Ferill 162. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 649  —  162. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Maríu Rut Kristinsdóttur um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu gegn íslenska ríkinu.


     1.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu sem féll í ágúst síðastliðnum og varðaði brot íslenska ríkisins gegn 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu?
    Dómar Mannréttindadómstóls Evrópu eru teknir alvarlega. Niðurstaðan í umræddum dómi verður nýtt til að vinna áfram að því að bæta réttarstöðu brotaþola.
    Undanfarið hefur í dómsmálaráðuneytinu verið unnið að heildstæðri landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum. Landsáætlunin er sett fram með það að markmiði að vinna með heildstæðum hætti að aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum á Íslandi og samanstendur af 25 aðgerðum sem flokkaðar eru í sjö málaflokka. Hún er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
    Í landsáætluninni verður sérstakur kafli um rannsókn brota, saksókn, réttarfarsreglur og verndarráðstafanir. Þar verður m.a. aðgerð sem felur í sér að unnin verði rannsókn um viðhorf og reynslu fagaðila sem starfa við meðferð mála um kynbundið ofbeldi innan réttarvörslukerfisins, sem miðar að því að kanna hvort breytingar síðustu ára á lagaumhverfi og verklagi hafi skilað tilætluðum árangri eða hvort frekari aðgerða sé þörf.
    Einnig má nefna aðgerð um endurskoðun á lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota, nr. 69/1995, með hagsmuni þolenda kynbundins ofbeldis að leiðarljósi. Aðgerðin miðar að því að tryggja betur rétt þolenda kynbundins ofbeldis til bóta.
    Í landsáætluninni er einnig lögð áhersla á fræðslu til fagstétta um kynbundið ofbeldi, gagnaöflun og tölfræðiupplýsingar, kortlagningu á kynbundnu ofbeldi og meðferð kynferðisbrota, styrkingu á þjónustu og upplýsingagjöf til þolenda og samræmingu á verklagi meðal fagstétta.
    Þá má finna sérstaka aðgerð í landsáætlun um upplýsingagjöf til þolenda kynbundins ofbeldis. Aðgerðin miðar að því að bæta upplýsingagjöf til þolenda og auka traust þeirra til lögreglu og ákæruvalds. Aðgerðin felur í sér að gáttin verði þróuð áfram þannig að þolendur annars konar ofbeldis, svo sem ofbeldis í nánu sambandi, geti einnig nýtt sér hana, auk þess sem tímarammar verði skýrari og aðgengilegri og tryggt að þolendur fái greinargóðar upplýsingar um framvindu máls. Jafnframt að notkun þjónustugáttarinnar verði innleidd hjá lögreglu á landsvísu svo að þolendur ofbeldis njóti sambærilegra úrræða óháð búsetu.
    Loks má nefna aðgerð um skýrari umgjörð réttargæslu. Aðgerðin miðar að því að efla þekkingu réttargæslumanna og styrkja þannig gæði þjónustu þeirra við þolendur kynbundins ofbeldis. Samdar verða ítarlegar leiðbeiningar fyrir lögmenn sem taka að sér réttargæslu brotaþola kynbundins ofbeldis og þeim veitt fræðsla, m.a. um eðli og sérstöðu kynbundins ofbeldis.
    Til að tryggja markvissa framkvæmd og innleiðingu aðgerðaáætlunarinnar verður skipaður stýrihópur undir forystu dómsmálaráðuneytis með fulltrúum viðeigandi ábyrgðaraðila. Áætluninni verður fylgt eftir með stafrænu mælaborði sem verður uppfært reglulega um stöðu aðgerða.
    Auk fyrrnefndrar landsáætlunar hafa ýmsar aðgerðir sem miða að því að efla vernd brotaþola verið boðaðar, sbr. svar við 3. tölul. fyrirspurnarinnar.

