væri að taka til skoðunar að bæta úr menntamálum kvenfanga, einkum á Hólmsheiði, með það í huga að bjóða upp á staðnám og verknám og auka fjölbreytni þess náms sem föngum stendur til boða. Í OPCAT-skýrslu umboðsmanns vegna eftirlitsheimsóknar hans í fangelsið á Litla-Hrauni, sem birt var árið 2023, var þeirri ábendingu beint til ráðuneytisins að huga þyrfti sérstaklega að námsframboði fyrir fanga af erlendum uppruna.
Til að bregðast við framangreindum skýrslum um málefni fanga og þeim ábendingum og
tilmælum sem koma fram í skýrslum umboðsmanns Alþingis hefur mennta- og barnamálaráðuneyti unnið að því að móta tillögur sem m.a. lúta að framtíðarfyrirkomulagi í málaflokknum og miða að því að efla menntun fanga og koma til móts við fjölbreyttan hóp
á meðal fanga, þar á meðal með áherslu á kvenfanga og fanga af erlendum uppruna. Ekki
hefur verið tekin afstaða til framkvæmdar tillagnanna.
1 Skýrslur um skólastarf í fangelsum má finna á vef Fjölbrautarskóla Suðurlands undir viðkomandi skólaári: www.fsu.is/is/um-skolann/rekstur-og-skipulag/skyrslur