Ferill 295. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 633  —  295. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða skilyrðum er greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í kostnaði vegna fíknimeðferðar barna á stofnun utan aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, Bretlands og Sviss háð? Er greiðsluþátttaka sjúkratrygginga samþykkt ef tiltekið fíknimeðferðarúrræði utan nefndra ríkja þykir henta barni best og ef kostnaður við það er sambærilegur og almennt gerist um slík meðferðarúrræði?

    Heilbrigðisráðuneytið hefur ekki aðkomu að vímuefnameðferðum barna hér á landi ef frá er talin afeitrunarmeðferð ólögráða ungmenna, sem krefst mikillar heilbrigðisþjónustu og lyfjameðferðar og fer fram hjá sérhæfðri einingu á Landspítala. Þessar innlagnir eru yfirleitt stuttar, á bilinu 1–3 dagar og í samstarfi við Barna- og fjölskyldustofu. Að öðru leyti ber mennta- og barnamálaráðuneytið ábyrgð á að veita börnum sérhæfða meðferð vegna vímuefnaneyslu, sbr. c-lið 1. mgr. 79. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.
    Að því er varðar vímuefnameðferðir erlendis eiga börn, líkt og fullorðnir, hins vegar rétt á að sækja meðferð á Evrópska efnahagssvæðinu á grundvelli landamæratilskipunar Evrópusambandsins 2011/24/ESB (Cross Border Healthcare Directive) en í því felst að sjúklingur getur valið sér meðferðarstað innan EES-svæðisins auk Sviss og fengið sömu niðurgreiðslu fyrir meðferðina eins og greitt hefði verið fyrir sömu meðferð á Íslandi. Ekki er greitt fyrir uppihald eða ferðir.
    Skilyrði fyrir greiðsluþátttöku utan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. 23. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, er að um brýna læknismeðferð sé að ræða sem er ekki veitt hér á landi. Þar sem börn hafa aðgang að vímuefnameðferð hér á landi hefur ákvæðinu ekki verið beitt með tilliti til meðferða utan EES.