Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 614, 157. löggjafarþing 86. mál: áhafnir skipa (áhafnir björgunarskipa).
Lög nr. 92 24. desember 2025.
Þrátt fyrir ákvæði laga þessara er ráðherra heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem gegna sérhæfðu hlutverki, og um lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á þeim. Námskrá og listi yfir kennara eru háð samþykki Samgöngustofu sem hefur eftirlit með náminu. Nám samkvæmt þessari málsgrein skal eingöngu veita réttindi til starfa um borð í björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar samkvæmt skipaskrá.
Þingskjal 614, 157. löggjafarþing 86. mál: áhafnir skipa (áhafnir björgunarskipa).
Lög nr. 92 24. desember 2025.
Lög um breytingu á lögum um áhafnir skipa, nr. 82/2022 (áhafnir björgunarskipa).
1. gr.
Við 37. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði laga þessara er ráðherra heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem gegna sérhæfðu hlutverki, og um lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á þeim. Námskrá og listi yfir kennara eru háð samþykki Samgöngustofu sem hefur eftirlit með náminu. Nám samkvæmt þessari málsgrein skal eingöngu veita réttindi til starfa um borð í björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar samkvæmt skipaskrá.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 18. desember 2025.