Ferill 205. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 610  —  205. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Hrund Logadóttur um heimavist Fjölbrautaskóla Suðurlands.


     1.      Nægir fjárveiting til Fjölbrautaskóla Suðurlands samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 til að tryggja helgaropnun heimavistar skólans á næsta ári?
    
Samkvæmt fyrirliggjandi leigusamningi frá maí 2024 er afnot af húsnæði á Selfossi fyrir heimavistarnemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu) leigt til níu mánaða á ári fyrir allt að 22 nemendur, en leigan miðast að lágmarki við 20 nemendur óháð raunfjölda.
    Heimavist FSu býður ekki upp á reglubundna helgaropnun nema sótt sé sérstaklega um slíkt, t.d. vegna viðburða, íþróttaiðkunar eða annarra sérstakra aðstæðna. Til samanburðar má nefna að fyrirkomulag varðandi helgaropnun á heimavistum framhaldsskóla á Íslandi er misjafnt. Þeir skólar sem hafa lengi rekið heimavistir, svo sem Menntaskólinn á Akureyri, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Framhaldsskólinn á Laugum og Menntaskólinn að Laugarvatni, hafa heimavistir opnar alla daga vikunnar, þar með talið um helgar, og fast starfsmannahald. Lokað er á heimavist Fjölbrautaskóla Vesturlands aðra hvora helgi og lokað er á heimavist Verkmenntaskóla Austurlands um helgar.
    Við upphaf skólaársins 2025–2026 dvöldu 17 nemendur á heimavist FSu, en þeim hefur fækkað í 13 á haustönn. Fækkun nemenda á heimavistinni hefur haft neikvæð áhrif á rekstrarforsendur og ljóst er að nýting er undir áætlun.
    Fjárveiting til reksturs heimavistar FSu samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 nemur 24 millj. kr. Fækkun nemenda á heimavist skólans á yfirstandandi önn hefur skapað óvissu um áframhaldandi rekstur hennar. Þá ríkir óvissa um áframhaldandi notkun húsnæðisins þar sem ekki liggur fyrir hvernig leigusalar hyggjast bregðast við ábendingum skólayfirvalda um ástand húsnæðisins sem og við formlegum athugasemdum eftirlitsaðila í kjölfar úttekta. Því er ekki unnt að svo stöddu að fullyrða hvort framangreind fjárveiting dugi til að standa undir rekstrinum, þar með talinni reglubundinni helgaropnun.

     2.      Telur ráðherra að aðbúnaður og þjónusta á heimavist Fjölbrautaskóla Suðurlands ætti, með tilliti til jafnræðissjónarmiða, að vera sambærileg við heimavistir Menntaskólans að Laugarvatni og Menntaskólans á Akureyri?
    
