Ferill 373. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 608  —  373. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um stöðu barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun.

Frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.


     1.      Með hvaða hætti hefur verið unnið að úrbótum í málefnum barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun, byggt á þeim ábendingum og athugasemdum sem fram komu í skýrslu mennta- og menningarmálaráðherra árið 2012 um stöðu hópsins?
     2.      Hversu mörg börn og ungmenni hafa verið greind með tal- eða málþroskaröskun hér á landi á síðustu 15 árum? Hversu mörg þeirra hafa jafnframt verið greind með einhverfu? Er mögulegt að flokka hópinn eftir alvarleika raskana, þ.e. frá vægri seinkun málþroska yfir í alvarleg frávik, einstaklinga með sértækar raskanir, fötlunargreiningar eða almennan seinþroska?
     3.      Hversu mörg börn sem hafa verið greind með tal- eða málþroskaröskun bíða nú eftir þjónustu og hversu lengi hafa þau verið á biðlista?
     4.      Í hvaða tilvikum er þörf á aðkomu Sjúkratrygginga Íslands vegna slíkrar þjónustu?
     5.      Með hvaða hætti skiptist kostnaður af þjónustunni milli ríkis, sveitarfélaga og forráðamanna?


Skriflegt svar óskast.