Ferill 388. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 651  —  388. mál.





Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um grunnskóla.

Frá Snorra Mássyni.


     1.      Telur ráðherra að yfirlýst markmið í aðalnámskrá grunnskóla séu uppfyllt þannig að nemendur öðlist viðunandi hæfni til frekara náms að grunnskólagöngu lokinni? Ef svo er ekki, hvernig hyggst ráðherra bregðast við því?
     2.      Telur ráðherra að núverandi einkunnakerfi í grunnskólum upplýsi nemendur og foreldra með skýrum hætti um það hver þekking og staða nemenda er að loknu námi? Ef svo er ekki, hvernig hyggst ráðherra bregðast við því?
     3.      Hvernig telur ráðherra að grunnskóli án aðgreiningar hafi reynst? Hefur sú nálgun bætt námsárangur og hæfni allra nemenda? Hefur hún hentað ólíkum nemendahópum misvel? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra bregðast við því?


Skriflegt svar óskast.