Ferill 201. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 648 — 201. mál.
Skýrsla
innviðaráðherra um jöfnun kostnaðar vegna flugvélaeldsneytis, samkvæmt beiðni.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis óskuðu framangreindir þingmenn þess að ráðherra flytti Alþingi skýrslu um hugsanlegar aðgerðir til að lækka kostnað vegna flugvélaeldsneytis og afgreiðslu þess á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli svo að hann verði jafn kostnaðinum á þeim flugvelli þar sem hann er lægstur.
Beiðni þessi var áður lögð fram á 153. löggjafarþingi ( 569. mál) en ekki náðist að skila skýrslunni þá. Beiðnin var endurflutt í október sl.
Árið 2018 vann Jón Þorvaldur Heiðarsson, hagfræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri, skýrslu, „Jöfnun á flugsteinolíuverði á alþjóðaflugvöllum á Íslandi – Hugsanlegar útfærslur“, fyrir Flutningsjöfnunarsjóð olíuvara og í október 2022 lagði Byggðastofnun fyrir stjórn stofnunarinnar minnisblað um áætlaðan kostnað við flutningsjöfnun flugvélaeldsneytis. Með tilliti til framangreindrar vinnu óskaði innviðaráðuneytið eftir að Byggðastofnun ynni skýrslu um málið og fengi innlegg frá Jóni Þorvaldi Heiðarssyni. Umfjöllunarefni skýrslu Byggðastofnunar er í samræmi við framkomna beiðni:
a. Aðstöðumunur flugvalla með tilliti til kostnaðar vegna flugvélaeldsneytis og afgreiðslu þess.
b. Úttekt á hugsanlegum aðgerðum til jöfnunar á framangreindum kostnaði og greining á kostnaði við þær aðgerðir.
c. Mat á því hver hagkvæmasta aðgerðin eða hagkvæmustu aðgerðirnar eru til að ná fyrrgreindu markmiði.
d. Fýsileiki þess að tryggja örugga birgðastöð flugvélaeldsneytis á Akureyri og Egilsstöðum.
Mat þessara þátta er vandkvæðum háð þar sem takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um ýmis atriði sem máli skipta, ekki síst verð sem flugfélög greiða fyrir eldsneyti. Umfjöllun í skýrslunni byggist því á forsendum sem gera verður fyrirvara við þar sem ríkið og stofnanir þess eru ekki þátttakendur á þessum samkeppnismarkaði og hafa því eðli málsins samkvæmt ekki allar nauðsynlegar forsendur, svo sem:
1. Nákvæmar upplýsingar um hegðun markaðarins og hvaða verð flugrekendur eru að greiða fyrir flugvélaeldsneyti.
2. Verð á flugvélaeldsneyti er breytilegt á milli flugrekenda og flugvalla. Þannig kann t.d. EasyJet, vegna mikilla viðskipta, að greiða lægra verð í London en t.d. Icelandair og Icelandair kann jafnvel að greiða hærra verð í Keflavík en í London. Vegna samkeppni á markaðnum liggja þessar upplýsingar ekki fyrir.
3. Fyrir flugrekanda með heimahöfn erlendis og sem flýgur til og frá Akureyri, er óvíst að eldsneytiskostnaður í Keflavík né jöfnuður við hann skipti máli, líklegra er að eftirfarandi þættir skipti meira máli:
a. Kostnaðarmunur flugrekandans á eldsneyti á áfangastöðunum.
b. Hvaða flugvöll hann velur sér sem varaflugvöll. Ef flugrekandi velur t.d. að snúa aftur til brottfararflugvallar geti hann ekki lent á áfangastað, sem er ekki óalgengt, þá tekur hann með sér eldsneyti sem nægir fyrir flugið fram og til baka og tekur ekkert eða lítið eldsneyti á áfangastað. Val á varaflugvelli fer eftir mörgum breytilegum þáttum, þar á meðal hvort vélin geti borið með sér eldsneyti báðar leiðir sem getur m.a. ráðist af sætanýtingu í viðkomandi flugi.
4. Ekki liggja fyrir sölutölur á flugvélaeldsneyti undanfarinna ára og því heldur ekki kostnaður við tiltekna niðurgreiðslu á því magni.
5. Ekki liggur fyrir eftirspurnarfall flugvélaeldsneytis á Akureyri, þ.e. hvernig selt magn breytist með verði, né hvaða áhrif verðbreyting hefði á kostnað flugrekanda og að hve miklu leyti lægri kostnaður skilar sér í farmiðaverði. Hér þarf því að gefa sér forsendur.
6. Ekki er fjallað um hvort ríkisafskipti af eldsneytisverði sé hagkvæmasta leiðin til að jafna aðstöðumun milli flugvalla heldur aðeins hver hagkvæmasta leiðin sé verði ákvörðun tekin um að jafna verðið.
7. Niðurgreiðsla á jarðefnaeldsneyti er ekki í samræmi við stefnu íslenskra stjórnvalda um kolefnishlutleysi. Nær væri að jafna aðstöðumun með öðrum hætti.
8. Greina þarf sérstaklega mikilvægi þjóðaröryggishagsmuna af eldsneytisbirgðastöð á Akureyri.
9. Við ákvörðun á fýsileika birgðastöðva þarf að vega saman, auk byggðasjónarmiða, efnahagslega, öryggislega og umhverfislega hagsmuni.
10. Kostnaður við eldsneytisbirgðastöð á Akureyri og flutningskostnaður eldsneytis þangað er mjög háður útfærslu. Eins og fram kemur í skýrslunni, sem unnin var af Byggðastofnun fyrir innviðaráðherra, þarf að gera áreiðanlegra kostnaðarmat fyrir þetta verkefni. Eldsneytið hefur takmarkaðan líftíma og því þarf að tryggja birgðaveltu og ákveða stærð stöðvarinnar með tilliti til þess.
11. Ekki liggur enn fyrir hvort og þá hve mikið eldsneytisbirgðastöð á Akureyri gæti lækkað eldsneytiskostnað. Áfram þyrfti að flytja eldsneytið frá Helguvík og síðan þarf að reka birgðastöðina. Kostnaður vegna þess kæmi í stað núverandi kostnaðar við landflutninga frá Helguvík. Ef ná á verðinu á Akureyri niður í það sama og í Keflavík þarf því að niðurgreiða eldsneytið jafnvel þó að eldsneytisbirgðastöð yrði byggð á Akureyri og jafnvel þó svo að afskriftir af fjárfestingunni væru ekki teknar með í reikninginn.
Meginniðurstaðan er að ef yfirvöld ákveða að jafna flugsteinolíuverð á milli flugvalla á Íslandi þarf til skemmri tíma litið að ná samningum við núverandi eiganda afgreiðslubúnaðar á flugvöllunum og niðurgreiða flutning og afgreiðslukostnað til að ná verðmarkmiði, þ.e. fara leið 1 samkvæmt skýrslu Byggðastofnunar. Samhliða þarf að afla þekkingar á markaðinum og gera nákvæmara mat á því hvort og þá hvenær sé skynsamlegt að skipta yfir í sjóflutninga og byggja birgðastöð á eða við Akureyri. Öryggishagsmunir kunna að ráða miklu um hagkvæmni birgðastöðva og yrði þá um að ræða innviði með tvöfalt hlutverk, öryggis- og borgaralegt hlutverk.
Fylgiskjal.
Skýrsla Byggðastofnunar til innviðaráðherra um jöfnun flutningskostnaðar vegna flugvélaeldsneytis.