Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 628  —  281. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.


     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?
    Starfslokasamningar sem taldir eru fram í töflunni eru samningar sem gerðir hafa verið frá árinu 2018 og fela í sér réttindi umfram það sem kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Enginn starfslokasamningur hefur verið gerður hjá aðalskrifstofu ráðuneytisins á tímabilinu.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?
    
Tilgreindur kostnaður stofnana ráðuneytisins vegna starfslokasamninga sem tilgreindir eru í svari við 1. lið fyrirspurnarinnar er, í millj. kr.:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


                                  
     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?
                                  
    Til að koma í veg fyrir tvítalningu vegna flutnings embættismanna í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og stofnunum þess hins vegar eru hér eingöngu taldir embættismenn sem flust hafa frá ráðuneytinu og stofnunum þess, auk þeirra embættismanna sem flust hafa innan ráðuneytisins eða innan stofnana.
    Flutningur embættismanna á grundvelli 36. gr. laga nr. 70/1996:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.