Ferill 359. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 666 — 359. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni um stjórnvaldssektir.
Ráðuneytið leitaði eftir upplýsingum frá sýslumanninum á Vestfjörðum sem leitaði einnig eftir svörum hjá Fjársýslunni. Svörin eru byggð á þeim upplýsingum.
1. Hvaða sjóðir og stofnanir hafa sætt stjórnvaldssektum á grundvelli 1. mgr. 4. gr. laga nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, frá því að ákvæðið tók gildi árið 2024?
Eftirfarandi sjóðir og stofnanir hafa sætt stjórnvaldssektum á grundvelli 1. mgr. 4. gr. laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988, frá því að ákvæðið tók gildi þann 1. janúar 2025:
– Reynislegat
– Kambshólslegat
– Hjaltestedslegat
– Gjöf Þorleifs Kolbeinss og Sigríðar Jónsdóttur
– Gullbrúðkaupslegat Bjarna amtmanns Þorsteinssonar og konu hans, frú Þórunnar Hannesdóttur
– Samgöngubótasjóður Páls Jónssonar
– Minningarsjóður Kristrúnar Haraldsdóttur
– Minningarsjóður Bjarna Guðmundssonar, Kristjáns Finnssonar og Péturs Andréssonar
– Magnúsar Einarssonar sjóður
– Námssjóður J. C. Möllers frá 6. október 1938
– Minningarsjóður Jónasar Jónassonar
– Minningarsjóður Jakobs Ó. Lárussonar, prests að Holti undir Eyjafjöllum
– Minningarsjóður frú Önnu Ingvarsdóttur
– Minningar- og gjafasjóður Þórormstunguhjónanna
– Framfarasjóður Bólstaðarhlíðarhrepps
– Minningarsjóður Sigþórs Róbertssonar
– Líknarsjóður Kvenfélags Laugarnessóknar, Reykjavík
– Menningarsjóður þingeyskra kvenna
– Verðlaunasjóður Camillu Torfason
– Minningarsjóður séra Sigurðar Stefánssonar og frú Þórunnar Bjarnadóttur í Vigur
– Styrktarsjóður Mikla norræna ritsímafélagsins
– Minningarsjóður Biskupstungna
– Minningarsjóður Jóhönnu Margrétar Þorláksdóttur
– Listasafn Alþýðusambands Íslands (gjöf Ragnars Jónssonar)
– Bændasjóður Bólstaðarhlíðarhrepps
– Menningar- og fræðslusjóður Guðspekifélags Íslands
– Minningarsjóður Hildar Ólafsdóttur
– Minningarsjóður Guðmundar frá Hólmi
– Minningarsjóður frú Hlínar Þorsteinsdóttur, Reykjavík
– Verðlaunasjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright
– Utanfararsjóður sjúkra í Strandasýslu
– Minningarsjóður Erlends Marteinssonar og Sigurveigar Einarsdóttur
– Styrktarfélag Tónskólans og sjóðurinn Styrktarsjóður Tónskólans
– Menningarsjóður Austur-Skaftfellinga
– Líknar- og minningarsjóður um Kristjönu Pálínu Kristjánsdóttur og Halldór Þorsteinsson frá Vörum, Garði
– Kvaransminni
– Minningarsjóður Margrétar Auðunsdóttur
– Minningarsjóður Marsibil Sigurðardóttur
– Leiklistarsjóður Brynjólfs Jóhannessonar
– Sjóður til stuðnings menntastofnunum á Ísafirði
– Minningarsjóður Málfríðar og Nils G. Nielsens til styrktar ekkjum og börnum látinna sjómanna á Íslandi
– Verðlaunasjóður iðnaðarins
– Styrktarsjóður lamaðra og fatlaðra í Strandasýslu
– Bókasafnssjóður forsetasetursins að Bessastöðum
– Minningarsjóður Sigurlaugar Jónasdóttur frá Ási í Vatnsdal
– Sunnuhlíðarsamtökin
– Grundarteigur
– Minningarsjóður Sigríðar Jónsdóttur frá Drangshlíðardal
– Minningarsjóður um hjónin Maríu Ólafsdóttur og Magnús Jóhannesson frá Borgarnesi
