Ferill 325. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 652  —  325. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um skráningu lögheimilis.


     1.      Hversu margir einstaklingar hafa verið skráðir til lögheimilis í sveitarfélagi án tilgreinds heimilisfangs flokkað eftir sveitarfélögum sl. tíu ár?
    Eftirfarandi tafla byggist á upplýsingum sem Þjóðskrá Íslands vann úr þjóðskrá með vélrænni talningu. Í töflunni eru birtar upplýsingar um fjölda einstaklinga sem voru skráðir í þjóðskrá með ótilgreint lögheimili 1. desember ár hvert, sundurliðað eftir landshlutum, sveitarfélögum og árum. Bent er á að tölfræðin stýrist af númeri hvers sveitarfélags og sameiningar sveitarfélaga hafa leitt til breyttra númera og heita sem útskýrir auða dálka sums staðar.

Nr. svf. Sveitarfélag 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Höfuðborgarsvæðið
0000 Reykjavík 333 408 539 776 880 1.217 1.158 1577 1.979 2.644 2.923
1000 Kópavogur 68 77 131 156 169 267 215 265 414 535 571
1100 Seltjarnarnes 1 2 3 3 6 3 6 9 10 18 22
1300 Garðabær 23 60 62 45 35 47 37 47 51 87 140
1400 Hafnarfjörður 49 89 159 167 236 275 254 384 416 575 648
1604 Mosfellsbær 14 17 20 40 46 82 67 79 161 208 223
1606 Kjósarhreppur 9 10 11 24 25 35 26 49 48 55 72
Samtals 497 663 925 1.211 1.397 1.926 1.763 2410 3.079 4.122 4.599
Suðurnes     
2000 Reykjanesbær 48 135 241 258 275 304 203 317 440 535 566
2300 Grindavík 6 6 6 19 17 23 16 17 21 29 21
2503 Sandgerðisbær 0 0 0 - - - - - - - -
2504 Sveitarfélagið Garður 0 0 0 - - - - - - - -
2506 Sveitarfélagið Vogar 4 4 5 8 11 10 8 14 22 22 28
2510 Suðurnesjabær 0 0 29 26 37 30 43 64
Samtals 58 145 252 285 303 366 253 385 513 629 679

Vesturland     

3000 Akranes 0 1 7 11 26 25 37 33 34 60 74
3506 Skorradalshreppur 1 2 2 1 7 4 4 5 12 21 10
3511 Hvalfjarðarsveit 1 0 0 4 3 2 17 56 48 46 42
3609 Borgarbyggð 30 34 35 29 35 43 25 26 31 74 84
3709 Grundarfjarðarbær 0 0 0 1 1 4 1 1 4 6 5
3710 Helgafellssveit 0 0 0 2 2 0 0 - - - -
3711 Stykkishólmur / Stykkishólmsbær 1 4 5 5 8 5 2 - - - -
3713 Eyja- og Miklaholtshreppur 1 1 1 2 1 2 1 0 0 0 0
3714 Snæfellsbær 3 5 2 3 1 12 13 12 12 8 19
3716 Sveitarfélagið Stykkishólmur 7 8 8 9
3811 Dalabyggð 0 1 1 1 0 0 2 0 0 0 4
Samtals 37 48 53 59 84 97 102 140 149 223 247
Vestfirðir     
4100 Bolungarvík 0 0 0 0 0 0 4 5 6 7 7
4200 Ísafjarðarbær 2 8 17 44 26 19 17 10 17 23 58
4502 Reykhólahreppur 0 1 1 1 1 1 0 0 0 1 1
4604 Tálknafjarðarhreppur 6 2 4 5 4 2 1 3 4 - -
4604 Vesturbyggð - - - - - - - - - 8 5
4607 Vesturbyggð 0 2 4 6 3 6 1 3 2 - -
4803 Súðavíkurhreppur 0 0 0 0 0 0 0 0 0 3 0
4901 Árneshreppur 0 0 0 0 0 0 0 0 0 5 4
4902 Kaldrananeshreppur 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0
4911 Strandabyggð 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0
Samtals 8 13 26 56 34 28 23 21 29 47 75

