Ferill 224. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 623 — 224. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um lögbundið hlutverk og þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri.
1. Hvaða atriði í 26. og 27. gr. reglugerðar um heilbrigðisumdæmi og hlutverk, starfsemi og þjónustu heilsugæslustöðva, heilbrigðisstofnana og sjúkrahúsa, nr. 1111/2020, telur heilbrigðisráðherra að Sjúkrahúsið á Akureyri uppfylli að fullu miðað við núverandi starfsemi sjúkrahússins? Svar óskast sundurliðað.
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) uppfyllir atriði 26. og 27. gr. reglugerðar um heilbrigðisumdæmi og hlutverk, starfsemi og þjónustu heilsugæslustöðva, heilbrigðisstofnana og sjúkrahúsa, nr. 1111/2020. Í fyrrgreindum ákvæðum reglugerðarinnar er tilgreint með fremur almennum hætti hvaða verkefnum sjúkrahúsið á að sinna og hvaða hlutverk það hefur. Hlutverk Sjúkrahússins á Akureyri er samkvæmt 26. gr. reglugerðarinnar að:
a. Vera kennslusjúkrahús og varasjúkrahús Landspítala.
Sem kennslusjúkrahús gegnir Sjúkrahúsið á Akureyri mikilvægu hlutverki þegar kemur að starfsnámi allra helstu heilbrigðisstétta landsins með öflugu samráði við menntastofnanir landsins. Sem varasjúkrahús fyrir Landspítala er vísað til tímabundinnar nálgunar við neyðarástand. Á það hlutverk hefur ekki reynt hingað til en í raun er litið svo á að allar opinberar heilbrigðisstofnanir landsins séu til stuðnings hver annarri þegar ógnir í starfsemi steðja að. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alhliða bráðaþjónustu og þarf að hafa nægjanlegan rúmafjölda, tækjabúnað, skurðstofur, gjörgæslu, rannsóknarþjónustu, mönnun og vaktþjónustu í helstu sérgreinum.
b. Veita heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma samræmist skyldu kennslusjúkrahúss, meðal annars sérfræðiþjónustu í nær öllum viðurkenndum greinum læknisfræði, hjúkrunarfræði og eftir atvikum öðrum greinum heilbrigðisvísinda sem stundaðar eru hér á landi, með aðgengi að stoðdeildum og rannsóknadeildum.
Á Sjúkrahúsinu á Akureyri er boðið upp á heilbrigðisþjónustu sem samræmist skyldu kennslusjúkrahúss, það getur þó verið áskorun að veita heilbrigðisþjónustu í nær öllum greinum þegar ekki eru talin nægjanlega mörg klínísk tilfelli til að standa undir þjálfuninni.
c. Annast starfsnám háskólanema og framhaldsskólanema í heilbrigðisgreinum í grunn- og framhaldsnámi í samvinnu við menntastofnanir og aðrar heilbrigðisstofnanir.
Töluverð kennsla á sér stað í heilbrigðisgreinum við Háskólann á Akureyri sem og kennsla sjúkraliða við Verkmenntaskólann á Akureyri, auk þess sem nám sjúkraflutningamanna á sér stað á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þá eru ótaldir nemar við aðrar menntastofnanir í landinu. Tryggja þarf að klínísk námspláss séu almennt nægjanlega mörg og af góðum gæðum til að standa undir menntunarþörf heilbrigðisstétta.
d. Veita háskólamenntuðum starfsmönnum sérmenntun í heilbrigðisgreinum.
Þetta atriði er uppfyllt að því marki sem óskað er eftir.
e. Gera fagfólki kleift að sinna fræðastörfum við háskóla og veita þeim aðstöðu til þess að sinna rannsóknum og öðrum störfum við sjúkrahúsið.
Sjúkrahúsið á Akureyri uppfyllir skilyrðið í gegnum Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri og Sjúkrahúsið á Akureyri er rannsóknarstofnun sem er sameiginlegur vettvangur til rannsókna fyrir starfsmenn sjúkrahússins og háskólans, svo og annarra heilbrigðisstofnana eftir nánara samkomulagi.
Þjónusta Sjúkrahússins á Akureyri skal samkvæmt 27. gr. reglugerðarinnar vera:
– Sjúkrahúsið á Akureyri skal veita annars stigs heilbrigðisþjónustu og að einhverju leyti þriðja stigs heilbrigðisþjónustu. Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítali skulu hafa með sér samráð um veitingu á þriðja stigs heilbrigðisþjónustu.
Á Sjúkrahúsinu á Akureyri er veitt annars stigs heilbrigðisþjónusta og að einhverju leyti þriðja stigs þjónusta sem hefur verið lagt til að formgera með skýrari hætti, innleiða og fylgja eftir samkomulagi við Landspítala um sérhæft heilbrigðisstarfsfólk til að tryggja viðeigandi mönnun í hinum ýmsu sérgreinum lækninga. Jafnframt er lagt til að fjölga samsettum stöðum þar sem sérfræðingar sinna klínísku starfi bæði á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Bæta þarf aðstöðu gjörgæsludeildar, skurðstofu og vöknunar svo hægt sé að auka starfsemi og bregðast við bráðaaðstæðum. Tryggja þarf viðhald eldri bygginga til að laga og koma í veg fyrir frekari rakaskemmdir. Tryggja þarf að tímaáætlun um nýbyggingu standist svo SAk geti sinnt hlutverki sínu sem sérgreinasjúkrahús og skapa tækifæri til aukinnar starfsemi.