FSu er í sameign ríkisins og sveitarfélaga á Suðurlandi. Sveitarfélögin á Suðurlandi hafa í gegnum tíðina lagt sitt af mörkum til uppbyggingar og reksturs skólans og tekið sameiginlega afstöðu í mikilvægum málum sem varða framtíð hans, þar á meðal er varða heimavist. Í ljósi þessa er mikilvægt að eiga náið samráð við sveitarfélögin á Suðurlandi um framtíðarfyrirkomulag heimavistar við skólann og hvernig best verði tryggt að nemendur á svæðinu hafi jafnan aðgang að þjónustu og aðbúnaði á sambærilegum forsendum og nemendur við aðra framhaldsskóla með heimavist.
    Heimavist Fjölbrautaskóla Suðurlands sker sig að vissu leyti úr í samanburði við aðrar heimavistir á landsbyggðinni. Hún er staðsett í leiguhúsnæði utan skólalóðar og ekki hluti af sameiginlegri aðstöðu skólans. Ekkert mötuneyti er í húsnæðinu sjálfu, en nemendur hafa aðgang að mötuneyti skólans yfir daginn. Skipulagt félagslíf og stoðþjónusta er takmörkuð og heimavistin er almennt ekki opin um helgar.
    Heimavistin er einnig umtalsvert minni en flestar sambærilegar vistir. Hún rúmar að hámarki 22 nemendur en hefur í reynd verið nýtt af færri. Til samanburðar eru fjölmargar aðrar heimavistir með rými fyrir 40–80 nemendur með föstu starfsmannahaldi og opnun alla daga vikunnar, þar með talið um helgar.
    Þó má ætla að þörfin fyrir heimavist við FSu sé í heild minni en víða annars staðar á landsbyggðinni. Um 96% nemenda skólans koma frá póstnúmerum 800–881 og búa því að jafnaði innan viðráðanlegrar akstursfjarlægðar frá skólanum. Hins vegar eru einnig dæmi um nemendur sem þurfa að ferðast langar leiðir til að sækja skólann og getur heimavist skipt þá sköpum. Því er mikilvægt að fyrirkomulag þjónustu og reksturs heimavistar taki mið af staðbundinni þörf og raunverulegri nýtingu en jafnframt að aðbúnaður og öryggi þeirra sem dvelja á vistinni sé ávallt tryggður, óháð fjölda.
    Þótt heimavistir framhaldsskóla séu ólíkar að umfangi, nýtingu og staðbundinni þörf ber að gæta þess að aðbúnaður og þjónusta á heimavist FSu sé í grunninn sambærileg við það sem tíðkast á öðrum vistum, svo sem við Menntaskólann á Akureyri og Menntaskólann að Laugarvatni, að teknu tilliti til stærðar, staðsetningar og nemendafjölda.
    Markmið stjórnvalda og eigenda skólans hlýtur að vera að tryggja að nemendur á heimavist FSu, óháð því hversu margir nemendur dvelja þar hverju sinni, njóti sambærilegra tækifæra og stuðnings og jafnaldrar þeirra annars staðar á landinu í samræmi við sjónarmið um jafnræði og jöfn tækifæri til náms.

     3.      Hefur ríkisstjórnin fjallað um eða tekið afstöðu til mögulegrar byggingar nýrrar heimavistar við Fjölbrautaskóla Suðurlands? Ef svo er, hvaða skref hafa verið ákveðin, hver er tímalína verkefnisins og hvaða fjármagni er gert ráð fyrir að ráðstafa til þess árin 2026 og 2027?
    
Ríkisstjórnin hefur ekki tekið sérstaka afstöðu til þess að ráðast í mögulega byggingu nýrrar heimavistar við Fjölbrautaskóla Suðurlands enda þarf m.a. samtal um slíkt að eiga sér stað í nánu samstarfi við hlutaðeigandi sveitarfélög á Suðurlandi og hagsmunaaðila.

     4.      Hyggst ráðherra stuðla að frekari aðgerðum eða umbótum til að tryggja að aðbúnaður og þjónusta heimavistar Fjölbrautaskóla Suðurlands verði í samræmi við þarfir nemenda og markmið stjórnvalda í menntamálum?

    Ráðherra leggur ríka áherslu á að aðbúnaður og þjónusta við nemendur framhaldsskóla sé í samræmi við lög, reglugerðir og markmið stjórnvalda í menntamálum. Það á einnig við um heimavistir, þar sem öryggi, velferð og aðgengi að viðunandi þjónustu eru lykilforsendur. Heimavistir gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja nemendum utan af landi aðgang að framhaldsnámi og stuðla þannig að jöfnum tækifærum til náms, óháð búsetu.
    Í því skyni er mikilvægt að ákvarðanir varðandi framtíð heimavistar Fjölbrautaskóla Suðurlands byggi á traustri greiningu á þörfum nemenda og raunhæfum forsendum um rekstur og nýtingu. Slíkt þarf að gerast í nánu samráði við hagsmunaaðila, þar á meðal nemendur, foreldra, skólayfirvöld og sveitarfélög á Suðurlandi sem standa að skólanum með ríkinu.
    Ráðherra er reiðubúinn til virks samtals við alla hlutaðeigandi aðila um hvernig tryggja megi að aðstaða og þjónusta við heimavistarnemendur FSu uppfylli þær kröfur sem gerðar eru og styðji við markmið stjórnvalda um jöfn tækifæri til náms, óháð búsetu.