Norðvesturland

    
5502 Sveitarfél. Skagafjörður 1 1 5 5 8 8 6 - - - -
5508 Húnaþing vestra 2 2 1 2 2 4 4 7 4 10 18
5604 Blönduósbær / Blönduós 0 3 3 1 1 3 1 - - - -
5609 Sveitarfélagið Skagaströnd 1 0 0 0 2 3 0 1 0 0 0
5611 Skagabyggð 0 0 0 0 0 0 0 0 0 - -
5612 Húnavatnshreppur 0 0 0 0 0 0 1 - - - -
5613 Húnabyggð - - - - - - - 2 5 15 23
5706 Akrahreppur 0 0 0 0 0 0 0 - - - -
5716 Skagafjörður - - - - - - - 13 16 26 31
Samtals 4 6 9 8 13 18 12 23 25 51 72

Norðausturland     

6000 Akureyrarkaupstaður / Akureyrarbær / Akureyri 28 37 43 47 46 57 60 72 90 148 176
6100 Norðurþing 7 6 14 26 29 20 31 18 20 28 38
6250 Fjallabyggð 0 7 4 1 1 3 1 3 6 10 11
6400 Dalvíkurbyggð 0 0 0 12 1 3 4 5 6 6 10
6513 Eyjafjarðarsveit 0 0 1 1 3 4 3 2 2 4 8
6515 Hörgársveit 0 0 0 0 0 0 1 8 6 1 0
6601 Svalbarðsstrandarhreppur 3 2 0 5 4 2 6 4 2 5 3
6602 Grýtubakkahreppur 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1
6607 Skútustaðahreppur 0 0 1 6 10 17 13 - - - -
6611 Tjörneshreppur 0 0 0 0 0 3 4 4 3 2 1
6612 Þingeyjarsveit 0 0 0 2 2 2 4 14 10 14 19
6706 Svalbarðshreppur 0 0 0 0 0 0 0 - - - -
6709 Langanesbyggð 0 0 2 3 1 2 4 - - - -
6710 Langanesbyggð - - - - - - - 2 13 18 18
Samtals 38 52 65 103 97 113 131 132 158 236 285

Austurland

7000 Seyðisfjarðarkaupstaður 2 1 2 1 1 - - - - - -
7300 Fjarðabyggð 0 2 3 14 14 15 15 9 15 15 43
7400 Múlaþing - - - - - 36 10 6 0 27 40
7502 Vopnafjarðarhreppur 2 2 2 3 3 3 0 0 0 0 0
7505 Fljótsdalshreppur 0 2 0 0 9 11 9 9 6 12 4
7509 Borgarfjarðarhreppur 0 0 0 0 0 - - - - - -
7613 Breiðdalshreppur 0 0 0 - - - - - - - -
7617 Djúpavogshreppur 0 0 0 0 1 - - - - - -
7620 Fljótsdalshérað 1 5 3 5 9 - - - - - -
7708 Sveitarfélagið Hornafjörður 1 12 22 31 25 16 - - - - -
Samtals 6 24 32 54 62 81 34 24 21 54 87