     2.      Hver var fjöldi framlagðra kæra hér á landi á árunum 2018–2024 í málum er varðað geta kynbundið ofbeldi? Hversu hátt hlutfall var fellt niður af ákæruvaldi? Hversu hátt hlutfall endaði með dómi? Hversu hátt hlutfall endaði með sakfellingu?
Fjöldi mála um kynbundið ofbeldi.
    Við vinnslu þessa svars var óskað eftir upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra um mál er varðað geta kynbundið ofbeldi. Svör bárust, ásamt gögnum, um heimilisofbeldi annars vegar og kynferðisbrot hins vegar. Tölur í töflum miðast við ár þegar brot var tilkynnt.

    Tafla 1. Fjöldi framlagðra kæra vegna heimilisofbeldis:
Ár 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
Fjöldi

867

955 1107 1093 1123 1182 1218

    Tafla 2. Fjöldi framlagðra kæra vegna kynferðisbrota:
Ár 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
Kynferðisbrot 569 672 535 660 630 517 558
Þar af nauðgun 270 220 160 215 254 181 183

    Alls var fjöldi framlagðra kæra vegna mála sem varðað geta kynbundið ofbeldi, þ.e. samtala fjölda kærðra kynferðisbrota og fjölda kæra vegna heimilisofbeldis, 1.436 árið 2018, 1.627 árið 2019, 1.642 árið 2020, 1.753 árið 2021, 1.753 árið 2022, 1.699 árið 2023 og 1.776 árið 2024. Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra eru 3% mála sem tilkynnt voru á árinu 2022 enn til afgreiðslu, 14% mála frá árinu 2023 og 39% mála frá árinu 2024. Of snemmt er að segja til um hvaða hlutfalli kæra sem bárust árin 2023 og 2024 muni ljúka með ákærumeðferð þar sem hluti málanna er enn til afgreiðslu hjá lögreglu.

    Tafla 3. Hlutfallsskipting eftir málslokum heimilisofbeldismála:
Ár 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
Ákærumeðferð 26,55% 31,14% 26,23% 22,59% 19,79% 11,50% 6,63%
Ákvörðun felld úr gildi 0% 0,1% 0% 0% 0% 0% 0%
Enn til afgreiðslu 0% 0% 0% 0% 3% 14% 39,22%
Rannsókn hætt 71,64% 67,72% 71,96% 76,07% 75,88% 73,13% 53,57%
Sektarmeðferð 1,5% 0,9% 1,4% 0,9% 1% 1,4% 0,6%
Vísað til annars stjórnvalds 0% 0% 0% 0,1% 0% 0% 0%

    Tafla 4. Hlutfallsskipting eftir málslokum kynferðisbrotamála:
Ár 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
Ákærumeðferð 52% 51% 55% 52% 46% 43% 39%
Enn til afgreiðslu 0% 0% 0% 0% 2% 13% 21%
Rannsókn hætt 45% 41% 43% 45% 51% 43% 37%
Sektarmeðferð 2% 7% 1% 2% 0% 1% 2%
Vísað frá eða til annars stjórnvalds 1% 0% 1% 1% 1% 0% 0%


    Tafla 5. Þar af í nauðgunarmálum:
Ár 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
Ákærumeðferð 54% 64% 64% 55% 39% 47% 44%
Enn til afgreiðslu 0% 0% 0% 0% 2% 13% 21%
Rannsókn hætt 45% 41% 43% 45% 51% 43% 37%
Sektarmeðferð 2% 7% 1% 2% 0% 1% 2%
Vísað frá eða til annars stjórnvalds 1% 0% 1% 1% 1% 0% 0%

    Hlutfall kærðra heimilisofbeldismála sem lauk með því að rannsókn var hætt, þ.e. kæran var felld niður, var 71,6% árið 2018, 67,7% árið 2019, 72,0% árið 2020 og 76,1% árið 2021. Hlutfall kærðra kynferðisbrotamála þar sem málsmeðferð hefur verið lokið með því að rannsókn var hætt var 45% árið 2018, 41% árið 2019, 43% árið 2020 og 45% árið 2021. Hlutfall kærðra heimilisofbeldismála sem var lokið með ákærumeðferð var 26,55% árið 2018, 31,14% árið 2019, 26,12% árið 2020 og 22,59% árið 2021. Hlutfall kærðra kynferðisbrotamála sem var lokið með ákærumeðferð var 52% árið 2018, 51% árið 2019, 55% árið 2020 og 52% árið 2021.

