Ferill 246. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 629 — 246. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um upplýsingafulltrúa.
Í dómsmálaráðuneytinu starfar einn upplýsingafulltrúi.
2. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
Samkvæmt upplýsingum frá undirstofnunum ráðuneytisins starfa upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar hjá fimm undirstofnunum ráðuneytisins, samtals sex stöðugildi; eitt hjá dómstólasýslunni, eitt hjá Landhelgisgæslu Íslands, eitt hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, eitt hjá Útlendingastofnun og tvö hjá embætti ríkislögreglustjóra. Hjá öðrum undirstofnunum ráðuneytisins eru ekki starfandi upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar.
3. Er upplýsinga- eða samskiptadeild starfrækt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um fjölda starfsmanna á deildunum undanfarin tíu ár, sundurliðað eftir árum og stofnunum.
Hvorki í dómsmálaráðuneytinu né hjá undirstofnunum þess er starfrækt sérstök upplýsinga- eða samskiptadeild og samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu og undirstofnunum þess hafa slíkar deildir ekki verið starfræktar á síðastliðnum tíu árum.