– Byggingarsjóður aldraðra í Selfosskaupstað
– Minningarsjóður Gyðu Maríasdóttur
– Framfara- og menningarsjóður Húnvetninga
– Styrktarsjóður Þórðar Jónssonar – Foreldraminning
– Minningarsjóður Marinós Bjarna Kristjánssonar
– Minningarsjóður frú Karólínu Kristjánsdóttur, fyrrverandi ljósmóður á Stóru-Þverá í Holtshreppi
– Minningarsjóður Ólafs Sólimanns Lárussonar
– Sjóður Víkingakistunnar
– Endurhæfingarstöð Geðverndarfélags Íslands
– Kirkjumiðstöð Austurlands
– Minningarsjóður hjónanna Ólafíu Ingibjargar Elíasdóttur og Þórðar Valdimars Marteinssonar
– Minningarsjóður systkinanna Bryndísar Gísladóttur og Braga Þórs Gíslasonar listmálara
– Sjálfseignarstofnunin Skátaheimili Landnema
– Minningarsjóður Jóns Ólafs Guðmundssonar
– Styrktarsjóður Björns Jónssonar frá Kóngsbakka
– Sólvellir, dvalarheimili aldraðra á Eyrarbakka
– Styrktarsjóður menningarstarfs í Vestmannaeyjum
– Minningarsjóður Ingimundar Guðmundssonar
– Minningarsjóður Ólafs Finnssonar og Guðrúnar Tómasdóttur frá Fellsenda í Miðdölum í Dalasýslu
– Nemendagarðar búvísindadeildar á Hvanneyri í Andakílshreppi, Borgarfjarðarsýslu
– Minningarsjóður Ársæls Sigurðssonar og Sigurbjargar Pálsdóttur
– Ásmegin
– Menningar- og líknarsjóður Kumbaravogs
– Landgræðslusjóður
– Sjóður Odds Ólafssonar
– Styrktar- og minningarsjóður Þorbjargar Björnsdóttur
– Norður-Atlantshafslaxsjóðurinn (NAS)
– Krossgötur
– Vísindasjóður Gigtarfélags Íslands
– Vísindasjóður læknaráðs F.S.A.
– Líknarsjóður Langholtskirkju
– Kvikmyndahátíð í Reykjavík
– Sjónverndarsjóður Íslands
– Verslunarminjasafn á Hvammstanga
– Styrktarsjóður Icelandic Children Aid (ICA)
– Styrktarsjóður Önnu K. Nordal
– Kirkjubæjarstofa
– Sjálfseignarstofnunin At-konur, áhugahópur um atvinnumál kvenna á Vestfjörðum
– Minningarsjóður Ólafíu Jóhannsdóttur
– Húsfélag Hvanneyrar
– Sjálfseignastofnunin Tryggvaskáli
– Skólabókasafnssjóður Helgu Proppé
– Minningarsjóður Margrétar Leósdóttur
– Listaverkasjóður Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur
– Minningarsjóður Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnson
– Minningarsjóður Helga S. Gunnlaugssonar
– Sjálfseignarstofnunin Kolkuós
– Rannsóknastofnunin Barnarannsóknir
– Minningarsjóður Jóhönnu Erasmusdóttur og Svanhvítar Eramusdóttur
– Bókmenntahátíðin í Reykjavík
– Minningarsjóður Hönnu og Harald Hope
– Styrktarsjóður Halldórs Hansen
– Thorvaldsens-sjóðurinn, styrktarsjóður til málefna sykursjúkra barna og unglinga
– Sumartónleikar í Skálholti
– Minningarsjóður Ásgeirs Jónsteinssonar
– Minningarsjóður Þorbjörns Árnasonar
– Upplestur
– Kærleikssjóður Sogns
– Tóbiashús, minningarsjóður um Tobias Jaschke
– Klúbburinn Strókur
– Sjálfseignarstofnunin Eyvindarstaðaheiði
– Sjálfseignarstofnunin Grímstungu- og Haukagilsheiði
– Vísindasjóður samtaka psoriasis- og exemsjúklinga
– Hollvinasjóður Hjallatúns
– Minningarsjóður Philip Verrall hjá Þjóðminjasafni Íslands
– Vör – Sjávarrannsóknarsetur við Breiðafjörð
– Minningarsjóður séra Ragnars Fjalars Lárussonar prófasts
– ABC barnahjálp International