Niðurstöður dóma um kynbundið ofbeldi.
    Við vinnslu þessa svars var einnig óskað eftir upplýsingum frá dómstólasýslunni. Málaskrá héraðsdómstóla er uppbyggð með þeim hætti að skráð er tegund máls, þ.e. einkamál eða sakamál, en einnig undirtegund. Þær undirtegundir sem teknar voru til greina voru heimilisofbeldi, brot í nánu sambandi, brot gegn nálgunarbanni, nauðgun og önnur kynferðisbrot en nauðgun.
    Hvert mál getur haft fleiri en eina undirtegund, svo sem kynferðisbrot og fíkniefnalagabrot, og í þeim tilvikum er ekki hægt að kalla fram upplýsingar um það fyrir hvaða kæruliði hafi verið sakfellt nema með því að skoða hvert og eitt mál handvirkt. Seinni hluta ársins 2019 var skipt um málaskrá hjá héraðsdómstólunum. Fram að þeim tíma var ekki hægt að greina sakamál eftir undirtegund með sama hætti, svo að ekki er hægt að kalla fram tölfræði um kynbundið ofbeldi fyrir árið 2020. Málaskrár Landsréttar og Hæstaréttar eru byggðar upp með öðrum hætti og er ekki hægt að kalla fram tölfræði þaðan.

    Tafla 6. Tölfræði frá héraðsdómstólum.
Ár Fjöldi lokinna mála með 1+ undirtegund Fjöldi lokinna mála með 1 undirtegund Fjöldi sýknudóma með 1 undirtegund Sakfellingarhlutfall mála með 1 undirtegund
2020 74 54 9 83,3%
2021 77 45 9 80%
2022 83 33 7 78,8%
2023 86 40 8 80%
2024 81 45 6 86,7%
Samtals 401 217 39 82,1%

    Taflan sýnir fjölda lokinna mála með fleiri en eina undirtegund þar sem a.m.k. ein þeirra er ein af framangreindum undirtegundum og fjölda lokinna mála þar sem reynir einungis á eina af framangreindum undirtegundum. Þá má finna upplýsingar um fjölda sýknudóma og sakfellingarhlutfall í málum þar sem reynir aðeins á eina af framangreindum undirtegundum. Í töflunni er ekki að finna upplýsingar um sakfellingarhlutfall lokinna mála með fleiri en eina undirtegund, sbr. framangreint.
    Mikilvægt er að stefnumótun í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi sé upplýst, ábyrg og grundvallist á áreiðanlegum tölfræðilegum upplýsingum. Því er nauðsynlegt að afla tölfræðilegra upplýsinga frá öllum þeim aðilum sem veita þolendum kynbundins ofbeldis þjónustu, þ.m.t. innan heilbrigðiskerfis og lögreglu, svo að unnt sé að bregðast við með sem bestum hætti.
    Í þessu sambandi er rétt að geta þess að landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum, sbr. svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar, er að finna aðgerð sem lýtur að gagnaöflun um allar tegundir kynbundins ofbeldis. Aðgerðin miðar að því að samræmdar og nákvæmar upplýsingar, m.a. um brotaþola, gerendur og tegund brota, verði aðgengilegar um land allt. Aðgerðin felur í sér að löggæsla, ákæruvald, dómstólar, heilbrigðisþjónusta, félagsmálayfirvöld og barnavernd safni, skrái og birti reglulega aðgreind tölfræðileg gögn um allar birtingarmyndir ofbeldis sem falla undir gildissvið samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi.

