Ferill 251. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 609 — 251. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.
1. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hversu margir eru þeir?
Einn upplýsingafulltrúi er starfandi í mennta- og barnamálaráðuneyti.
2. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
Hjá Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu er starfandi einn sviðsstjóri samskipta- og þjónustusviðs. Hjá Menntamálastofnun, sem starfaði til ársins 2024, var starfandi einn kynningarstjóri.
Engir upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar eru starfandi hjá öðrum undirstofnunum ráðuneytisins sem eru eftirfarandi:
Barna- og fjölskyldustofa.
Borgarholtsskóli.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga.
Fjölbrautaskóli Suðurlands.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja.
Fjölbrautaskóli Vesturlands.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ.
Flensborgarskólinn.
Framhaldsskólinn á Húsavík.
Framhaldsskólinn á Laugum.
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu.
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ.
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum.
Kvennaskólinn í Reykjavík.
Menntaskólinn að Laugarvatni.
Menntaskólinn á Akureyri.
Menntaskólinn á Egilsstöðum.
Menntaskólinn á Ísafirði.
Menntaskólinn á Tröllaskaga.
Menntaskólinn í Kópavogi.
Menntaskólinn í Reykjavík.
Menntaskólinn við Hamrahlíð.
Menntaskólinn við Sund.
Ráðgjafar- og greiningarstöð.
Verkmenntaskóli Austurlands.
Verkmenntaskólinn á Akureyri.
3. Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.
Í ráðuneytinu er ekki starfrækt upplýsinga- eða samskiptadeild. Í Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu, sem tók til starfa 1. apríl 2024, er starfrækt samskipta- og þjónustusvið og vísast til svars við 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Að öðru leyti er ekki starfrækt upplýsinga- eða samskiptadeild í öðrum undirstofnunum ráðuneytisins.