– Styrktarsjóðurinn Hofsbót
– Mótorhjólasafn Íslands
– Faðmur – Heilaheilla
– Skógræktarsjóður Skagafjarðar
– Rannsóknar- og styrktarsjóður Lilju G. Hannesdóttur
– Markaðsstofa Reykjaness
– Sjálfseignarstofnunin Icelandic Glacial Water for Life Foundation
– Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra
– FrumkvöðlaAuður
– Úlfssjóður
– Menntunarsjóður Þórarins Kristjánssonar
– Sólvellir
– Menningarmiðstöð Þingeyinga
– Bergheimar
– Þristasjóðurinn
– Styrktarsjóðurinn Töggur
– Minningarsjóður Sigurlaugar Margrétar Pétursdóttur
– Styrktarsjóður langveikra barna og barna með fátíða fötlun, til minningar um Valborgu Jóhannsdóttur, Jón Jóhannsson, Guðmundu Jóhannsdóttur og Gunnar Jóhannsson frá Kirkjubóli, Múlasveit, A-Barðastrandarsýslu
– Minningarsjóður Harðar Barðdal til styrktar fötluðum kylfingum
– Tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk
– Minningarsjóður Guðlaugs Magna Óðinssonar
– Styrktarsjóður Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns
– Mennta- og menningarsjóður Guðna Guðnasonar frá Eyjum I, Kjós
– Heimskautaréttarstofnun
– Nótt og Dagur
– Minningarsjóður Sigrúnar Mjallar
– Vinir Kenía
– Norðurslóðanet Íslands – þjónustumiðstöð norðurslóðamála / The Icelandic Arctic Cooperation Network
– Ólafíusjóður
– WOW Sport
– Minningarsjóður Orra Ómarssonar
– Minningar- og styrktarsjóður Ölla
– Minjasafnið Kört
– Styrktarsjóður Sparnaðar
– Rannsóknastofnun atvinnulífsins – Bifröst
– Styrktarsjóður gigtveikra barna
– Styrktarsjóður Tónlistarskóla Ísafjarðar
– Gamli bærinn í Múlakoti
– The Icelandic Wildlife Fund
– Minningarsjóður Gísla Ísleifs Aðalsteinssonar
– Vinátta í verki
– Styrktar- og fræðslusjóður um bráðafæðuofnæmi
– Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs
– Styrktarsjóður geðheilbrigðis
– Stofnun Sjálfbærnisrannsókna
– Kling & Bang
– Hollvinasjóður Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
– Góðgerðarfélag 1881
– Vernd og velferð barna
– Minningarsjóður Ellýjar Katrínar
– Minningarsjóður Ólafs E. Rafnssonar
2. Hver er heildarfjárhæð sekta sem hafa verið lagðar á sjóði og stofnanir samkvæmt ákvæðinu?
Heildarfjárhæð álagðra sekta er 113.400.000 kr.
3. Hversu oft hefur heimild til að lækka sektarfjárhæð á grundvelli 2. mgr. 4. gr. laganna verið beitt?
Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laganna skal sýslumaður lækka sektarfjárhæð um 90% ef sjóður eða stofnun skilar ársreikningi innan 30 daga frá tilkynningu um álagningu sektar. Ef úrbætur eru gerðar innan tveggja mánaða frá tilkynningu um álagningu sektar skal lækka sektarfjárhæðina um 60% og ef úrbætur eru gerðar innan þriggja mánaða frá tilkynningu um álagningu sektar skal lækka sektarfjárhæðina um 40%. Frá gildistöku ákvæðisins hafa 76 sjóðir og stofnanir fengið 90% lækkun sektarfjárhæðar, 15 sjóðir og stofnanir fengið 60% lækkun og fimm sjóðir og stofnanir fengið 40% lækkun. Samtals eru þetta 96 tilvik.
4. Hver er heildarfjárhæð sekta sem hafa verið innheimtar samkvæmt framangreindu ákvæði frá því að það tók gildi árið 2024?
Í lok árs 2025 höfðu verið innheimtar 8.279.954 kr.