– Sjúkrahúsið á Akureyri skal veita nauðsynlega sérfræðiþjónustu, meðal annars samkvæmt samningum við heilbrigðisstofnanir heilbrigðisumdæma og í nánu samstarfi við heilbrigðisstofnanir.
Það er áskorun að halda úti fjölbreyttri sérhæfðri þjónustu á landsbyggðinni. Ungum sérfræðingum sem flytjast til landsins vex í augum að takast á við fjölbreytni vandamála sem eru á sjúkrahúsi af stærðargráðu sjúkrahússins þar sem undirsérgreinasérfræðingar eru fáir og vaktalínur eru ekki í mismunandi undirgreinum. Það er faglega erfitt að standa einn undir sinni sérþekkingu á landsbyggðinni og mikilvægt að byggja upp samvinnu milli stofnana eins og Sjúkrahússins á Akureyri og Landspítala og fjölga tækifærum til að viðhalda þekkingu og eiga faglegan stuðning vísan. Einnig eru fámennar vaktalínur viðkvæmar fyrir breytingum. Því er stöðug áskorun að manna sjúkrahúsið sérfræðingum.
– Sjúkrahúsið á Akureyri skal þróa öfluga dag- og göngudeildarþjónustu þar sem notendur heilbrigðisþjónustu sem þurfa álit sérfræðings geta komið samkvæmt beiðni heilsugæslulæknis eða annarra sérfræðinga, óháð því hvort þeir hafi legið inni á sjúkrahúsinu eða ekki.
Lagt er til að byggja upp öfluga dagdeild skurðlækninga og tryggja enn frekar aðkomu helstu sérgreina lækninga á dag- og göngudeild.
– Sjúkrahúsið á Akureyri skal þróa samvinnu við aðrar heilbrigðisstofnanir til að tryggja að notendur fái heilbrigðisþjónustu á réttu þjónustustigi. Sjúkrahúsið á Akureyri ber ábyrgð á því að skilvirk verkferli séu þróuð í samvinnu við aðra þjónustuaðila.
Samvinna við aðra þjónustuveitendur heilbrigðisþjónustu á svæðinu er góð en tafir á opnun hjúkrunarheimilis Heilsuverndar og mygla á hjúkrunarheimilinu Hlíð hefur valdið því að ekki hefur tekist að útskrifa sjúklinga sem lokið hafa meðferð á sjúkrahúsinu í viðeigandi úrræði.
2. Hvaða atriði í sömu ákvæðum telur ráðherra að séu aðeins að hluta til uppfyllt og hvaða ástæður liggja þar að baki? Svar óskast sundurliðað.
Sjá svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
3. Eru einhver atriði í lögum eða reglugerð sem Sjúkrahúsið á Akureyri nær ekki að uppfylla samkvæmt mati ráðherra? Ef svo er, hvaða atriði eru það og hvaða áform eru um að bæta úr því? Svar óskast sundurliðað.
Sjúkrahúsið á Akureyri uppfyllir skilyrði í lögum og reglugerð en geta má þess að það eru blikur á lofti er varða mönnun, þjónustu og rekstur spítalans. Því eru meðal annars eftirfarandi aðgerðir í gangi:
– Að ljúka við að skilgreina hlutverk Sjúkrahússins á Akureyri sem varasjúkrahús.
– Að setja vinnuhóp forstjóra nokkurra stofnana sem á að rýna frekar hlutverk Sjúkrahússins á Akureyri.
– Að fá utanaðkomandi ráðgjafa sem mun aðstoða forstjóra við rýni á rekstri.
4. Hefur ráðherra látið vinna eða hyggst ráðherra láta vinna úttekt á því hvernig þjónusta Sjúkrahússins á Akureyri samræmist lögbundnu hlutverki þess samkvæmt 7. gr. b laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og reglugerð nr. 1111/2020?
Landlæknir hefur reglubundið eftirlit með því að heilbrigðisþjónusta sem veitt er hér á landi uppfylli faglegar kröfur og ákvæði heilbrigðislöggjafar á hverjum tíma samkvæmt e-lið 1. mgr. 4. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007. Enn fremur hefur landlæknir það hlutverk að veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum ráðgjöf og fræðslu um heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu samkvæmt a-lið 1. mgr. 4. gr. sömu laga.
Telji landlæknir að heilbrigðisþjónusta uppfylli ekki faglegar kröfur eða önnur skilyrði í heilbrigðislöggjöf skal hann beina tilmælum um úrbætur til rekstraraðila. Verði rekstraraðili ekki við slíkum tilmælum ber landlækni að skýra ráðherra frá málinu og gera tillögur um hvað gera skuli. Þá hefur ráðherra heimild til að taka ákvörðun um að stöðva rekstur tímabundið, þar til bætt hefur verið úr annmörkum, eða stöðva rekstur að fullu samkvæmt 5. gr. reglugerðar um eftirlit landlæknis með rekstri heilbrigðisþjónustu og faglegar lágmarkskröfur nr. 786/2007.
Ráðuneytið bendir á að í júlí 2024 birti embætti landlæknis úttekt á geðþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri þar sem embættið beinir ábendingum og tilmælum til stjórnenda Sjúkrahússins á Akureyri. Ásamt því óskar embættið eftir því að Sjúkrahúsið á Akureyri fylgi málum eftir með úrbótaáætlun og framgangsskýrslum. Þá rýnir embætti landlæknis ýmsa þjónustuþætti í sambandi við óvænt atvik og kvartanir eftir því sem upp koma.
Miðað við núverandi starfsemi hyggst ráðherra ekki láta gera úttekt á því hvernig þjónusta Sjúkrahússins á Akureyri samræmist lögbundnu hlutverki þess.