Ferill 276. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 632  —  276. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.


     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?
    Engir starfslokasamningar hafa verið gerðir hjá ráðuneytinu eða forverum þess á umræddu tímabili.
    Stofnanir ráðuneytisins, sem eru 24 talsins, svöruðu allar fyrirspurninni og heildarfjöldi einstaklinga sem gerðir voru starfslokasamningar við á tímabilinu var 22.

     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?
    Við uppstokkun ráðuneyta í kjölfar síðustu alþingiskosninga voru fjórir embættismenn fluttir á milli ráðuneyta á grundvelli 36. gr. laga nr. 70/1996. Engir embættismenn hafa verið fluttir á milli embætta hjá stofnunum ráðuneytisins á tímabilinu sem um ræðir.