Ferill 279. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 653  —  279. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.


     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?
    Á því tímabili sem spurt er um hafa verið gerðir sjö starfslokasamningar, umfram réttindi starfsmanns, á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og stofnana þess.

     Sundurliðun á fjölda starfslokasamninga.
Stofnun 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Úrvinnslusjóður 1
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 1
Veðurstofa Íslands 1 2 1
Umhverfisstofnun 1

     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?
    Kostnað vegna framangreindra samninga má sjá sundurliðaðan hér að neðan. Kostnaður vegna starfslokasamninga er tiltekinn á því ári sem viðkomandi samningur var gerður.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?
    Einn embættismaður var fluttur til milli embætta innan ráðuneytisins árið 2020. Fjórir embættismenn voru fluttir til milli embætta innan ráðuneytisins árið 2022. Árið 2024 voru þrír embættismenn fluttir til milli embætta innan ráðuneytisins.
    Árið 2019 var forstjóri Landmælinga Íslands fluttur í embætti framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs.
    Framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs var fluttur úr embætti í stöðu sérfræðings í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu árið 2022.
    Árið 2024 var framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs fluttur úr embætti í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu yfirstjórnar í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
    Allir framangreindir flutningar voru gerðir á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.