Suðurland

8000 Vestmannaeyjar 6 5 9 12 8 50 41 25 49 59 74
8200 Sveitarfélagið Árborg 15 20 26 37 34 45 41 43 57 77 117
8401 Sveitarfélagið Hornafjörður - - - - - - 12 10 11 28 22
8508 Mýrdalshreppur 1 1 2 10 15 18 3 5 8 20 36
8509 Skaftárhreppur 2 0 1 3 3 5 7 10 9 12 13
8610 Ásahreppur 2 19 0 5 15 18 8 18 28 35 39
8613 Rangárþing eystra 7 7 6 10 17 27 11 7 10 18 24
8614 Rangárþing ytra 7 17 21 28 20 20 19 19 17 24 28
8710 Hrunamannahreppur 0 0 1 2 4 8 11 9 15 21 33
8716 Hveragerði 3 0 9 12 11 17 11 14 15 34 34
8717 Sveitarfélagið Ölfus 0 1 2 10 11 21 20 12 40 40 52
8719 Grímsnes- og Grafningshreppur 1 3 5 10 12 30 34 48 75 103 140
8720 Skeiða- og Gnúpverjahreppur 0 51 40 11 3 3 5 7 7 9 10
8721 Bláskógabyggð 1 0 1 2 2 9 11 14 15 20 24
8722 Flóahreppur 0 0 0 0 2 1 6 16 12 14 13
Samtals 45 124 123 152 157 272 240 257 368 514 659
Landið allt 693 1.027 1.485 1.928 2.147 2.901 2.558 3.392 4.342 5.876 6.703

     2.      Í hversu mörgum tilvikum hefur lögheimilisskráning verið leiðrétt á grundvelli 16. gr. laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, undanfarin tíu ár:
                  a.      á grundvelli frumkvæðisvinnu Þjóðskrár Íslands,
                  b.      að beiðni þinglýsts eiganda,
                  c.      að beiðni annarra sem hagsmuna hafa að gæta?
             Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum og eftir því hvort sá sem var ranglega skráður hafði íslenskt eða erlent ríkisfang.

    Lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, tóku gildi 1. janúar 2019. Leiðréttingar á grundvelli 16. gr. laganna ná því aðeins aftur til þeirrar dagsetningar.
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda mála sem hafa verið til meðferðar hjá Þjóðskrá Íslands samkvæmt skráningu í málaskrá stofnunarinnar. Málum vegna tilkynninga sem bárust stofnuninni fram að ágúst 2025 mun vera lokið og því eru um 2000 mál ársins 2025 enn til meðferðar. Tölur fyrir árið 2025 miðast við skráningu 9. desember 2025.
    Bent er á að í málaskrárkerfi Þjóðskrár Íslands eru upplýsingar um sveitarfélög og ríkisföng málsaðila ekki aðgengilegar með vélrænni talningu. Sama gildir um flokkun á málum eftir því hvort tilkynning barst frá þinglýstum eiganda eða öðrum sem hafa hagsmuna að gæta. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands má þó gera ráð fyrir því að meiri hluti tilkynninga berist frá þinglýstum eigendum.

Ár 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Mál að beiðni þinglýstra eigenda og annarra 2.198 3.214 2.791 3.273 4.019 8.933 8.253
Mál að frumkvæði Þjóðskrár Íslands 165 1.633 612 599 100 67 608

     3.      Hvaða aðilar hafa talist falla undir „aðrir hagsmunaaðilar“ í skilningi 2. mgr. 16. gr. laganna og hverjir ekki samkvæmt ákvörðunum Þjóðskrár Íslands og úrskurðum ráðuneytisins?
    Aðrir hagsmunaaðilar í skilningi ákvæðisins eru helst leigutakar, aðstandendur einstaklinga sem þarfnast aðstoðar við að gæta hagsmuna sinna, opinberar stofnanir, svo sem Tryggingastofnun, Skatturinn, heilbrigðisstofnanir og sveitarfélög, vinnuveitendur og húsfélög.
    Framkvæmdinni er þannig háttað að Þjóðskrá Íslands tekur til skoðunar allar tilkynningar sem varða lögheimilisskráningar, óháð því frá hverjum þær berast. Í kjölfarið fer fram mat á því hvort tilkynnandi hafi hagsmuna að gæta og hvort tilefni er til að setja tilkynninguna í viðeigandi farveg.