     3.      Hvernig hyggst ráðherra beita sér fyrir því að traust til réttarvörslukerfisins aukist þannig að hlutfall þeirra sem leggja fram kæru vegna ofbeldisbrota aukist?
    Ráðherra hefur lagt sérstaka áherslu á baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi og hyggst halda því áfram í sinni embættistíð.
    Strax í upphafi ráðherratíðar dómsmálaráðherra var skrifstofa jafnréttismála flutt yfir í dómsmálaráðuneytið. Ástæða þess var m.a. sú samleið sem er á milli jafnréttismála og annarra málefna dómsmálaráðuneytis, ekki síst löggæslu og kynbundins ofbeldis.
    Fyrstu verk ráðherra voru að setja af stað vinnu um að fjölga lögreglumönnum og að taka við fleiri nemum í lögreglufræði. Með því verður almenn löggæsla í landinu efld ásamt því að málsmeðferðartími styttist.
    Þá hefur verið óskað eftir því að refsiréttarnefnd taki til skoðunar hvort tilefni sé til að endurskoða ákvæði almennra hegningarlaga sem varða líkamsárásir með það fyrir augum að skerpa á skilum milli ákvæða hegningarlaga um líkamsárásir og þyngja refsimörk.
    Á yfirstandandi löggjafarþingi var lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili, nr. 85/2011 (rafrænt eftirlit o.fl.), sjá 298. mál, þskj. 413. Markmið þess er að auka vernd brotaþola gegn heimilisofbeldi og umsáturseinelti en með frumvarpinu er lagt til að lögreglu verði veitt heimild til að taka ákvörðun um beitingu á rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, samhliða ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili. Breytingarnar eru taldar nauðsynlegar til að sporna gegn endurteknum brotum gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili og bæta sönnunarfærslu vegna brota. Frumvarpið byggist á því sjónarmiði að ekki sé litið á heimilisofbeldi sem einkamál brotaþola heldur mál sem varðar samfélagið í heild og því nauðsynlegt að koma á frekari raunhæfum úrræðum til að bregðast við því. Þá liggur það sjónarmið til grundvallar frumvarpinu að ábyrgð heimilisofbeldis og umsáturseineltis liggi hjá geranda en ekki brotaþola.
    Þá hefur verið lagt fram á yfirstandandi þingi framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026–2029, sjá 227. mál, þskj. 258. Þar er að finna þó nokkrar aðgerðir sem lúta að kynbundnu ofbeldi. Meðal annars er þar að finna aðgerð um kortlagningu þeirra úrræða sem standa gerendum heimilis- og kynferðisofbeldis til boða í samanburðarlöndum með það að markmiði að fjölga og bjóða upp á fjölbreyttari úrræði fyrir gerendur kynbundins ofbeldis.
     4.      Telur ráðherra að þörf sé á sérstökum aðgerðum til að stytta málsmeðferðartíma í ofbeldismálum?

    Þegar hefur verið gripið til ráðstafana til bæta málsmeðferð í ofbeldismálum. Má þar til dæmis nefna fjölgun á stöðugildum hjá lögreglu og ákæruvaldi. Auk þess má segja að landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum miði í heild sinni að því að bæta málsmeðferð í þessum málaflokki og tryggja skilvirka meðferð mála innan réttarvörslukerfisins.
    Einkum er vísað til aðgerðarinnar um úttekt á meðferð kynbundinna ofbeldismála innan réttarvörslukerfisins en hún felur í sér að sérstaklega verði leitast við að greina hvaða þættir hægja á meðferð kynbundinna ofbeldismála. Þannig er hægt að bera kennsl á hugsanlega kerfislæga annmarka og bæta málsmeðferð og málsmeðferðartíma.
    Einnig má nefna aðgerð um upplýsingagjöf til þolenda, sem er ætlað að skýra tímaramma afgreiðslu mála. Auk þess er að finna aðgerð um fræðslu innan réttarvörslukerfisins um kynbundið ofbeldi, sem miðar m.a. að því að tryggja gæði rannsókna. Til að tryggja hlutlægt sönnunarmat og betri upplifun brotaþola af skýrslutökum er mikilvægt að sérfræðingar innan réttarvörslukerfisins og dómstóla hafi þekkingu og skilning á þeim viðbrögðum sem áföll, svo sem kynbundið ofbeldi, geta haft á framburð brotaþola.