Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 619, 157. löggjafarþing 306. mál: húsnæðismál (hlutdeildarlán).
Lög nr. 93 24. desember 2025.
Þingskjal 619, 157. löggjafarþing 306. mál: húsnæðismál (hlutdeildarlán).
Lög nr. 93 24. desember 2025.
Lög um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998 (hlutdeildarlán).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 29. gr. a laganna:- Í stað fjárhæðanna „7.560.000 kr.“ og „10.560.000 kr.“ í 1. málsl. og „1.560.000 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 10.000.000 kr.; 15.000.000 kr.; og: 2.254.000 kr.
- Í stað „20%“ í 1. málsl., „30%“, „5.018.000 kr.“ og „7.020.000 kr.“ í 2. málsl. og „1.560.000 kr.“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: 25%; 35%; 6.793.000 kr.; 10.620.000 kr.; og: 2.254.000 kr.
- Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Séu hjón eða sambúðarfólk ekki bæði umsækjendur um hlutdeildarlán skal engu að síður litið til tekna beggja við mat á því hvort umsækjandi falli undir tekjumörk skv. 1. eða 2. mgr. nema fyrir liggi leyfi til skilnaðar að borði og sæng, krafa um lögskilnað án undangengins skilnaðar að borði og sæng eða að höfðað hafi verið mál til skilnaðar eða ógildingar hjúskapar.
- 2. málsl. 5. mgr. fellur brott.
- Á eftir 5. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- 7. mgr. orðast svo:
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 29. gr. b laganna:- Við 1. tölul. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé umsækjandi í hjónabandi eða sambúð skal litið til tekna og eigna maka við mat á skilyrði 1. málsl., enda þótt hann sé ekki umsækjandi um hlutdeildarlán, nema fyrir liggi leyfi til skilnaðar að borði og sæng, krafa um lögskilnað án undangengins skilnaðar að borði og sæng eða að höfðað hafi verið mál til skilnaðar eða ógildingar hjúskapar.
- Við 2. tölul. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé umsækjandi í hjónabandi eða sambúð gildir hið sama um maka umsækjanda, enda þótt hann sé ekki umsækjandi um hlutdeildarlán, nema fyrir liggi leyfi til skilnaðar að borði og sæng, krafa um lögskilnað án undangengins skilnaðar að borði og sæng eða að höfðað hafi verið mál til skilnaðar eða ógildingar hjúskapar.
- Í stað „5%“ í 2. málsl. 3. tölul. kemur: 10%.
- 5. tölul. orðast svo: Meðalafborganir fasteignaláns mega ekki nema meira en 40% ráðstöfunartekna umsækjanda, ef um er að ræða hjón eða sambúðarfólk, eða 45% ráðstöfunartekna umsækjanda, ef um einstakling er að ræða.
- Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Umsækjandi sem er með dvalarleyfi hér á landi skal hafa ótímabundið dvalarleyfi samkvæmt lögum um útlendinga, nr. 80/2016.
3. gr.
1. tölul. 1. mgr. 29. gr. d laganna orðast svo: Hlutföll hlutdeildarlána, hvaða skilyrði íbúðarhúsnæði skal uppfylla, þ.m.t. hámarksverð, stærðarviðmið, svo og um samstarf og samninga við byggingaraðila.4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2026.Samþykkt á Alþingi 18. desember 2025.