     4.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir breytingum á gildandi lagaheimildum til að skrá lögheimili án tilgreindrar staðsetningar? Ef svo er, yrðu slíkar breytingar til að þrengja núverandi heimildir eða til að festa slíkar heimildir enn frekar í sessi?
    Samkvæmt Þjóðskrá Íslands eru algengustu ástæður fyrir skráningunni „ótilgreint lögheimili“ eftirfarandi:
    Í fyrsta lagi tilkynning þriðja aðila um ranga skráningu lögheimilis. Slíkar tilkynningar koma yfirleitt frá þinglýstum eiganda fasteignar sem upplýsir Þjóðskrá Íslands um einstaklinga sem hafa ekki fasta búsetu í húsnæði í þeirra eigu, en eru engu að síður með skráð lögheimili þar. Samkvæmt 3. mgr. 12. gr. laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, bera þinglýstir eigendur fasteigna skyldu til að upplýsa Þjóðskrá Íslands um einstaklinga sem eru ranglega skráðir með lögheimili í þeirra fasteign. Málsmeðferð hefst á því að upplýsa málsaðila um skráninguna og gefa honum kost á að bregðast við og upplýsa Þjóðskrá um rétt heimilisfang. Ef einstaklingur bregst ekki við erindi Þjóðskrár Íslands verður hann skráður með ótilgreint lögheimili í sama sveitarfélagi og síðasta skráða lögheimili eða erlendis ef búseta er talin vera erlendis.
    Í öðru lagi ósk einstaklinga, sem eru búsettir í húsnæði sem ekki er heimilt að skrá lögheimili í, um að þeir verði skráðir með ótilgreint lögheimili í sveitarfélagi þar sem búsetan er. Nauðsynlegt er að staðfesting á búsetu sé lögð fram til Þjóðskrár Íslands svo hægt sé að samþykkja slíka beiðni. Í slíkum tilvikum er algengast að um búsetu í atvinnuhúsnæði eða frístundabyggð sé að ræða en einstaklingar án húsnæðis falla einnig undir þennan flokk.
    Í þriðja lagi vegna nýskráningar erlendra ríkisborgara í þjóðskrá. Þjóðskrá Íslands er ekki heimilt að fresta afgreiðslu umsóknar um skráningu lögheimilis á Íslandi og úthlutun kennitölu ef öll skilyrði hafa verið uppfyllt. Umsækjendur í þessum hópi eru þá skráðir með ótilgreint lögheimili ef búseta er ekki í íbúðarhúsnæði eða þeir hafa ekki fundið varanlegt íbúðarhúsnæði þegar umsókn er afgreidd. Hér geta jafnframt fallið undir tilvik þegar íslenskir ríkisborgara flytja aftur til landsins og eru ekki komnir með húsnæði til þess að skrá fasta búsetu í.
    Í fjórða lagi einstaklingar sem eru án fastrar búsetu, þ.e. eru heimilislausir tímabundið eða ótímabundið og hafa af þeirri ástæðu ótilgreinda skráningu lögheimilis í sveitarfélagi.
    Í fimmta lagi einstaklingar sem dvelja á áfangaheimilum og í meðferðarúrræðum, þ.e. ef þeir þurfa að vera skráðir í sveitarfélagið til þess að geta nýtt framangreind úrræði en hafa enga aðra fasta búsetu þar.
    Frá því Þjóðskrá Íslands og lög um lögheimili og aðsetur fluttust frá innviðaráðuneytinu til dómsmálaráðuneytisins hinn 15. mars sl., við gildistöku forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 5/2025, hefur dómsmálaráðuneytið verið að kynna sér starfsemi og framkvæmd stofnunarinnar, þar á meðal á grundvelli umræddra laga. Fyrir liggur að ýmis álitamál tengjast skráningu á ótilgreindu lögheimili einstaklinga. Hluti þeirra varðar málefni annarra ráðuneyta en auk þess hafa ýmis stjórnvöld, sveitarfélög og aðrir aðilar hagsmuni að gæta af framkvæmdinni. Dómsmálaráðuneytið er með málefni laga um lögheimili og aðsetur til skoðunar og hefur við þá vinnu samráð við þá aðila sem málið varðar.